Rætt um að leggja fram vantrausttillögu á forsætisráðherra

Einstaka þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa rætt um að leggja fram van­traust­til­lögu á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vegna upp­lýs­inga sem fram komu í síð­ustu viku. Þá var greint frá því að Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs, ætti aflands­fé­lag skráð á Tortóla-eyju og geymdi þar eignir upp á um 1,2 millj­arð króna. Sömu­leiðis var greint frá því að hún hefði átt kröfur í bú allra stóru föllnu bank­anna upp á sam­tals 523 millj­ónir króna. Miðað við væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa er lík­legt að félag Önnu Sig­ur­laugar fái yfir 120 millj­ónir króna vegna krafna sinna.

Það hefur verið harð­lega gagn­rýnt að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki greint frá til­urð félags­ins fyrr en nú, en það gerð­ist í kjöl­far þess að Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, for­svars­maður Reykja­vík Media ehf., hafði sam­band við Sigmund Davíð. Jóhannes Kr. og alþjóð­legu rann­sókn­ar­blaða­mennsku­sam­stökin ICIJ, þýska dag­blaðið Süddeutsche Zeitung og fleiri erlendir fjöl­miðlar hafa unnið saman að fréttaum­fjöllun um eignir Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum und­an­farna mán­uði. Umfjöllun þeirra verður birt á næstu vikum.

Í Frétta­blað­inu í dag segir Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, að van­traust­til­lögu hafi verið velt upp í sam­ræðum. Staðan sé „ein­hvern veg­inn alveg for­dæma­laus" og það komi vel til greina að leggja fram van­traust­til­lögu. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, tekur sama undir með Óttarri. „Það hefur ekk­ert verið rætt form­lega innan þing­flokks VG en þetta hefur verið til umræðu hjá ein­staka þing­mönnum.“ Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að hann hafi heyrt af vanga­veltum um van­traust­til­lögu en að hún hafi ekki verið rædd innan þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í fréttum RÚV í gær var greint frá því að van­traust­til­laga á for­sæt­is­ráð­herra hefði verið rædd innan allra stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, sagði við RÚV að óhugs­andi væri að Sig­mundur Davíð sæti áfram sem for­sæt­is­ráð­herra í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem komið hefðu fram.

Stjórn­ar­þing­menn hafa einnig gagn­rýnt for­sæt­is­ráð­herra harð­lega. Vil­hjálmur Bjarna­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, gerði að í Viku­lok­unum á Rás 1 á laug­ar­dag og Ásmundur Frið­riks­son, sam­flokks­maður hans, sagði í fréttum RÚV í gær að hann vildi að Sig­mundur Davíð myndi stíga fram og skýra mál sitt sem fyrst. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hafði áður sagt að hann hafi ekki vitað af því að eig­in­kona for­sæt­is­ráð­herra ætti félag skrá á Tortóla-eyju sem ætti háar kröfur í slitabú föllnu bank­anna. Heim­ildir Kjarnans herma að mikil óánægja sé með þá stöðu sem er komin upp hjá mörgum öðrum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár