Flestir fjölmiðlar með fulltrúa í glæsilegri boðsferð WOW

Tugir fjöl­miðla­manna fóru í boðs­ferð WOW-air til Washington um helg­ina. RÚV sendi ekki full­trúa. Varað var við sam­bæri­legum ferðum í Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um efna­hags­hrunið. WOW er segir að kostn­að­ur­inn hafi verið greiddur af flug­vell­inum.

Skúli Mogensen
Skúli Mogensen Eigandi Wow-air í lest með blaða­mönnum í boðs­ferð flug­fé­lags­ins um helg­ina. Mynd: Instagram.

Flug­fé­lagið WOW air fór jóm­frú­ar­ferð sína til Washington BWI flug­vallar síð­ast­lið­inn föstu­dag og bauð meðal ann­ars blaða­mönnum með í för. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar sam­an­stóð dag­skráin meðal ann­ars af kvöld­skemmtun þar sem Skúli Mogensen fram­kvæmda­stjóri WOW flutti ávarp, heim­sókn í banda­ríska þingið og kok­teil­boði hjá Geir H. Haarde sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum. 

Full­trúar frá flestum stærri fjöl­miðlum lands­ins fóru í ferð­ina og má þar til dæmis nefna frétta­menn­ina Þorbjörn Þórð­ar­son og Þórhildi Þor­kels­dóttur frá 365 miðlum, Mörtu Maríu Jón­as­dóttur blaða­konu frá Morg­un­blað­inu, Hörð Ægisson við­skipta­rit­stjóra frá DV, Eddu Her­manns­dóttur aðstoð­ar­rit­stjóra hjá Við­skipta­blað­inu og Þórunni Elísa­betu Boga­dóttur aðstoð­ar­rit­stjóra hjá Kjarn­anum. 

Stundin sendi fyr­ir­spurn á RÚV og spurði hvort frétta­stofa Rík­is­sjón­varps­ins hefði átt full­trúa í ferð­inni. Í svari frá Rakel Þor­bergs­dóttur, frétta­stjóra, segir að frétta­stofan hafi ekki fengið boð frá WOW og að eng­inn full­trúi frá þeim væri í ferð­inni. „Frétta­stofan hefur haft það sem reglu síð­ustu ár að þiggja ekki boð í sam­bæri­legar ferðir,“ segir Rakel jafn­framt. 

Fjölmiðlakonur
Fjöl­miðla­konur Þórunn Elísabet Boga­dóttir aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans, Edda Her­manns­dóttir aðstoð­ar­rit­stjóri Við­skipta­blaðs­ins og Þór­hildur Þor­kels­dóttir frétta­kona hjá 365 miðlum.

Flugvöllurinn borgaði

„Alltaf þegar ný flug­fé­lög koma, sér­stak­lega alþjóð­leg, býður flug­völl­ur­inn flug­fé­lögum að bjóða blaða­mönnum að koma í svona ferð. Svo það var flug­völl­ur­inn sem borg­aði ferð­ina – ekki WOW air – og skipu­lagði alla ferð­ina,“ segir Svanhvít Frið­riks­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi WOW air, í sam­tali við Stundina en WOW byrj­aði að fljúga til Baltimore Washington International flug­vallar síð­ast­lið­inn föstu­dag. 

Að sögn Svan­hvítar bauð WOW öllum íslenskum fjöl­miðlum í ferð­ina, auk dönskum, frönskum, breskum og hol­lenskum fjöl­miðlum. Alls þáðu um þrjá­tíu blaða­menn boðið. Aðspurð hvort ferð­inni fylgi ein­hver skil­yrði af hálfu fjöl­miðla­fólks segir Svanhvít: „Nei. Þetta er bara nákvæm­lega eins og þegar fjöl­miðlum er boðið á blaða­manna­fund, þú ræður nákvæm­lega hvað þú gerir með það.“

Óþarflega mikið vináttusamband

Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 er þáttur fjöl­miðla tek­inn fyrir í sér­stökum kafla. Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar er sú að íslenskir fjöl­miðlar hafi brugð­ist hlut­verki sínu í aðdrag­anda hruns­ins. Þá hafi sumir við­skipta­f­rétta­menn ving­ast úr hófi fram við þá sem þeim var ætlað að fjalla um. „Að ein­hverju leyti staf­aði þessi lin­kind frétta­manna gagn­vart við­skipta­mönnum af því að mynd­ast hafði óþarf­lega mikið „vin­áttu­sam­band við umfjöll­un­ar­efnið“. Þessi nánu tengsl sköp­uð­ust sum­part með því að við­skipta­f­rétta­menn tóku þátt í kynn­ing­ar­ferðum þar sem „alls kyns menn úr við­skipta­líf­inu [...] voru með í för og það var hægt að spjalla við þá óform­lega í ein­hverjum kok­teilum“,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni. Þá er haft eftir Sigmundi Erni Rún­ars­syni, sem þá var yfir frétta­sviði Stöðvar 2, að honum hafi ofboðið hvað sumir við­skipta­f­rétta­menn „voru svona inn­vikl­aðir í [...] sam­kvæmislíf“ útrás­ar­vík­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár