Finnsk kona segir frá óviðeigandi hegðun Helga Hjörvars

Finnsk kona lýsir óvið­eig­andi sam­skiptum Helga Hjörvars á ráð­stefnu Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki árið 2012 í sam­tali við Stundina. Helgi Hjörvar var þá þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs.

Helgi Hjörvar, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.
Helgi Hjörvar, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Finnsk kona segir Helga Hjörvar, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, hafa verið óvið­eig­andi í sam­skiptum en hún hitti hann á ráð­stefnu Norð­ur­landa­ráðs í Helsinki árið 2012. „Mér varð brugðið þegar hann gaf í skyn að hann gæti haft áhrif á starfs­frama minn hjá Norð­ur­landa­ráði um leið og hann leit­að­ist eftir kyn­ferð­is­legu sam­neyti við mig,“ segir konan í sam­tali við Stundina en umfjöllun um málið birt­ist á miðl­inum í dag.

Helgi Hjörvar var formaður Íslandsdeildar þegar atvikið átti sér stað

Í umfjöllun Stund­ar­innar kemur fram að konan hafi verið á þrí­tugs­aldri þegar atvikið átti sér stað og að hún hafi farið á fund Norð­ur­landa­ráðs á vegum ung­liða­hreyf­ingar finnsks stjórn­mála­flokks. Helgi var for­maður Íslands­deildar ráðs­ins á þessum tíma en hafði tveimur árum áður gegnt emb­ætti for­seta Norð­ur­landa­ráðs. Guðrún Jóna Jóns­dóttir, sem var her­berg­is­fé­lagi finnsku kon­unnar í Helsinki, stað­festir í sam­tali við Stundina að konan hafi komið grát­andi til sín eftir sam­skiptin við Helga. „Hún virt­ist hafa orðið fyrir miklu áfalli, hún var hrædd og óör­ugg og grét,“ segir Guðrún.

Helgi Hjörvar var for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs á árunum 2009 til 2013 og for­maður þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar frá 2013 til 2016.

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir að málið hafi verið borið upp á stjórn­ar­fundi Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2016 en að Helgi Hjörvar hafi þver­tekið fyrir að hafa hegðað sér ósæmi­lega. Í ljósi þess að ekki var kvartað með form­legum hætti undan hátt­semi Helga og konan sem átti í hlut vildi ekki koma fram undir nafni eða aðhaf­ast sér­stak­lega vegna máls­ins taldi flokks­for­ysta Sam­fylk­ing­ar­innar sig lítið geta gert.[adspot]

Helgi bauð konunni upp á hótelherbergi

Stundin hafði upp á finnsku kon­unni eftir ábend­ingar um málið og féllst hún á að segja blað­inu frá sam­skiptum sínum við Helga. Stundin reyndi ítrekað að ræða um málið við Helga Hjörvar en hann hefur ekki svarað.

Konan segir frá því, í sam­tal­inu við Stundina, hvernig hún hitti Helga á karíók­bar. Hún seg­ist sjálf hafa verið edrú en Helga dálítið drukk­inn en samt við­kunn­an­legan. „Þegar leið á kvöldið spurði Helgi hvort ég gæti hjálpað honum á hót­elið sitt. Við gætum rölt þangað og ég gæti þá virt fyrir mér borg­ina um leið; þetta yrði smá vett­vangs­ferð. Á end­anum varð samt úr að við tókum leigu­bíl,“ segir konan.

Konan segir að þegar á hót­elið var komið hafi Helgi gengið hratt með sér í gegnum lobbíið. „Mér leið skringi­lega og það var líka eins og hann væri dálítið skömmustu­legur og vildi ekki að sæist til okkar. Ég studdi hann alveg upp að hót­el­her­bergi.“ Helgi hafi þá boðið kon­unni inn á hót­el­ber­bergi og boðið henni upp á djús. Konan segir frá því hvernig henni datt í hug að þau gætu spjallað um póli­tík­ina á Íslandi en hún segir Helga hafa ekki verið spenntar fyrir því. „Hann vildi frekar vita hvernig fram­tíð ég sæi fyrir mér. Hann spurði hvað ég vildi vinna við og nefndi stöður hjá Norð­ur­landa­ráði, hvort ég væri til dæmis spennt fyrir rit­ara­stöðu. Mér fannst hann gefa í skyn að hann gæti, sem áhrifa­maður í Norð­ur­landa­ráði, haft áhrif á fram­tíð mína á þessum vett­vangi.“

Helgi nuddaði konuna og fór að kyssa hana þangað til hún gaf honum skýr merki um að hætta

Konan segir að talið hafi síðan beinst að blindu fólki og að hún hafi sagt honum frá gömlum blindum manni frá heima­slóðum sínum sem nuddar fólk gegn hóf­legri greiðslu. Helgi hafi þá stungið upp á því að þau myndu nudda hvort annað. „Ég lét til leið­ast og vildi þá byrja á að nudda hann. Þegar röðin kom að honum að nudda mig sagð­ist hann ekki geta gert það nema ég færi úr kjólnum. Mér fannst það dálítið óþægi­legt en gerði það samt.“

Konan segir að í kjöl­farið hafi Helgi gerst ágeng­ari, beygt sig yfir hana og farið að kyssa hana. „Ég fékk óþægi­lega til­finn­ingu í mag­ann og mér fannst eitt­hvað rangt við það sem var að ger­ast, svo ég gaf honum skýr merki um að hætta.“

Beðin um að segja engum frá

Konan segir að Helgi hafi beðið hana um að verja nótt­inni hjá sér en hún hafnað því. „Hann lagði áherslu á það við mig, áður en ég fór, að ég mætti ekki segja neinum frá því sem hefði gerst á milli okkar. Svo rétti hann mér 20 evra seðil og sagði: Gjörðu svo vel, þetta er fyrir leigu­bílnum. Mér leið eins og vænd­is­konu, að taka við pen­ingum af manni undir þessum kring­um­stæðum. Ég fann leigu­bíl og komst heim fyrir 12 evrur en sagði bíl­stjór­anum að hirða afgang­inn því ég gat ekki hugsað mér að halda eftir pen­ing­unum.“

Konan segir að sér hafi liðið óþægi­lega yfir því að Helgi skyldi tala um starfs­mögu­leika hennar hjá Norð­ur­landa­ráði í sömu andrá og hann reyndi að eiga kyn­ferð­is­legt sam­neyti við hana. Stundin bendir á að á þessum tíma hafi Helgi notið virð­ingar innan Norð­ur­landa­ráðs, hafi verið for­seti ráðs­ins tveimur árum áður og á þessum tíma­punkti for­maður Íslands­deild­ar­innar.

„Mér fannst svo skrítið að þetta væri veru­leik­inn árið 2012, að við værum enn á þessum stað,“ segir konan „Hann sagði að við yrðum að halda þessu okkar á milli, eins og þetta væri ein­hvers konar leynd­ar­mál sem tengdi okkur saman. Mér leið eins og ef ég segði ein­hverjum frá þá myndi ég aldrei hafa mögu­leika á því að fá starf hjá Norð­ur­landa­ráði.“

Samfylkingunni barst ábending um málið árið 2016

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir að þegar Helgi bauð sig fram til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2016 hafi trún­að­ar­maður í flokknum leitað til Árna Páls Árna­sonar, þáver­andi for­manns flokks­ins, og greint honum frá Helsinki-mál­inu auk orðs­róms um annað sam­bæri­legt mál. Árni Páll, sem hafði á þessum tíma til­kynnt að hann gæfi ekki kost á sér til áfram­hald­andi for­mennsku, hafi þá aflað upp­lýs­inga um málin og kallað Helga á sinn fund ásamt þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Sam­fylk­ing­ar­innar, Krist­jáni Guy. Þeir hafi hvatt Helga ein­dregið til að draga for­manns­fram­boð sitt til baka en Helgi hafi ekki látið segj­ast.

Eftir að Oddný Harð­ar­dóttir vann for­manns­kjörið spurð­ist fljótt út að Helgi ætl­aði að sækj­ast eftir öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Kjartan Val­garðs­son var á þessum tíma for­maður full­trúa­ráðs flokks­ins í borg­inni. Samkvæmt umfjöllun Stund­ar­innar afl­aði Kjartan upp­lýs­inga um máls­at­vikið eftir að honum var greint frá atburð­inum í Helsinki og boð­aði til fundar með Helga Hjörvari og Páli Hall­dórs­syni, for­manni kjör­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar.

Kjartan og Páll hafi þá beðið þá Helga um að hætta við að bjóða sig fram enda hafi þeir litið svo á að málið væri tif­andi tíma­sprengja fyrir flokk­inn, sam­kvæmt umfjöllun Stund­ar­innar. Sagt er að Helgi hafi ekki tekið það í mál og vísað öllum ásök­unum um óeðli­lega hátt­semi í Helsinki á bug. 

Enn fremur kemur fram í umfjöllun Stund­ar­innar að eftir fund­inn hafi Helgi fund­aði með Oddnýju Harð­ar­dóttur og tjáð henni að hann ætl­aði að halda fram­boði sínu til streitu, enda hefði hann fullan rétt til að bjóða sig fram. Helgi bauð sig síðan fram og lenti í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður en missti þing­sætið sitt í kosn­ing­unum þar sem flokk­ur­inn beið afhroð.

Stundin spurðist fyrir um málið fyrir tveimur árum

Fyrir tveimur árum spurð­ist Stundin fyrir í Sam­fylk­ing­unni um hvort að stjórn flokks­ins hefði borist kvart­anir vegna meints kyn­ferð­is­legs áreitis Helga Hjörvars. Kristján Guy Burgess þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar sagði Stund­inni að flokknum hafði borist ábend­ingar í þessa veru og sagði að eins og alltaf væru þær teknar mjög alvar­lega. Í umfjöllun Stund­ar­innar segir að á þeim tíma hafi blaðið ekki náð tali af kon­unni og því talið að fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar væru of óljósar til að hægt væri að fjalla með ábyrgum hætti um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár