Frumvarp um almennar íbúðir byggt á stefnu ASÍ

ASÍ og SA eru sammála um að stefna stjórnvalda byggist á stefnu ASÍ, en eru ósammála um hvort það sé gott eða ekki.
ASÍ og SA eru sam­mála um að stefna stjórn­valda bygg­ist á stefnu ASÍ, en eru ósam­mála um hvort það sé gott eða ekki. Mynd: Birgir Þór

Íslensk stjórn­völd hafa gert stefnu Alþýðu­sam­bands Íslands að sinni eigin stefnu í hús­næð­is­málum, segir Þor­steinn Víglunds­son fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins í umsögn sam­tak­anna um frum­varp um almennar íbúðir. Auk þess hefur félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neytið haft athuga­semdir SA um frum­varpið að engu.

Frumvarp um almennar íbúðir er eitt fjög­urra hús­næð­is­mála­frum­varpa sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur lagt fram á Alþingi í vetur. Frum­varpið er hluti af lof­orðum rík­is­stjórn­ar­innar til að greiða fyrir gerð kjara­samn­inga í fyrra. Frum­varp­inu er ætlað að leggja grunn að nýju félags­legu leigu­í­búða­kerfi, sem á að fjár­magn­ast með stofn­fram­lögum ríkis og sveit­ar­fé­laga, eða með beinum vaxta­nið­ur­greiðslum. Eygló hefur sagt að stuðn­ingur við frum­varpið sé tryggt, en stefnt er að því að afgreiðslu þess verði lokið á Alþingi um mán­aða­mótin.

Vilja íbúðirnar ekki eins almennar

Samtök atvinnu­lífs­ins setja fram ýmsar athuga­semdir við frum­varpið, og telja ekki heppi­legt að hið opin­bera beiti miklum inn­gripum á hús­næð­is­mark­aði frekar en öðrum mörk­uðum. Samtökin segja íslensk stjórn­völd hafa ítrekað komið á fyr­ir­komu­lagi sem hafi verið ætlað að búa efna­litlu fólki öryggi í hús­næð­is­málum, í sam­vinnu við sveit­ar­fé­lög og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Oftar en ekki hefur þurft að breyta ríkj­andi fyr­ir­komu­lagi, m.a. til að bregð­ast við mik­illi eft­ir­spurn eftir nið­ur­greiddu hús­næði og vax­andi kostn­aði hins opin­bera því sam­fara.“ Það þurfi að vanda til und­ir­bún­ings á nýju fyr­ir­komu­lagi eigi það að verða lang­líf­ar­ara en þau kerfi sem hingað til hafa verið sett á lagg­irnar. 

SA segir að fyr­ir­komu­lagið um stofn­styrki sé flókið, í stað þess að mót­aður sé almennur rammi um þau skil­yrði sem hið opin­bera telji þurfa svo tryggt sé að lág­tekju­fólk eigi kost á hús­næði á hóf­legum leigu­kjörum. Þá telja sam­tökin að aðgang­ur­inn að leigu­í­búðum sé alltof rúmur sam­kvæmt frum­varp­inu og með því gæti nálægt 40% þjóð­ar­innar fengið aðgang að félags­legu hús­næði. „Þessi aðgangur ætti að vera mun tak­mark­aðri, t.d. bund­inn við neðstu 15-20%.“ Þessi aðgangur muni skapa mikla eft­ir­spurn eftir íbúðum, langt umfram það sem í boði verði.

Aðrir jákvæðari gagnvart frumvarpinu

Flestir aðrir umsagn­ar­að­ilar eru jákvæð­ari gagn­vart frum­varp­inu, þrátt fyrir að flestir hafi ein­hverjar athuga­semdir við það. ASÍ segir í sinni umsögn, rétt eins og SA, að frum­varpið byggi í grund­vall­ar­at­riðum á stefnu sam­bands­ins, sem hafi verið mörkuð haustið 2012. Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, lýsir yfir ein­dregnum stuðn­ingi sam­bands­ins við frum­varpið í umsögn ASÍ um það.

Af öðrum aðilum vinnu­mark­að­ar­ins skil­aði BSRB einnig umsögn um frum­varpið, þar sem kemur fram að banda­lagið bindi miklar vonir við að fram­boð leigu­hús­næðis fyrir launa­fólk auk­ist veru­lega verði frum­varpið að lögum. Það sé mik­il­vægt að teg­kju­lágar fjöl­skyldur, sem hingað til hafi ekki átt kost á því, fái aðgang að öruggu leigu­hús­næði á við­ráð­an­legu leigu­verði. Það sé rétt að kveða á um það með skýrum hætti að leiga verði ekki umfram 20-25% af tekjum þessa fólks.

Þingmenn Sjálfstæðisflokks með efasemdir

Þing­hópur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur margt að athuga við hús­næð­is­frum­vörp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Þetta segir Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við Morg­un­blaðið í dag. Áður hafði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins gagn­rýnt frum­vörpin í fjöl­miðlum og sagt að hún telji að ekki muni allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kjósa með þeim.

Ragn­heiður segir að það hafi alltaf verið vitað að stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hús­næð­is­málum sé sér­eign­ar­stefna. „Sú stefna að það eigi að gera fólki kleift að eign­ast sínar eigin íbúðir. Við höfum rætt ýmis­legt í þá veru, eins og sér­eign­ar­sparnað og sér­stakan sparnað, og að tekið verði mið með öðrum hætti af leigu­tekjum, sem fólk hefur greitt í mörg ár, inn í greiðslu­matið. Það er ýmis­legt þar sem við höfum ekki síður viljað leggja áherslu á, en að fara í þann far­veg að beina fólki út á leigu­mark­að­inn[...]Við höfum margt við þetta að athuga. Við viljum leggj­ast yfir þetta, en það þýðir ekki að það verði ekki hægt að kom­ast að sam­komu­lagi um að hlut­irnir verði afgreiddir með einum eða öðrum hætti."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár