Íslandspóstur selur Samskipti

Íslands­póstur er að und­ir­búa sölu­ferli á Sam­skiptum en salan hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar kom fram að rekstur dóttur- og hlut­deild­ar­fé­laga hafi ekki skilað Íslands­pósti þeirri sam­legð og arð­semi sem stefnt var að.

Íslands­póstur er að und­ir­búa sölu­ferli á prent­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu Sam­skiptum. Salan er hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins sem greint var frá á dög­unum. For­stjóri Íslands­póstur segir að fyr­ir­tæki líti nú svo á að prent­smiðju­rekstur sé ekki hluti af kjarna­starf­semi Íslands­póst og því hafi verið ákveðið að setja fyr­ir­tækið á sölu.

Prentsmiðjurekstur ekki hluti af kjarnastarfsemi

Íslands­póstur keypti Sam­skipti ehf. árið 2006. Kaupverð var ekki gefið upp en nið­ur­fært kaup­verð í árs­reikn­ingum 2009 til 2011 nam 131 milljón. Í til­kynn­ingu frá Íslandspósti segir að fyr­ir­tækið muni fá óháða mats­að­ila til að verð­meta félagið og taka saman sölugögn en að allt kapp sé lagt á að ferlið taki sem skemmstan tíma og mun auglýsing um söluferlið birt­ast á næstu vikum. [adspot]

Birgir Jónsson, for­stjóri Íslands­pósts, segir að Sam­skipti hafi verið keypt þegar aðstæður voru aðrar og Íslands­póstur hafi verið að leita eftir við­skipta­tæki­færum til að styrkja sig til fram­tíðar. „Við lítum ein­fald­lega svo á núna að prent­smiðju­rekstur sé ekki hluti af kjarna­starf­semi Íslands­pósts og höfum því ákveðið að setja fyr­ir­tækið á sölu.“

Dóttur- og hlutdeildarfélög ekki skilað þeirri samlegð og arði sem að var stefnt

[links]Íslands­póstur til­kynnti á dög­unum að fyr­ir­tækið væri í alls­herjar end­ur­skipu­lagn­ingu og að mikið hag­ræð­ing­ar­ferli væri farið af stað innan félags­ins. Þar á meðal var fækkað í fram­kvæmda­stjórn félags­ins. Sú ákvörðun að selja Sam­skipti er liður í þeirri aðgerð.

Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Íslands­póst til Alþingis sem birt var í júní kom fram að fjár­fest­ingar Íslands­póst í dóttur- og hlut­deild­ar­fé­lögum hafi ekki skilað félag­inu þeirri sam­legð og arði sem að var stefnt.

Í des­em­ber árið 2018 var dótt­ur­fé­lag Íslands­pósts, ePóstur, af­skráð úr ­fyr­ir­tækja­skrá og inn­limað inn í Íslands­póst­. Í jan­úar á þessu ári var síðan greint frá því að Íslands­póstur hlaut ekki sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins áður en ePóstur var sam­einað móð­ur­fé­lag­inu en í sátt sem fyr­ir­tækið gerði við Sam­keppn­is­eft­ir­litið í febr­úar 2017 segir að ekki megi sam­eina dótt­ur­fé­lög móð­ur­fé­lag­inu nema sam­þykki eft­ir­lits­ins liggi fyr­ir.

Félag atvinnu­rek­enda hefur verið ötult við að gagn­rýni að Íslands­póstur hafi farið inn á mark­aði óskylda póst­þjón­ustu líkt og sæl­gæt­is­sölu og prent­smiðju­rekstur. Félag atvinnu­rek­enda hefur einnig nefnt flutn­ings­miðlun sem óskyldan rekstur. Félagið telur það vera brot sam­keppn­is­lögum þar sem sam­keppn­i­starf­semin sé nið­ur­greidd með tekjum af einka­rétt­ar­rekstri.

„Það er mjög áleitin spurn­ing hvort eig­enda­­stefnu rík­­is­ins vegna opin­berra hluta­­fé­laga sé ekki ábóta­vant. Þar segir að stjórnir slíkra félaga skuli leit­­ast við að efla sam­keppni en stjórn Íslands­­­pósts virð­ist mis­­skilja það sem svo að fyr­ir­tækið skuli fara í sam­keppni við allt sem hreyf­­ist,“ sagði Ólafur í sam­tali við Frétta­blaðið í nóv­em­ber í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár