Gallerí: Sögulegt samkomulag, Plútó og eldgos

Geimfar hefur aldrei kom­ist nærri Plútó og í dag þegar New Horizons-könn­un­ar­farið flaug nærri þess­ari ystu plánetu Sól­kerf­is­ins í dag. Það þótti einnig gleði­efni í morgun að stærstu iðn­ríki heims næðu sam­komu­lagi við Íran um kjarn­orku­á­ætlun þeirra.

Eldgos á Jövu í Indónesíu heldur hins vegar áfram að gera fólki lífið leitt á eyj­unni en Raung-fjall hefur nú gosið síðan í júní. Í Jemen þarf fólk enn að grafa ást­vini sína sem farist hafa í loft­árásum Sádí-Araba og banda­manna þeirra.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Raun-fjall spúir ösku og hrauni upp í loftið á eyj­unni Jövu í Indónesíu. Yfirvöld á Jövu hafa þegar þurft að loka fjórum flug­völlum vegna eld­goss­ins sem staðið hefur síðan 24. júní. Nú hefur við­vör­un­ar­stigi verið lyft á næst hæsta stig. (Mynd: EPA)[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Palest­ínu­menn eyða tíma á Gaza-strönd í Ramadan-mán­uði. Þá fasta múslimar á meðan sólin skín. Á kvöldin eru haldnar veislur fram á nótt, Guð lof­aður og lesið úr Kór­an­inum í faðmi fjöl­skyldu og vina.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Íranir hafa kom­ist að sam­komu­lagi við stærslu iðn­veldi heims að hægja á og minnka umfang kjarn­orku­á­ætl­unar sinnar gegn því að við­skipta­þving­unum verði létt af land­inu. Hér sjást Federica Mog­her­ini, utan­rík­is­mála­stjóri ESB, og Javad Zarif, utan­rík­is­ráð­herra Íran, kjósa um málið í Aust­ur­ríki í morgun.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Jarð­ar­för 24 fórn­ar­lamba loft­árása Sádí-Araba og banda­manna þeirra var gerð í Sana'a í Jemen í dag. Fólkið féll í árás sem gerð var í gær en sam­kvæmt fregnum jem­enskra fjöl­miðla lét­ust að minnsta kosti 30 manns og 45 aðrir særð­ust.[/caption]

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Annette Tombaugh-Sitze, dóttir Clyde Tombaugh sem uppgvötaði Plútó fyrstur allra árið 1930, fagn­aði í höf­uð­stöðvum leið­ang­urs New Horizons-könn­un­ar­fars­ins fram hjá þess­ari ystu plánetu Sól­kerf­is­ins. Þetta er fyrsti geim­leið­angur mann­kyns til Plútó og Kuiper-belt­is­ins yst í Sól­kerf­inu.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár