„Mjög fast“ gripið inn í með 10 manna fjöldatakmörkunum

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir verða meg­in­reglan næstu þrjár vik­urnar. Marg­vís­legar tak­mark­anir verða á starf­semi í sam­fé­lag­inu vegna auk­innar útbreiðslu kór­ónu­veirunnar. Hart er stigið niður, til að aðgerðir standi skemur, sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Katrín Jakobsdóttir á fundinum í dag.
Katrín Jak­obs­dóttir á fund­inum í dag. Mynd: Skjáskot/RÚV

Nið­ur­staða rík­is­stjórn­ar­innar á fundi sínum í dag var sú að grípa „mjög fast“ inn í og beita hörðum aðgerðum til þess að stemma stigu við útbreiðslu breska afbrigðis kór­ónu­veirunnar inn­an­lands. Marg­vís­legri starf­semi í sam­fé­lag­inu verður lokað næstu þrjár vik­urnar.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lögðu áherslu á að það, í blaða­manna­fundi í Hörpu, að ákveðið hefði verið að grípa til þess­ara hörðu aðgerða í von um að þær stæðu skemur yfir.

„Með því að stíga fyrr inn og með því að stíga fastar til jarðar getum við látið þetta ástand standa skemur,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Hún sagði þetta ein­dregna nið­ur­stöðu rík­is­stjórn­ar­innar og sú nið­ur­staða væri und­ir­byggð af reynsl­unni frá því í haust, er aðgerðir voru hertar í skrefum. Ákvörð­unin væri byggð á miklum sam­ræðum við sótt­varna­lækni og til­lögum hans.

„Við ótt­umst það að ef ekki er gripið inn í núna gæti það komið verr niður á rekstr­ar­að­ilum með því að við þyrftum að ganga lengra síðar og ekki bara ganga lengra heldur í lengri tíma,“ sagði fjár­mála­ráð­herra við RÚV að fundi loknum.

Íþróttastarf, sundlaugar, sviðslistir og barir í lás

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti þær aðgerðir sem gripið er til. Nýjar reglur taka gildi á mið­nætti í kvöld og gilda um allt land næstu þrjár vikur. Ljóst er að þær munu hafa mikil og heft­andi áhrif á dag­legt líf lands­manna.

Tíu manna fjölda­tak­mark­anir verða meg­in­reglan, en 30 manns mega sækja athafnir á vegum trú­fé­laga. Einungis börn fædd 2014 og síðar eru und­an­þegin þessum tak­mörk­unum.

Sund­laugar og lík­ams­rækt­ar­stöðvar verða lok­aðar. Sviðs­listir þurfa að hætta starf­semi á ný. Íþrótta­starf verður sömu­leiðis óheim­ilt, bæði hjá börnum og full­orðnum.

Barir og skemmti­staðir þurfa að loka á ný, en veit­inga­staðir mega vera opnir til kl. 22 á kvöldin, með tak­mörk­unum.

Marg­vís­leg starf­semi verður þannig stöðvuð, en þó reyndar ekki starf­semi hár­greiðslu­stofa og snyrti­stofa og önnur álíka þjón­usta.

Grunn­skólum, fram­halds­skólum og háskólum verður lokað fram að páska­fríi. Leik­skólar verða áfram opnir.

[adspot]

Heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá því á fund­inum að tekin hefði verið ákvörðun um að hefja aftur bólu­setn­ingu með bólu­efn­inu frá AstraZeneca.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynntu þessar hertu aðgerðir á blaða­manna­fundi í Hörpu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár