Barið á ríkisstjórninni

Eins og við mátti búast gagn­rýndi stjórn­ar­and­staðan rík­is­stjórn­ina harð­lega í eld­hús­dags­um­ræðum. Greindi mátti mein­ing­ar­mun hjá stjorn­ar­flokk­unum, þá glögg­lega kæmi fram að sam­starfið hefði gengið vel til þessa.

Eld­hús­dags­um­ræð­urnar í gær­kvöldi voru um margt fyr­ir­sjá­an­legar. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir skutu á rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og sam­starf Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar, og drógu fram það sem blasir við mörgum: meiri­hlut­inn hangir á blá­þræði, eins manns meiri­hluta og mein­ing­ar­mun­ur­inn í mörgum málum er aug­ljós öllum. Segja má að stjórn­ar­and­staðan hafi barið á rík­is­stjórn­inni, eins og oft er gert í umræðum sem þessum, en for­ystu­fólk rík­is­stjórn­ar­flokk­anna tal­aði fyrir því góða sem náðst hefði fram, og spenn­andi tíma framundan.

En hvað stóð upp úr? Hvað má lesa út úr þessum umræðum? Hver var boð­skapur for­ystu­fólks flokk­anna?

Helstu atriðin sem blaða­maður punktaði hjá sér, við umræð­urnar, voru þessi eft­ir­far­andi:

1. Fyrst tók til máls Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, sem er aug­ljós leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unnar. Hún líkti rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu við dæmi­gert „eft­irpartý“ þar sem áhuga­leysið og þreytan væri alls­ráð­andi og hús­ráð­and­inn ekki heima. Skila­boðin eru skýr: rík­is­stjórnin stendur höllum fæti og anda­vana fædd, í reynd. Katrín sagði áherslur rík­is­stjórn­ar­innar sjást greini­lega í rík­is­fjár­mála­á­ætlun sem gerði ráð fyrir nið­ur­skurði, á nær öllum innviðum sam­fé­lags­ins þegar horft væri til hlut­falls sam­neysl­unnar af lands­fram­leiðslu. Þetta sagði hún sýna að jöfn­uður væri ekki í for­gangi hjá rík­is­stjórn­inni, heldur „frjáls­hyggju­kreddur“. Hún sagði fólkið í land­inu hafa marg­sýnt það að það hefði engan áhuga á einka­rekstri í heil­brigð­is­þjón­ustu og að fjársvelti frama­halds­skóla­stigs­ins væri til marks um að ein­beittan vilja rík­is­stjórn­ar­innar til að skera niður inn­viði en ekki byggja þá upp. Línurnar væru nokkuð skýrar, þegar kæmi að stjórn og stjórn­ar­and­stöðu í þessum efnum. Svandís Svav­ars­dóttir og Bjarkey Gunn­ars­dóttir hömr­uðu þetta sama járn. Svandís sagði nið­ur­læg­ingu Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar algjöra. Flokkur væru ekki að ná neinu fram sem lofað hefði verið fyrir kosn­ingar. Akkúrat engu.

2. Jón Gunn­ars­son, sam­göngu­ráð­herra, tal­aði fyrstur máli rík­is­stjórnar og lagði áherslu á að staða efna­hags­mála í land­inu væri þannig, að sjaldan eða aldrei hefði verið betri staða í land­inu. Kaup­mátt­ar­aukn­ing hefði verið mikil og stöðug, og sterk staða rík­is­sjóðs - ekki síst vegna þess hve vel var haldið á rík­is­fjár­málum á síð­asta kjör­tíma­bili (Þegar Bjarni Bene­dikts­son var fjár­mála­ráð­herra, hann var ekki meðal ræðu­manna) - væri und­ir­staðan fyrir kom­andi upp­bygg­ingu. Hann lagði áherslu á meg­in­lín­urnar í stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins; mik­il­vægi einka­fram­taks­ins, íhalds­sama hag­stjórn en um leið „skyn­sama“ auð­linda­nýt­ingu, þar á meðal upp­bygg­ingu stór­iðju og nýt­ingu sjáv­ar­auð­linda. Hildur Sverr­is­dóttir tal­aði fyrir umbyrða­lyndi í sinni ræðu og sagði að umræða um heil­brigð­is­mál væri of oft byggð á mis­skildum hug­tökum. Einka­rekstur ætti að vera sjálf­sagður hluti af heil­brigð­is­kerf­inu, líkt og væri raunin í mörgum löndum sem við berum okkur saman við.

3. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var harð­orður í garð rík­is­stjórn­ar­innar, og var sér­stak­lega umhugað um stöðu gengis krón­unnar og þá miklu styrk­ingu sem komið hefði fram að und­an­förnu (Banda­ríkja­dalur kostar nú 100 krónur). Hann sagði aug­ljósan mein­ing­ar­mun hjá rík­is­stjórn­ar­flokk­unum grafa undan efna­hags­stefn­unni, þar sem óljóst væri í raun hvernig hún væri. Hvað vill rík­is­stjórnin? spurði Sigurður Ingi. Þá gagn­rýndi hann einnig Seðla­banka Íslands fyrir að halda vöxtum of háum. Vaxta­muna­við­skipti væru nú orðin sýni­leg aftur og það kunni ekki góðri lukku að stýra. Þau hefðu átt sinn þátt í hrun­inu.

4. Birgitta Jóns­dóttir frá Pírötum tal­aði um sam­taka­mátt fólks­ins. Hún sagði það sjást vel á umræðum fólks á Facebook - ekki síst í 60 þús­und manna grúppu um Costco - að fólkið væri til­búið að taka mál í sínar hendur og þrýsta á um breyt­ingar sem þyrfti að ná í gegn. Þetta ætti ekki aðeins við um verð­lags­eft­ir­lit og sam­keppn­is­mál, heldur mætti vel hugsa sér við­líka umræðu um launa­málin sem framundan væru. „Lýðræðið krefst hug­sjóna, alúðar og bí­ræfni, eng­inn fékk nokkru sinni rétt­indi upp í hend­urn­ar, al­vöru mann­rétt­indi kröfð­ust bar­áttu og sam­stöðu. Við Pírat­ar vilj­um nýj­an jarð­veg, því það er ekki hægt að upp­ræta spill­ing­ar­rót­ina með því að krafsa bara í yf­ir­borðið,“ sagði Birgitta meðal ann­ars.

5. Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, var harð­orður í garð rík­is­stjórn­innar og sagði hana hafa svikið kjós­endur. Þar væri hægt að nefna margt til sög­unnar, en inn­viða­upp­bygg­ingin væri það sem helst mætti nefna. „Þegar horft er um öxl yfir vet­ur­inn eru stærstu von­brigðin þau að hafa horft upp á full­komið skiln­ings­leysi rík­is­stjórn­ar­inn­ar gagn­vart þeim sem minnst hafa á milli hand­anna, svik á stór­felldri upp­bygg­ingu inn­viða og al­gjört metn­að­ar­leysi þegar kem­ur að því að búa okk­ur und­ir þær stór­kost­legu breyt­ing­ar sem hand­an eru við hornið,“ sagði Logi. Hann sagði rík­is­stjórn­ina vera upp­tekna af því að hugsa um ein­hvern annan en almenn­ing í land­inu.

6. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tal­aði fyrir því að Ísland mark­aði sér stefnu í alþjóða­væddum heimi. Hann sagð­ist ekki vera í nokkrum vafa um að íslenskt sam­fé­lag myndi njóta góðs af því að tengja krón­una við gengi evr­unnar. Hann sagði einnig að það væru oft frammi raddir sem ótt­uð­ust allar breyt­ingar. Hann sagði breyt­ingar vera nauð­syn og að þær væru drif­kraft­ur­inn í því starfi að laga sam­fé­lagið að óhjá­kvæmi­legri þróun. „Núna segj­um við: Freki karl­inn ræður. Freki karl­inn sem engu vill breyta og allt þyk­ist vita. Hann seg­ir: „Þó að allt stefni í óefni skul­um við aldrei, aldrei víkja frá þeirri stefnu sem ég hef ákveðið að sé rétt.“ Svo ítrek­aði hann rauða þráð­inn í starfi Við­reisnar: að taka almanna­hags­muni fram yfir sér­hags­muni í öllum málum.

7. Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði stjórn­málin vera mála­miðl­un­ar­vinnu, að sú rík­is­stjórn sem nú sæti hefði orðið til upp úr erf­iðum við­ræðum flokk­anna. Björt fram­tíð hefði mik­il­vægu hlut­verki að gegna í rík­is­stjórn­inni, og að hún legði áherslu á ábyrga fram­göngu. Það væri ekki hægt að gera kröfu um að ná fram öllu því flokk­ur­inn vildi, en sam­starfið væri gott og það væri ekki sjálf­sagt mál. „Það er stund­um sagt að það þurfti tvo til að dansa tangó, en það þarf fleiri en tvo til að dansa á þingi. Það er hins veg­ar stund­um erfitt að halda takti.“ Þá sagði hann Ísland geta lagt mikið af mörkum á ýmsum sviðu til alþjóða­sam­starfs, og nefndi sér­stak­lega heil­brigð­is­málin. Þetta hefði hann reynt sjálfur á fundi Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar (WHO). Þrátt fyrir allt, þá hefðum við margt gott fram að færa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár