Löggan hvatti mig til að drekka undir stýri svo hann gæti „tekið mig næst“

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir segir frá óskemmti­legri reynslu af sam­skiptum við lör­geglu. Herferð gegn hvers­dags­legu mis­rétti slær í gegn á Twitter. Færsl­urnar streyma inn undir #6dags­leik­inn.

Ekkert lát er á vin­sældum Twitter-her­ferðar gegn hvers­dags­legu kynja­mis­rétti, #6dags­leik­inn. Þar hafa fjöl­margir tjáð reynslu sína af hvers­dags­legu mis­rétti, nú síð­ast rit­höf­und­ur­inn og bar­áttu­konan Þórdís Elva Þor­valds­dóttir sem greindi frá óvið­eig­andi fram­göngu lög­reglu­manns: „Þegar ég var látin blása og reynd­ist edrú en löggan hvatti mig til að drekka undir stýri svo hann gæti „tekið mig næst“.“ #6dags­leik­inn.

Fleiri hafa tekið dæmi af sam­skiptum við lög­regl­una. Ásdís Hjálms­dóttir sagði frá sím­tali sem sat í henni: „Símtal frá lögg­unni eftir að stelpu sem ég skutl­aði niðri bæ var nauðgað: Var hún mjög drukkin? Hvernig var hún klædd? #6dags­leik­inn“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir lýsti óskemti­legri reynslu frá því að hún starf­aði sem lög­reglu­kona: „Lög­reglu­konur eru alltaf svo leið­in­legar“ eftir að hafa sagst langa að taka mig „aft­an­frá“ þegar ég var að stöðva hann fyrir brot #6dags­leik­inn“

„Lyftingar eru bara fyrir karlmenn og trukkalessur“

Annars hafa dæmin verið jafn ólík og þau eru mörg. Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir, eða Ragga nagli eins og hún er oft­ast kölluð, tók saman nokkur mis­mun­andi dæmi um hvers­dags­legt mis­rétti sem hún hefur orðið fyrir. Eins og því þegar hún var ítrekið klipin í rass­inn þegar hún gekk á undan for­stjóra spít­ala upp stiga í jóla­boði.

„„Í partýi var vinur Naglans spurður: “Hver á þessa?” og benti síðan á Naglann.

„Af hverju áttu ekki börn?“ En Nagla­bónd­inn fær ekki sömu spurn­ingu.

„Hend­urnar á þér eru eins og á karl­manni.“

„Það er nú ekki mjög kven­legt að rymja svona í rétt­stöðu­lyftu.“

Labba heim úr rækt­inni í þröngri brók og vera flautað á af verka­mönnum.

Á djamm­inu: „Hey þú! Viltu ríða?“

Ganga upp stiga á undan for­stjóra Bispe­bjerg-spít­ala í jóla­gleði og vera klipin nokkrum sinnum í rass­inn á leið­inni.

„Ættirðu ekki að finna þér eitt­hvað fág­aðra sport? Lyft­ingar eru bara fyrir karl­menn og trukkalessur“

„Kallinn þinn hefur aldeilis keypt kött­inn í sekknum,“ þegar Naglinn sagð­ist ekki strauja skyrtur bónd­ans, heldur gerði hann það sjálfur.

Undir umræðu um brjósta­gjöf á almanna­færi: „Þú þarft nú ekki að hafa áhyggjur, það er hvort eð er ekk­ert að sjá hjá þér.“

Já, hann er heldur betur hressandi hvers­dags­leik­inn.
En hann gerir okkur kvensurnar bara sterk­ari.

'Girl power' alveg niður í görn.“

„Yfirmaður minn glottir og byrjar „í djóki“ að losa beltið“

Hanna María var heldur óheppin með yfir­mann: „Var verk­efna­laus í vinn­unni og spurði hvort ég gæti gert eitt­hvað. Yfir­maður minn glottir og byrjar „í djóki“ að losa beltið. #6dags­leik­inn“

Sonja Sigríður segir: „Þegar ókunn­ugur maður talar við vin sinn, bendir á mig og segir svo: „Þessa myndi ég til dæmis alveg mis­nota kyn­ferð­is­lega.“ #6dags­leik­inn“

Alma Ágús­dóttir bendir á algenga hugs­ana­villu: „Þegar „ég á kærasta“ er talið gil­ara svar en „nei takk“ því strákar virða aðra stráka meira en rétt minn til að segja nei #6dags­leik­inn.“

Sæunn Jódís segir frá því þegar kyn­ferð­is­of­beldi gegn dreng var ekki tekið alvar­lega: „Þegar stelpa nauðg­aði bróður vin­konu minnar þegar hann var dauða­drukk­inn og öllum fannst það fyndið. #6dags­leik­inn“

 

„Skrifarðu fréttirnar sem þú gerir alveg sjálf?“

María Lilja Þrast­ar­dóttir er ein þeirra sem stendur að baki her­ferð­inni og hefur tekið nokkur dæmi af hvers­dags­legu mis­rétti sem hún hefur orðið fyrir. Eins og þetta: „Þegar Séð og heyrt reyndi að gera lítið úr brjósta­bylt­ing­unni. #6dags­leik­inn." Tíma­ritið birti frétt um „flott­ustu femínista­brjóstin,“ í kjöl­far #freethenipple-her­ferð­ar­innar.

Þór­hildur Þor­kels­dóttir, frétta­kona á Stöð 2 og Brestum, segir:  „Skrif­arðu frétt­irnar sem þú gerir alveg sjálf?“ hef ég margoft verið spurð að, bæði af konum og körlum. #6dags­leik­inn“

Kolbrún Björns­dóttir, fyrr­ver­andi dag­skrár­gerð­ar­kona, fór nýlega að stunda hjól­reiðar af miklum krafti og vinnur nú í hjóla­búð: „Þegar full­orð­inn maður bað mig, eftir að hann tjáði mér að konur ættu ekki að vinna í hjóla­búðum, að hjóla ekki fram úr sér. Þá yrði hann að hætta að hjóla. ‪#‎6dags­leik­inn‬“

Eva Bjarna­dóttir var nýverið ráðin aðstoð­ar­maður Árna Páls Árna­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Af því til­efni var stutt umfjöllun um hana á bak­síðu Frétta­tím­ans á föstu­dag: „Er á bak­síðu Frétta­tím­ans í dag því ég var að fá nýtt starf. Fyr­ir­sögnin hefði aldrei verið "Ókvæntur en trú­lof­aður". ‪#‎6dags­leik­inn‬“ 

Tweets about 6dags­leik­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár