Spyr hvernig Ragnheiði Elínu „datt það í hug“ að ráða Hörð án auglýsingar

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, segir að litið hafi verið til for­dæmis frá síð­ustu rík­is­stjórn þegar tekin var ákvörðun um það að ráða Hörð Þór­halls­son sem fram­kvæmda­stjóra nýrrar Stjórn­stöðvar ferða­mála án aug­lýs­ingar.

Þetta sagði Ragn­heiður Elín þegar Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði hana um það hvers vegna Hörður hefði verið ráð­inn. „Hvernig datt ráð­herr­anum það í hug að gera þess­ari mik­il­vægu atvinnu­grein það að leggja af stað í þennan leið­angur með því að ráða yfir þetta verk­efni, án aug­lýs­ingar, aðila fyrir tvær millj­ónir króna á mán­uði? Verra upp­haf á leið­angri er ekki hægt að hugsa sér,“ sagði Katrín.

Ragn­heiður Elín svar­aði ekki þeirri spurn­ingu beint. „Varðandi fram­kvæmda­stjór­ann þá er þetta sam­starfs­vett­vangur rík­is­ins og grein­ar­innar eins og hér kom fram og þá er því til að svara kannski fyrst og síð­ast að það var vilji okkar til þess að láta þetta verk­efni fara strax af stað að finna hent­ugan aðila og það kom ekki síður frá sam­tökum ferða­þjón­ust­unnar sú krafa,“ sagði hún.

„Ég verð að segja að það var meðal ann­ars litið til for­dæma sem voru sett hér á síð­asta kjör­tíma­bili þar sem að sam­starf ríkis og atvinnu­grein­ar­innar í verk­efni sem að fyr­ir­spyrj­andi þekkir vel þar sem að stjórn­ar­for­maður Inspired by Iceland var ráð­inn án aug­lýs­ingar og samn­ingar við hann fram­lengdir ítrekað án aug­lýs­ingar. Ég reyndar breytti því verk­lagi og núna erum við með það inn­an­húss en þetta er sann­ar­lega for­dæmi sem litið var til í þessu sam­hengi,“ sagði Ragn­heiður Elín.

Ráðning Harðar hefur verið umdeild, enda var hann ráð­inn til starfs­ins án þess að það væri aug­lýst, er með tvær millj­ónir króna á mán­uði, auk þess sem hann hefur ekki reynslu af ferða­málum. Hann hefur und­an­farin ár starfað hjá Actavis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár