Kínverski boltinn: Sveitapiltsins draumur

Það er ekki hægt að segja annað en að fyr­ir­sagnir morg­un­blað­anna hér í Peking hafi verið nokkuð brú­tal föstu­dag­inn 13. nóv­em­ber.

„Bhutan lagt 12:0“

Svolítið í anda Indriða G. í 79 af stöð­inni „Annað hvort ert þú skyttan eða þú ert fugl­inn.“ Knappt, hnit­miðað, grimmt.

Já eða Hemingways.

Flestir tengja Ernest Hemingway senni­lega við bóhemlíf í París og stríðs­brölt á Ítalíu og Spáni. Samband hans við hinn kín­verska heim er síður þekkt, a.m.k. á Vest­ur­löndum.

Reyndar mun hann aldrei hafa verið sér­lega spenntur fyrir Kína. Segja má að hann hafi verið dreg­inn þangað hálf­nauð­ugur í upp­hafi árs 1941.

Kína 1941

Í upp­hafi árs 1941 hélt hinn frægi stríðs­frétta­rit­ari Marta Gellhorn í rann­sókn­ar­leið­angur til Aust­ur­landa fjær. Hún skrif­aði fyrir banda­ríska tíma­ritið Collier og átti nú að fjalla um stríðs­rekstur Japana í Asíu. Marta var þá nýlega tekin saman við Hemingway og nauð­aði í honum að koma með sér þar til hann lét það eftir henni.

Japanir höfðu ráð­ist inn í Masjúríu árið 1931. Á þeim tíma geis­aði borg­ara­stríð á meg­in­landi Kína milli þjóð­ern­is­sinna (sem hrifsuðu til sín völdin árið 1927) og komm­ún­ista. Til­raunir þeirra til að sam­ein­ast í and­spyrnu gegn erlendri íhlutun fóru út um þúfur.

Tókst Japönum því að sölsa undir sig stór svæði í Norð­austur-Kína og -- eftir alls­herj­ar­inn­rás árið 1937 -- einnig með­fram aust­ur­strönd­inni. Hröktist þjóð­ern­is­sinnar þá með höf­uð­borg sína frá Nanjing til Chongqing langt inni í miðju landi. Þangað var för Hemingway-hjón­anna heitið.

Í bresku kon­ungs­ný­lend­unni Hong Kong fékk skáldið að njóta lífs­ins lystisemda um stund. Skaut hann fas­hana, drakk frá sér ráð og rænu, sprengdi kín­verja o.s.frv. Loks stigu þau á skips­fjöl. Lá leiðin upp stór­fljót og mold­ar­skurði um fátækar sveitir, inn í hinstu myrkur Kína.

Ljóst er að Mörtu var tals­vert brugðið á þessu ferða­lagi. Ekki aðeins yfir algeru getu­leysi stjórn­valda að eiga við jap­anska inn­rás­ar­liðið heldur ekki hvað síst yfir land­lægri spill­ingu, sam­fé­lags­upp­lausn og „mið­ald­ar­dauni“.

Í Chongqing færðu hún ástand lands og þjóðar í tal við leið­toga þjóð­ern­is­sinna Chiang Kai-shek og konu hans Soong Mei-ling. Væri ekki a.m.k. hægt að gera eitt­hvað fyrir hina holds­veiku -- þeir ganga um meðal almenn­ings og betla?

En aðfinnsl­urnar fóru þvert ofan í gest­gjaf­ana. Mun and­rúms­loftið ekki hafa verið gott á fund­inum. Það bætti heldur ekki úr skák að gen­aril­issimo Chiang mætti án gervi­tanna sinna og leit hræði­lega út.

Hemingway, sem ólíkt Mörtu hafði ekki gert sér neinar sér­stakar grillur um ástandið í land­inu, kímdi: „Nú veistu hvernig það er að móðga kín­versku keisa­drottn­ing­una.“

Ameríka 2015

Sú bók Hemingways sem mestrar hylli nýtur í Kína er senni­lega Gamli mað­ur­inn og hafið. Hún kom út 10 árum eftir Asíu­reisu þeirra hjóna og var þýdd á kín­versku árið 1952. Japanir voru þá sigr­aðar fyrir all nokkru og komm­ún­istar höfðu steypt Chiang Kai-shek af stalli.

Í anda öreiga­bylt­ing­ar­innar var sov­éskum raun­sæ­is­bók­menntum mjög haldið að þjóð­inni. Framan af átti Gamli mað­ur­inn og hafið því erfitt upp­dráttar í Kína. Á 7. ára­tugnum voru svo bækur Hemingways og margra ann­arra höf­uð­skálda bann­aðar og kerf­is­bundið hreins­aðar úr hillum.

Leiðtogi komm­ún­ista Maó Zedong sagði að bylt­ingin þyrfti að „halda áfram“ en ekki stoppa og verða „skrif­finnum“ að bráð. Bægja þurfti frá aft­ur­halds­sömum borg­ara­legum hug­myndum og ýta þess í stað undir stétta­á­tök.

Þeir sem fengu stimp­il­inn „stétta­ó­vinur“ voru nið­ur­lægðir, barðir og lim­lestir. Sumir máttu dúsa í stein­inum árum saman. Aðrir voru sendir í end­ur­hæf­ingu. Fólst hún yfir­leitt í erf­ið­is­vinnu á afskekktum stað upp til fjalla eða inn til dala.

Nokkrir þeirra sem til­raun var gerð til að end­ur­hæfa voru reyndar svo „óheppnir“ að kom­ast yfir upp­tæk söfn for­boð­inna bók­mennta er gerði þeim fært að næra í fylgsni hug­ans „hægri hentu­stefnu“ svo og ýmsa aðra „villu­trú“.

Xi litli var einn af þeim. Þegar hann var 10 ára féll faðir hans í ónáð. Eftir það sætti fjöl­skyldan ofsóknum. Flúði strákur þá upp í sveit og sett­ist að í þorpi fjarri skarkala stétta­átak­anna. Stundaði hann land­bún­að­ar­störf að deg­inum en stalst í Tolstoy, Jack London og Hemingway á kvöldin.

Hann sagði einmitt frá þessu í kvöld­verð­ar­boði á Westin hót­el­inu í mið­borg Seattle nú fyrir skemmstu. Meðal boðs­gesta voru Henry Kiss­in­ger, Bill Gates og Dennis Mui­len­burg for­stjóri Boeging svo ein­hverjir séu nefndir.

„Þetta var erfitt líf,“ við­ur­kenndi Xi, sem fullu nafni heitir Xi Jinping og er í dag for­seti Kína. En reynslan í sveit­inni fyllti hann eld­móði. Hann ól með sér draum: Kín­verska draum­inn, sem hann hefur sagt að feli í sér end­ur­nýjun þjóð­lífs, bætt kjör alþýðu, hag­sæld og öfl­ugri her.

Meðan elítan í banda­rískum stjórn­málum og við­skipta­lífi gæddi sér á safa­ríkri Washington steik og líf­rænu græn­meti kom Xi inn á kynni sín af Gamla mann­inum og haf­inu.

Sagðist hann hafa verið sem berg­num­inn af glímu Santi­agos við sverð­fisk­inn, leiftr­andi lýs­ing­unum á veð­urofsa, skopp­andi fiski­bát­inum og hákörlunum.

Í fyrstu ferð sinni til Havana gat hann víst ekki stillt sig um að skoða Cojimar, fyr­ir­mynd Hemingways að sögu­svið­inu. Í ann­ari ferð­inni skellti hann í sig mojito skáld­inu til heið­urs.

Rússland 2018

Já, hann Santiago. Hann hafði ekki dregið bein úr sjó í 84 daga. Sjálfs­traustið var ekki gott. Fólkið í þorp­inu snið­gekk hann. Eins og lán­leysið væri hættu­legur smit­sjúk­dómur.

Hann þurfti eitt­hvað „stórt“ til að stimpla sig aftur inn. Svo hann mætti rísa undan helköldum hrammi elli og stirð­leika. Öðlast við­ur­kenn­ingu sam­borgar­anna. Lifa í goð­sögnum kom­andi kyn­slóða.

Hemingway á víst að hafa sagt að það sé eng­inn sym­bol­ismi í Gamla mann­inum og haf­inu. Hafið er bara hafið og gamli mað­ur­inn bara gamli mað­ur­inn.

En það er auð­velt að skilja afhverju Xi Jinping varð snort­inn af lestri sög­unnar í æsku. Ég býst við að í huga margra sam­landa hans gæti hún allt eins heitið Gamla Kína og hafið.

Og kannski er það svo, eftir þær hörm­ungar sem þjóðin hefur gengið í gegn um síð­ustu 200 árin, að hún þarf á ein­hverju stóru að halda til að glata ekki sjálfs­virð­ingu sinni.

Ein­hverju til að vega á móti sárri minn­ing­unni um yfir­gang Vest­ur­veld­anna á 19. öld, fólsku­verk Japana í seinni heim­styrj­öld­ini, öfga­stefnur Maós og sitt­hvað fleira.

Stór­sigur fót­boltalands­liðs­ins á Bhutan í und­ankeppn­inni fyrir HM í Rúss­landi 2018 er að sjálf­sögðu ekki það sem Kín­verjar hafa verið að bíða eftir árum saman.

Þeir hafa lagt færi sitt á ólgu­hafi „hins sós­íal­íska mark­aðs­hag­kerfis“ (kap­ít­al­ismi án vest­ræns lýð­ræðis). Þar er þeirra sverð­fiskur. Getur hann fætt þjóð­ina? Hve mikið verður upp­étið af hákörlum?

Eigi að síður er ljóst af stríðs­fyr­ir­sögn­un­inni Bútan lagt 12:0 að þetta var sætur sigur. Marka­laust jafn­tefli gegn Hong Kong („litla bróður“) fimm dögum seinna var hins vegar skelfi­legt áfall og hefur að mér virð­ist nán­ast gert út um Rúss­lands­æv­in­týrið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár