Markmið Íslands að tryggja sambærileg viðskiptakjör eftir Brexit

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að staða Íslands hafi verið kort­lögð kjósi Bretar að ganga úr ESB. Ísland muni semja um sam­bæri­leg við­skipta­kjör og það hefur nú.

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra segir að Ísland muni hafa næg tækifæri til að semja á ný við Breta um viðskiptakjör.
Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir að Ísland muni hafa næg tæki­færi til að semja á ný við Breta um við­skipta­kjör. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kjósi Bretar að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni á fimmtu­dag verður það mark­mið Íslands að tryggja sam­bæri­leg við­skipta­kjör við Bretland eins og við höfum nú. Þetta segir Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra í sam­tali við Kjarnann. Hún segir að engar breyt­ingar verði á sam­skiptum ríkj­anna ef þeir gangi út því það taki að minnsta kosti tvö ár fyrir Breta að semja sig frá Evr­ópu­sam­band­inu. Bretar muni einnig kapp­kosta við gera við­skipta­samn­inga við sín helstu við­skipta­lönd.

Lilja leggur áherslu á að Bretland sé mik­il­vægt við­skipta­land fyrir Ísland. Hátt í 20 pró­sent ferða­manna sem komi hingað séu frá Bret­landi og að 11 pró­sent af öllum útflutn­ingi Íslands síð­ustu tvö ár hafi farið til Bret­lands. „Það sem liggur nátt­úr­lega fyrir er að Bretland er eitt af okkar allra mik­il­væg­ustu við­skipta­ríkjum, bæði hvað varðar út og inn­flutn­ing,“ segir hún. „Þannig að þetta er okkur mik­il­vægt ríki.“

[adspot]

Eiríkur Bergmann Ein­ars­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, sagði í sam­tali við Kjarnann á dög­unum að útganga Breta úr ESB gæti haft „feyki­mikil“ áhrif. Ástæðan er sú, að Bretar myndu þurfa að end­ur­skoða í hvaða far­vegi við­skipta­samn­ingar og við­skipta­sam­bönd ættu að vera, í ljósi breyttr­ar­ al­þjóða­póli­tískrar stöðu.

Lilja ætlar ekki að taka afstöðu til spurn­ing­ar­innar sem lögð verður fyrir breska kjós­endur á fimmtu­dag­inn, eins og margir kollegar hennar á meg­in­landi Evrópu hafa gert. Það sé í höndum Breta að greiða atkvæði um fram­haldið. Hags­munir Íslands séu að Evrópa sé sterk, þetta mik­il­væg­asta við­skipta­svæði okkar, og greiðslu­jöfn­uður Íslands arð­bær.

„Þetta er fyrst og fremst ákvörðun breskra kjós­enda og breskra stjórn­valda,“ segir Lilja. „Við erum ekki lengur umsókn­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu og rík­is­stjórnin telur hags­munum okkar betur borgið fyrir utan Evr­ópu­sam­bandið. Þannig að við höfum ákveðið að skipta okkur ekki af þessu.“

Í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu hefur verið gert ákveðið hags­muna­mat fyrir Ísland ef af úrsögn Breta verður. Að sögn Lilju er búið að kort­leggja hvaða mögu­leikar væru í stöð­unni fyrir Bretland og hvernig staðan í Evrópu verður ef nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar verður úrsögn. „Það eru auð­vitað nokkrir mögu­leikar þar,“ segir Lilja. „Bresk stjórn­völd hafa ekki verið að gera mikið út á það; enda mundi maður kannski ekki gera það sjálfur ef maður væri að berj­ast fyrir ann­ari hvorri átt­inni – þá heldur þú spil­unum að þér. En við erum búin að kort­leggja þetta, hvernig Ísland gæti mögu­lega passað inn í þessar breyttu aðstæður.“

„Markmið okkar í fram­hald­inu verður alltaf að tryggja að minnsta kosti sam­bæri­leg við­skipta­kjör og við höfum nú þegar,“ segir Lilja og bendir á að Bretland gangi hrein­lega út á opin og frjáls við­skipti. „Það er það sem þeirra efna­hags­módel gengur út á, og flestra ann­arra ríkja. Það er alveg klárt, að mínu mati, að þeir muni leggja mjög á sig til þess að ná góðum samn­ingum við Evr­ópu­sam­bandið, EES-ríkin og þau ríki þar sem þeir eiga mik­illa hags­muna að gæta.“

Kjósi Bretar að halda aðild að ESB verða virkj­aðir nýir skil­málar í samn­ingi Bret­lands við sam­bandið, í takt við það sem David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, samdi um í jan­úar og febr­úar á þessu ári. Meðal þess er aukið vægi þjóð­þinga aðild­ar­ríkj­anna í Evr­ópu­lög­gjöf­inni.

Spurð hvort þessir nýju skil­málar Camerons muni gera Evr­ópu­sam­bands­að­ild að fýsi­legri kosti fyrir Ísland segir Lilja það ekki breyta miklu fyrir Ísland. Hún seg­ist hins vegar vera sann­færð um að ef Bretar ákveði að vera, verði tekið á lýð­ræð­is­halla í sam­band­inu að að aðild­ar­ríkin muni verða sterk­ari í Evr­ópu­sam­band­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár