Tekjur fjölda öryrkja skertar vegna rangra útreikninga: „Fólk treystir ekki Tryggingastofnun“

Öryrkjar leggja til umbætur á letj­andi kerfi. Fjöl­mörgum gert að end­ur­greiða rík­inu vegna rangra útreikn­inga á stað­greiðslu. Formaður Öryrkja­banda­lags Íslands segir líf­eyr­is­þega ekki treysta Trygg­inga­stofnun.

Um þessar mundir fá fjöl­margir líf­eyr­is­greiðslu­þegar bréf frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins þar sem þeim er gert að end­ur­greiða rík­inu vegna rangra útreikn­inga á stað­greiðslu.

„Við höfum marg­sinnis gert athuga­semdir við þessi vinnu­brög, sem eru mjög óþægi­leg fyrir líf­eyr­is­þega,“ segir Ellen Calmon for­maður Öryrkja­banda­lags­ins í sam­tali við Stundina. „Við myndum vilja hvetja Trygg­inga­stofnun til að end­ur­skoða þessi vinnu­brögð. Fólki er gert að áætla tekjur sínar og við vitum það sem erum vinn­andi að það er erfitt að áætla tekjur sínar nákvæm­lega. Áætlunin þarf að vera ansi nákvæm, þannig ef eitt­hvað breyt­ist og fólk fær eitt­hvað meira, þá fær það allt í bakið.“

Ellen segir að á hverju ári komi fjöl­mörg mál af þessu tagi inn á borð hjá banda­lag­inu. „Við gerum alltaf ráð fyrir því að það verði brjálað að gera hjá okkur í ágúst því þá er fólk að fá þetta allt saman í haus­inn og leitar til okkar. Það er sorg­legt að fólk þurfi að leita til okkar því í þessum til­vikum erum við að sinna hlut­verki sem ráð­gjafar Trygg­inga­stofn­unar eða félags­ráð­gjafar sveit­ar­fé­laga eiga að sinna, það er að segja að fara í gegnum alla papp­íra með fólki og kanna hvort það sé rétt reiknað. Þetta er bara vegna þess að fólk treystir ekki Trygg­inga­stofnun,“ segir hún. 

„Við myndum vilja hvetja Trygg­inga­stofnun til að end­ur­skoða þessi vinnu­brögð.“

Stór prósenta af ráðstöfunartekjum

Ellen seg­ist finna fyrir tölu­verðri óánægju meðal líf­eyr­is­þega þegar þeir fá bak­reikn­inga sem þessa í haus­inn því margir átti sig ekki á því hversu mikil skerð­ingin verður. „Fólk þarf jafn­vel að borga stórar pró­sentur af líf­eyrnum til baka ári seinna, sem er auð­vitað gríð­ar­lega erfitt fyrir fólk sem hefur mjög litlar ráð­stöf­un­ar­tekjur. Ráð­stöf­un­ar­tekjur þessar hóps eru kannski á bil­inu 150 til 170 þús­und krónur á mán­uði,“ segir Ellen. 

„Um leið og maður vinnur eitt­hvað, þá er manni refsað“

Stundin sagði frá því í gær að Jack Hrafn­kell Dan­í­els­son, pistla­höf­undur og öryrki, hefði fengið bréf frá Trygg­inga­stofnun þar sem honum var gert að end­ur­greiða tæp­lega 55 þús­und krónur vegna rangra útreikn­inga á 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár