Árs kyrrsetningu lokið og togari seldur en andvirðinu haldið eftir í Namibíu

Samherji sagði frá því í vik­unni að tog­ar­inn Heinaste væri laus úr vörslu namibískra yfir­valda og hefði verið seldur í þokka­bót. Ekki fylgdi þó frétta­til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins að sölu­and­virð­inu yrði haldið sem trygg­ingu á banka­reikn­ingi í Namibíu.

Verksmiðjutogarinn Heinaste er búinn að fara í slipp og heitir nú Tutungeni.
Verk­smiðju­tog­ar­inn Heinaste er búinn að fara í slipp og heitir nú Tutun­geni. Mynd: Samsett

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji greindi frá því í til­kynn­ingu á vef sínum á þriðju­dags­kvöld að búið væri að aflétta kyrr­setn­ingu tog­ar­ans Heinaste, sem legið hafði við bryggju í Walvis Bay í Namibíu að kröfu namibískra yfir­valda í rúmt ár. Einnig sagði fyr­ir­tækið frá því að búið væri að ganga frá sölu á skip­inu til namibíska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Tunacor Fis­heries.

Það sem ekki fylgdi frétta­til­kynn­ingu Samherja um málið var það að sölu­and­virði skips­ins verður enn kyrr­sett á banka­reikn­ingi í Namibíu, sem namibíska ríkið hefur hald í. RÚV greindi frá þessu á fimmtu­dag, en þeir fjár­munir sem fást fyrir skipið verða kyrr­settir til trygg­ingar mögu­legum upp­töku­kröfum vegna saka­máls sem sem rekið er í Namibíu vegna Sam­herj­a­skjal­anna. Kaup­verðið nemur 2,3 millj­örðum íslenskra króna.

Einnig fylgdi það ekki sög­unni frá Samherja að deilur eru uppi um sölu skips­ins til Tunacor Fis­heries. Þær eru innan Heinaste Invest­ment Namibia, eign­ar­halds­fé­lags um togar­ann sem félag tengt Samherja á meiri­hluta í. Namibískir aðilar eiga minni­hluta í því félagi og hafa lög­menn á þeirra vegum verið að reyna að koma í veg söl­una, án árang­urs, að því er virð­ist.

Togarinn að drabbast niður við bryggjuna

Fregn­irnar af aflétt­ingu kyrr­setn­ingar Heinaste vöktu upp ein­hverjar spurn­ingar í Namibíu, sam­kvæmt frétt blaðs­ins Namibian frá því á fimmtu­dag, ekki síst þar sem að Martha Imalwa rík­is­sak­sókn­ari lands­ins gefið út að hún reikni með að félög tengd Samherja og stjórn­endur þeirra muni sæta ákærum í Namibíu vegna máls­ins.

Í frétt­inni kom þó ekki fram að kyrr­setja ætti pen­ing­ana sem fengjust fyrir þessa verð­mæt­ustu eign Samherja í Namibíu.

[adspot]

Rík­is­sak­sókn­ar­inn útskýrði í sam­tali við vefritið Repu­blikein að það hefði ekki verið hennar ákvörðun að aflétta kyrr­setn­ingu Heinaste, heldur lög­regl­unnar, sem var með skipið kyrr­sett á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi.

Á rík­is­sak­sókn­ar­anum er þó að skilja að það hafi verið ágætis lend­ing að aflétta kyrr­setn­ing­unni, þar sem það hafi bæði verið kostn­að­ar­samt fyrir namibíska ríkið að halda verk­smiðju­tog­ar­anum við bryggju í Walvis Bay og einnig hafi þetta verð­mæta atvinnu­tæki verið að drabb­ast niður við hafn­ar­kant­inn í stað þess að nýt­ast við að sækja fisk á namibísk fiski­mið.

Tvær kyrrsetningar

Það vakti mikla athygli hér á landi þegar fregnir bár­ust af því 20. nóv­em­ber í fyrra að Heinaste hefði verið kyrr­settur. Kyrr­setn­ingin virt­ist vera á mjög óljósum grund­velli, vegna ólög­mætra veiða á hrygn­ing­ar­svæði við strendur Namibíu sem átti að vera lokað fyrir veiðum. Sak­ar­efnið virt­ist þannig ekk­ert tengt Sam­herj­a­skjöl­unum, sem þá höfðu viku fyrr verið til umfjöll­unar bæði hér á landi og í Namibíu.

Íslenskur skip­stjóri Heinaste var hand­tek­inn og sætti far­banni í Namibíu þar til búið var að dæma hann til þess að greiða and­virði 7,9 millj­óna íslenskra króna í reiðufé í sekt fyrir þessar ólög­mætu veiðar. Þetta var 5. febr­úar og þegar sektin var greidd var skip­stjór­inn frjáls ferða sinna og kyrr­setn­ingu Heinaste aflétt.

Eða svo virt­ist vera.

Þann 7. febr­úar sagði Kjarninn frá því að Heinaste hefði verið kyrr­settur á ný og nú á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi, ekki brota á fisk­veiði­lög­gjöf­inni eins og í fyrra skiptið. Ljóst varð að áætl­anir sem Samherji hafði kynnt í frétta­til­kynn­ingu degi fyrr, um að gera ætti Heinaste út með því að leigja hann namibískum aðilum, væru í upp­námi. Samherji sagði þessa seinni kyrr­setn­ingu með öllu ólög­mæta.[links]

Hin skipin sigldu á brott

Dagana áður en Heinaste var kyrr­settur í síð­ara skiptið höfðu namibískir fjöl­miðlar greint frá því að spill­ing­ar­lög­reglan í Namibíu (ACC) hefði ráð­lagt stjórn­völdum að leyfa skipum Samherja ekki að sigla frá land­inu nema lög­regla yrði látin vita. Þrátt fyrir það fóru tvö af þremur skipum Samherja á brott úr namibískri lög­sögu og hafa ekki snúið aftur.

Namibísk yfir­völd töldu rök­studdan grun um að áform væru uppi um að færa Heinaste einnig úr namibískri lög­sögu, en tog­arar sem áður hétu Saga og Geysir höfðu farið úr land­inu í upp­hafi febr­ú­ar­mán­aðar og voru sagðar fréttir um að skip­verjar hefðu fengið boð um að sækja eigur sína í tog­ar­ana með skömmum fyr­ir­vara.

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóra Sam­herja, fjall­aði um Sögu og Geysi í til­kynn­ingu á vef Sam­herja 6. febr­ú­ar. Þá sagði hann að Saga væri á leið í slipp vegna tíma­bærs við­halds og að Geysir væri við veiðar við strendur Márit­aníu þar sem ekk­ert af dótt­ur­fyr­ir­tækjum Sam­herja hefði fengið kvóta fyrir skipið í Namib­íu.

Kjarninn sagði svo frá því í lok júlí að bæði skipin væru komin með ný nöfn og beindi spurn­ingum til Samherja um það hvort breyt­ingar hefðu orðið á eign­ar­haldi togar­anna tveggja.

Þeim spurn­ingum var ekki svarað, þrátt fyrir fyrri orð for­stjóra Samherja um að allar ákvarð­anir sem tengd­ust því að Samherji væri að hætta rekstri í Namibíu yrðu teknar í sam­ráði við þar til bær stjórn­völd og að greint yrði opin­ber­lega frá fram­vindu máls­ins jafn­óðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár