Fimm ára gamall fiskútflytjandi velti 7,3 milljörðum árið 2020

Gunnar Valur Sig­urðs­son, fram­kvæmda­stjóri fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Atlantic Seafood, segir að mik­ill vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2020 skýrist einna helst af COVID-19. Fyr­ir­tækið er orðið eitt það stærsta í útflutn­ingi á óunnum fiski frá Íslandi.

Á undanförnum árum hefur útflutningur á óunnum fiski frá Íslandi aukist allnokkuð.
Á und­an­förnum árum hefur útflutn­ingur á óunnum fiski frá Íslandi auk­ist all­nokkuð. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Óhætt er að segja að fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­inu Atlantic Seafood hafi vaxið fiskur um hrygg frá stofnun þess árið 2016. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins árið 2020 voru, sam­kvæmt árs­reikn­ingi sem birt­ist í upp­hafi þessa mán­aðar, 7,3 millj­arðar króna, sam­an­borið við 3,7 millj­arða árið 2019 og um 2 millj­arða árið 2018.

Á öðru starfs­ári fyr­ir­tæk­is­ins árið 2017 voru tekj­urnar 860 millj­ónir króna og síðan þá hefur fyr­ir­tækið um það bil tvö­faldað veltu sína ár frá ári. Hagnaður af rekstri Atlantic Seafood árið 2020, á fimmta starfs­ári félags­ins, nam 212 millj­ónum króna, en lyk­il­tölur úr rekstri félags­ins má sjá hér að neðan.

[adspot]

Félagið var stofnað af Gunnari Vali Sig­urðs­syni sem er jafn­framt fram­kvæmda­stjóri þess. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að á rekstr­ar­ár­inu 2021 hafi velta fyr­ir­tæk­is­ins verið svipuð og árið 2020 og senni­lega ögn minni. Hraður vöxtur fyr­ir­tæk­is­ins virð­ist þannig hafa náð jafn­vægi á nýliðnu ári.

Gunnar Valur var skráður eig­andi alls hluta­fjár í félag­inu allt fram til árs­ins 2020 og eini stjórn­ar­maður þess, sam­kvæmt árs­reikn­ingum. Við árs­lok 2020 var 35 pró­sent hlutur í félag­inu hins vegar kom­inn í eigu tveggja aðila, Elvars Þórs Alfreðs­sonar sem á 20 pró­senta hlut og danska félags­ins UpNorth Holding, sem hélt á 15 pró­sent hlut.

Eigandi danska félags­ins er Bjarne Benedikt Pedersen, sem er sam­kvæmt danskri fyr­ir­tækja­skrán­ingu einnig stjórn­andi þar­lends félags sem ber nafnið Atlantic Seafood A/S. Þar eru þeir Gunnar Valur og Elvar einnig stjórn­ar­menn.

Árið 2020 hafi verið óvenjulegt í útflutningi

Samhliða örum vexti Atlantic Seafood hefur verið vöxtur í útflutn­ingi á óunnum fiski frá Íslandi. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar voru tæp­lega 32 þús­und tonn af fiski flutt út óunnin í gámum árið 2016, en árið 2020 voru tonnin rúm­lega 57 þús­und tals­ins.

Hagstofa Íslands tekur einnig saman tölur yfir heild­ar­út­flutn­ing á nýjum, kældum eða ísvörðum heilum fiski og sam­kvæmt þeim voru flutt út rúm­lega 38 þús­und tonn af fiski í þeim flokki árið 2016. Árið árið 2020 nam útflutn­ing­ur­inn svo rúmum 66 þús­und tonnum, ef horft er til þessa flokks.

Verðmæti útflutn­ings á ferskum heilum fiski hefur sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar vaxið um níu millj­arða á þessu sama tíma­bili frá 2016, úr tæpum 10,6 millj­örðum upp í tæpa 19,4 millj­arða árið 2020.

Atlantic Seafood virð­ist eiga nokkurn þátt í þess­ari aukn­ingu, sem hefur verið gagn­rýnd nokkuð á síð­ustu árum af aðilum sem vilja kaupa hrá­efni á fisk­mörk­uðum til að verka það hér­lendis. „Þessir aðilar hækka bara þegar maður býður í og kaupa megnið af fisk­inum sem fer óunn­inn úr landi og skapar engin störf,“ var til dæmis haft eftir fisk­verkanda í frétt Vík­ur­frétta haustið 2020.

Gunnar Valur vill ekki meina að Atlantic Seafood hafi verið að flækj­ast mikið fyrir þeim sem vilja vinna fisk hér á landi, þó hann segi að fyr­ir­tækið hafi reyndar keypt og flutt út tölu­vert mikið magn af þorski árið 2020, en það ár voru alls rúm 16 þús­und tonn af þorski flutt frá Íslandi óunnin, um helm­ingi meira en árin þar á undan.

„Þessar teg­undir sem menn vilja vinna hérna heima, eins og þorskur og ýsa, þetta hefur snar­minnkað í útflutn­ing,“ segir Gunnar Valur um þró­un­ina síðan þá. Hann bætir við að árið 2020 hafi verið óvenju­legt hvað þetta varðar og það hafi skýrst af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og skýtur á að árið 2021 hafi útflutn­ingur Atlantic Seafood á þorski og ýsu dreg­ist saman um helm­ing frá fyrra ári. Aðrar teg­undir eins og stein­bítur og ufsi hafi komið í stað­inn.

Fimmtán kílóa ufsi

„Ég veit nú ekki hvort það sé alveg rétt,“ segir Gunnar Valur um það að útflytj­endur á borð við Atlantic Seafood séu að gera íslenskum fisk­vinnslum erfitt fyrir með því að yfir­bjóða á fisk­mörk­uðum. „Það er ekk­ert tekið eftir okkur þegar það er nægur fiskur, þá er öllum sama, en auð­vitað eru ein­hverjar vikur þar sem er minna af fiski og þá er það bara svo sem eðli­legt að það sé greitt yfir­verð fyrir vör­una, það er bara fram­boð og eft­ir­spurn,“ segir hann.

Hann segir að fyr­ir­tækið sé að kaupa mikið á fisk­mörk­uðum á sumrin. Þá sé yfir­leitt meira af fiski og fram­boðið meira en eft­ir­spurnin. „Við höfum oft verið að taka vöru sem er ógeðs­lega mikið til af og eng­inn áhugi hérna heima á að kaupa, eins og ufsa, stein­bít og skar­kola. Þetta er ekk­ert unnið hérna og við erum ekk­ert að trufla neinn sem er að vinna þessar teg­undir hérna heima. Ég get alveg slegið því fram,“ segir Gunnar Valur.

[adspot]

Hann nefnir að stundum henti vör­urnar sem fyr­ir­tækið kaupi og flytji út ekki til vinnslu hér, eins og til dæmis ufs­inn á vissum árs­tíma, þegar hann geti orðið jafn­vel 15 kíló. „Þá eru aðilar eins og Brim og fleiri stórir sem bara geta ekk­ert unnið þetta. Það er of dýrt að vera með hand­flak­ara­her fyrir ein­hverja tvo mán­uði á ári,“ segir Gunnar Valur og bætir við að hann telji Atlantic Seafood hafa gripið ýmis tæki­færi í skrítnum aðstæðum.

Hvergi eru til opin­berar tölur um það hversu mikið magn hver og einn útflytj­andi óunn­ins afla flytur úr landi og Gunnar Valur var ekki með töl­urnar um umsvif fyr­ir­tæk­is­ins fyrir framan sig þegar Kjarninn náði af honum tali, en hann var staddur í fríi í Portúgal.

Aðspurður hvort það væri rétt að Atlantic Seafood væri orð­inn stærsti útflytj­and­inn á óunnum fiski frá Íslandi segir Gunnar Valur að félagið sé á meðal þeirra stærstu, ásamt reyndar 4-5 aðilum öðrum, en umsvif fyr­ir­tækj­anna rokki á milli ára. „Ástæðan fyrir því að við stækk­uðum svona ört árið 2020 var bara COVID. Það var fiskur sem var búinn að falla niður í 15-20 pró­sent af því sem eðli­legt verð­gildi var og eng­inn vissi hvað átti að gera við. Við bara tókum okkur stöðu og keyptum mikið á meðan allt var í lág­marki, það var svona upp­hafið að þessu,“ segir Gunnar Valur.

Hráefni til dýrafóðurs upphafið

Hann segir að hann og Elvar Þór, sem áður hafði rekið eigið fyr­ir­tæki í Hong Kong, hafi verið saman í við­skipt­unum hjá Atlantic Seafood frá upp­hafi og að hagn­aður af sölu ódýrs dýra­fóð­urs til Nígeríu og til Kína hafi verið fjár­magnið sem kom þeim af stað. Síðan hafi þeir fært út kví­arnar í frek­ari útflutn­ingi. Auk þess að vera með starf­semi í Danmörku hafi þeir svo einnig verið með skrif­stofu í Hong Kong, en staðan á kín­verska mark­aðnum hafi hins vegar orðin snúin vegna COVID-19.

Gunnar Valur telur þá hingað til hafa hitt á réttan tíma með ákvarð­anir sem snúa að rekstr­inum og segir aðspurður að hann haldi að það væri „mjög erfitt“ að koma sér af stað í útflutn­ingi á fiski frá Íslandi í dag.

Spurður um fram­haldið seg­ist hann ekki sjá enda­laus vaxt­ar­tæki­færi framundan. „Þetta er bara mjög stremb­inn mark­aður þegar allt er eðli­legt. Ég stór­efa að það sé hægt að stækka enda­laust í svona, alla­vega á íslenska mark­aðnum. Sum tæki­færi verða bara hrein­lega tap,“ segir Gunnar Valur.

Blaða­maður nefnir þá að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hafi ekki auk­ist alveg í hlut­falli við stór­aukna veltu þess á und­an­förnum árum.

„Nei, alls ekki. Það er það sem er framundan, að reyna frekar að minnka og hafa meira eftir,“ svarar fram­kvæmda­stjór­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár