Alþingi samþykkti 24 frumvörp til nýrra laga eða sem innihéldu lagabreytingar í síðustu vikunni sem það starfaði þetta vorið. Sum þeirra munu hafa mjög sýnileg áhrif á daglegt líf borgara landsins en önnur síður, þótt mikilvæg séu. Ritstjórn Kjarnans tók saman helstu lagabreytingarnar sem samþykktar voru í þessari síðustu loku.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarp um lög um fjármögnun og rekstur nýsköpunarfyrirtækja og smærri fyrirtækja í rekstri í vor. Það var samþykkt í gær. Lögin fela í sér alls kyns breytingar sem styðja við fjármögnun og rekstur slíkra fyrirtækja. Á meðal þeirra eru að erlendir sérfræðingar sem ráðnir verða til starfa hér á landi munu einungis þurfa að greiða skatta af 75 prósent af tekjum sínum í þrjú ár. Í lögunum voru skattaívilnandi vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar verði hækkaðar verulega. Hámark slíks kostnaðar til almennrar viðmiðunar á frádrætti var hækkða úr 100 milljónum króna í 300 milljónir króna og úr 150 í 450 milljónir króna þegar um aðkeypta rannsóknar- og þróunarþjónustu er að ræða frá ótengdu fyrirtæki, háskóla eða rannsóknastofnun.
Alþingi samþykkti einnig frumvarp Bjarna um breytingar á lögum um gjaldeyrismál sem veita Seðlabanka Íslands heimild til að setja bindiskyldu á innstreymi fjármagns til landsins. Þetta stjórntæki á að varna íslenska hagkerfinu frá stórtækum vaxtamunaviðskiptum, þar sem fjárfestar flytja hingað fé til að hagnast á háum vöxtum, sem reynsdust mikill örlagavaldur í íslensku efnahagslífi fyrir hrun og voru höfuðástæða hinnar svokölluðu snjóhengju aflandskróna.
Öll húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, voru samþykkt á lokametrum þingsins. Frumvörpin eru um almennar íbúðir, húsaleigu, húsnæðisbætur og húsnæðissamvinnufélög. Almennar íbúðir eiga að bæta húsnæðisöryggi með því að auka aðgengi að öruggu leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda. Lög um húsnæðisbætur eiga að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta.
Útlendingalög Ólafar Nordal innanríkisráðherra fela í sér heildarendurskoðun fyrri laga frá árinu 2002. Lögin byggja á tveggja ára vinnu pólitískrar þingnefndar sem skipuð var af þáverandi innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Með lögunum er meiri samræming á milli laga um útlendinga og laga um atvinnumál útlendinga, dvalarleyfaflokkum er breytt, skilyrði dvalarleyfa einfölduð og kaflar um alþjóðlega vernd hafa verið endurskoðaðir og uppfærðir í samræmi við alþjóðlega, evrópska og norræna þróun.
Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra til laga um nýtt greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu tekur gildi 1. febrúar 2017. Alþingi hefur lýst yfir vilja til að auka fjárframlög til að styrkja starfsemi heilsugæslunnar í nýju kerfi og minnka kostnað sjúklinga. Gert er ráð fyrir að með nýju kerfi eigi sjúklingar ekki að borga meira í kostnað heldur en 50.000 krónur á ári.
Lög Bjarna Benediktssonar um breytingu á lögum um gjald af áfengi og tóbaki voru einnig samþykkt. Þau snúa að leyfilegu magni sem hver og einn má koma með af tollfrjálsu áfengi inn í landið. Ferðamenn, sjómenn og starfsfólk flugfélaga eru nú bundin af einingum en ekki magni og í stuttu máli má hver og einn nú taka meira áfengi með sér inn í landið.
Þá voru svokölluð Airbnb-lög Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, samþykkt á þriðjudag, en með þeim er kveðið á um takmarkanir á útleigu íbúða í gegnum síður eins og Airbnb. Ekki verður heimilt að leigja út lengur en 90 daga á ári, eða svo lengi sem tekjur eru undir tveimur milljónum króna.
Á þriðjudag voru líka samþykktar lagabreytingar um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Ragnheiður Elín lagði einnig fram það frumvarp. Í breytingunum fóls að endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar hækka úr 20 prósent í 25 prósent af kostnaði. Frá árinu 2001 til ársins 2015 hefur ríkissjóður varið um fimm og hálfum milljarði króna í endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar, þar af 793 milljónum króna á árinu 2015.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir