Hringbraut hættir með fréttir á vefnum

Fjöl­mið­ill­inn Hring­braut leggur niður frétta­þjón­ustu á vef sínum og verður honum alfarið breytt í kynn­ing­ar­vef. Starf frétta­stjóra lagt niður eftir þriggja vikna til­vist.

Sigurjón M. Egilsson er ritstjóri Hringbrautar.
Sigurjón M. Egilsson er rit­stjóri Hring­brautar. Mynd: Hringbraut

Frétta­skrif hafa verið lögð af á vef­miðli fjöl­mið­ils­ins Hring­brautar og hefur vef­síð­unni verið breytt í kynn­ing­ar­síðu fyrir ljós­vaka­miðla mið­ils­ins vegna auk­innar inn­lendrar dag­skrár í sjón­varpi. Starf frétta­stjór­ans, Björns Þor­láks­sonar, hefur verið lagt niður, en hann var ráð­inn í starfið fyrir þremur vikum síðan.


Í til­kynn­ingu sem kom frá Hring­braut sagði einnig að Linda Blöndal hafi gengið til liðs við mið­il­inn og mun hún sinna dag­skrár­gerð í sjón­varpi í sam­starfi við Sigurjón M. Egilsson og Sigmund Erni Rún­ars­son. Björn Þor­láks­son segir á Facebook síðu sinni hafa fengið upp­sagn­ar­bréf vegna þess­arra breyt­inga á mánu­dag, enda hafi starf hans verið lagt niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár