Veðsetning hlutabréfa jókst um 65 milljarða króna í fyrra

Mun meira var um það í fyrra að fjár­festar tóku lán til að kaupa hluta­bréf – gír­uðu sig upp – en verið hefur frá því að hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur eftir hrunið. Slík veð­setn­ing hluta­bréfa var mjög algeng í góð­ær­inu sem lauk haustið 2008.

Um síð­ustu ára­mót voru 17,71 pró­sent allra hluta­bréfa í Kauphöll Íslands veð­sett. Það er hæsta hlut­fall veð­settra hluta­bréfa sem verið hefur frá því að íslenskur hluta­bréfa­mark­aður var end­ur­reistur á árunum eftir banka­hrun­ið. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina.

Raunar jókst veð­setn­ing hluta­bréfa skarpt á síð­ast ári. Í byrjun þess var mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa 129 millj­arðar króna. Í lok þess var það komið upp í tæp­lega 194 millj­arða króna og virði veð­settra hluta­bréfa því auk­ist um 65 millj­arða króna, eða 50 pró­sent. Það er vel umfram þá hækkun sem varð á mark­aðsvirði allra hluta­bréfa í íslensku Kaup­höll­inni á árinu 2019, en þau hækk­uðu í heild um 30 pró­sent.

Þar mun­aði þó lang­mest um hækkun á virði bréfa í Marel, sem hækk­uðu um 66 pró­sent. Á meðal stærstu eig­enda þess félags eru margir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem skuld­setja sig ekki til að kaupa hluta­bréf.

[adspot]Heild­ar­virði hluta­bréfa þeirra félaga sem skráð eru á Aðal­l­ista Kaup­hallar Íslands og First North mark­að­inn var 1.251 millj­arður króna í lok árs 2019.

Mikil veð­setn­ing á árunum fyrir hrun

Veð­setn­ing hluta­bréfa var mjög algeng á árunum fyrir hrun, og bjó meðal ann­ars til mikla kerf­is­lega áhættu hér­lend­is. Stór fjár­fest­ing­ar­fé­lög, sem áttu meðal ann­ars stóra hluti í bönk­um, fengu þá lán­aðar háar fjár­hæðir með veði í bréf­um, til að kaupa önnur hluta­bréf. Þegar eitt­hvað súrn­aði varð keðju­verkun vegna kross­eign­ar­halds.

Auk þess lán­uðu íslenskir bankar fyrir hluta­bréfa­kaupum í sjálfum sér með veði í bréf­unum sjálf­um. Með því var öll áhættan hjá bönk­unum sjálfum ef illa færi. Til­gang­ur­inn var að skapa markað fyrir bréf sem engin eðli­leg eft­ir­spurn var eft­ir, og þar með til að hafa áhrif á eðli­lega verð­mynd­un. Hæsti­réttur Íslands hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu í málum gegn öllum gömlu stóru bönk­unum þremur að þetta atferli hafi falið í sér mark­aðs­mis­notk­un.

Tekið hefur verið fyrir þessa hegðun með laga­breyt­ingum á und­an­förnum árum.

Haftalosun hleypti fagfjárfestum út

Eftir hrun voru sett fjár­magns­höft. Þau gerðu það að verkum að íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir voru fastir inni í íslensku efna­hags­lífi með þá nýju fjár­muni sem þeir þurftu að ávaxta ár hvert. Þeir þurftu því að kaupa all­flest sem var á boðstólum, þar með talið hluta­bréf í þeim félögum sem skráð voru á markað í end­ur­reisn­ar­ferli íslensku Kaup­hall­ar­innar.

[adspot]Auk þess voru fjöl­margir erlendir fjár­fest­ing­ar­sjóðir sem veðjað höfðu á að hægt væri að ávaxta fjár­muni veru­lega á Íslandi í eft­ir­köstum banka­hruns­ins, meðal ann­ars með því að kaupa kröfur á föllnu bank­ana, umsvifa­miklir í kaupum á skráðum hluta­bréfum um tíma á meðan að höftin hengu uppi.

Þegar höft­unum var lyft, sem gerð­ist að stærstu leyti vorið 2017, gátu fag­fjár­fest­arnir farið með fjár­muni sína í ann­ars­konar fjár­fest­ingar. Það hafa þeir margir hverjir gert. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa verið að taka fjár­muni úr virkri stýr­ingu hjá verð­bréfa­sjóðum til að fjár­festa meira erlendis og erlendu fjár­fest­ing­ar­sjóð­irnir hafa minnkað nær allar stöður sínar nema í Marel og Arion banka.

Lítill sem eng­inn áhugi virð­ist vera erlendis frá á mik­illi fjár­fest­ingu hér­lendis, eins og sást ljós­lega þegar bindi­skylda var lækkuð niður í núll snemma árs í fyrra, aðgerð sem var til þess fall­inn að reyna að örva erlenda fjár­fest­ingu. Síðan að það var gert hefur erlend fjár­fest­ing verið minni en hún var á sama tíma árið áður.

Jókst hratt í fyrra

Veð­sett hluta­bréfa­kaup hafa ekki verið jafn algengt tísku­fyr­ir­brigði síð­ast­lið­inn ára­tug og þau voru áður, þótt vissu­lega séu und­an­tekn­ingar þar á. Í lok árs 2014 var mark­aðsvirði veð­settra hluta 11,25 pró­sent af heild­ar­mark­aðsvirði félaga í Kaup­höll Íslands.

[links]Eftir að heild­ar­mark­aðsvirðið skreið aftur yfir eitt þús­und millj­arða króna árið 2015 og fram á haustið 2018 var mark­aðsvirði veð­settra hluta nokkuð stöðugt í lengri tíma, frá um 105 millj­örðum kóna og upp í 123 millj­arða króna. Hlut­fall veð­töku af heild­ar­mark­aðsvirði skráðra félaga á þessu tíma­bili var frá um tíu pró­sent og upp í tæp­lega 14 pró­sent.

Þá virð­ist hafa átt sér stað ein­hver breyt­ing sam­hliða því að fleiri einka­fjár­festar eru að gera sig gild­andi á mark­aðnum. Frá því í lok sept­em­ber 2018 og fram til loka des­em­ber 2019 jókst mark­aðsvirði veð­settra hluta­bréfa um 71 millj­arð króna. Á síð­asta ári einu saman jókst hún um 65 millj­arða króna og ef síð­asti árs­fjórð­ungur árs­ins 2019 er skoð­aður einn og sér þá jókst hún um 25 millj­arða króna, eða um 15 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár