Samdráttur í eldsneytissölu það sem af er ári nemur milljörðum

Í árs­hluta­reikn­ingum olíu­fé­laga sést að sala elds­neytis hefur dreg­ist saman um millj­arða frá fyrra ári. Erlend korta­velta í kaupum á bens­íni og bíla­við­gerðum dróst saman um 2,2 millj­arða á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma í fyrra.

Erlend kortavelta í kaupum á bensíni og bílaviðgerðum nam 100 milljónum króna í apríl og maí samtals. Í sömu mánuðum í fyrra nam veltan 1,7 milljörðum.
Erlend korta­velta í kaupum á bens­íni og bíla­við­gerðum nam 100 millj­ónum króna í apríl og maí sam­tals. Í sömu mán­uðum í fyrra nam veltan 1,7 millj­örðum. Mynd: Flickr

Sala elds­neytis hér á landi hefur dreg­ist saman um millj­arða það sem af er þessu ári sam­an­borið við söl­una á sama tíma í fyrra. Þetta sést í árs­reikn­ingum olíu­fé­lag­anna. Bæði Festi, sem á og rekur N1 stöðv­arnar, og Skelj­ungur skil­uðu árs­hluta­reikn­ingum sínum fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins núna fyrr í ágúst. Olíu­fé­lögin fara ekki var­hluta af mik­illi fækkun ferða­manna en erlend korta­velta í flokki bens­íns og bíla­við­gerða hefur lækkað tölu­vert á milli ára.

Eldsneytisverð aðeins lægra í ár

Tekju­sam­dráttur olíu­fé­lag­anna af sölu elds­neytis skýrist að ein­hverju leyti af lægra útsölu­verði elds­neytis. Meðaltal við­mið­un­ar­verðs elds­neytis í elds­neyt­is­vakt Kjarnans var á fyrstu sex mán­uðum þessa árs rétt tæpar 208 krónur. Sú tala er um 6,5 pró­sentum lægri en með­al­verð fyrstu sex mán­aða síð­asta árs en með­al­tal fyrstu sex mán­aða árs­ins 2019 var rúm­lega 223 krónur á lítr­ann.

Elds­neyt­is­verð var nokkuð svipað milli ára á fyrsta árs­fjórð­ungi. Á öðrum árs­fjórð­ungi var með­al­tal við­mið­un­ar­verðs­ins hins vegar rúm­lega 12 pró­sentum lægra í ár heldur en í fyrra. Á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs var með­al­tal við­mið­un­ar­verðs­ins rúmar 200 krónur en í fyrra rétt tæpar 228 krónur. Líkt og sést í bens­ín­vakt­inni er álagn­ing á öðrum árs­fjórð­ungi þó hærri heldur en á sama tíma í fyrra.

40% samdráttur á öðrum ársfjórðungi

Í árs­hluta­reikn­ingi Festis, sem á og rekur N1 stöðv­arnar, er sala á bæði elds­neyti og raf­magni færð saman til bókar. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins hefur Festi selt elds­neyti og raf­magn fyrir rúma 8,7 millj­arða. Á sama tíma­bili í fyrra nam sala félags­ins á elds­neyti og raf­magni tæpum 12 millj­örðum. Tekjur félags­ins af elds­neytis- og raf­magns­sölu á fyrri hluta árs­ins er því um fjórð­ungi minni en á sama tíma í fyrra.

Hlut­falls­legi mun­ur­inn er meiri ef ein­ungis er horft til ann­ars árs­fjórð­ungs. Á öðrum árs­fjórð­ungi nam sala félags­ins á elds­neyti og raf­magni tæpum 4,2 millj­örðum en á sama tíma í fyrra nam salan tæpum 6,7 millj­örðum. Tekju­sam­drátt­ur­inn í sölu elds­neytis og raf­magns á milli ára á öðrum árs­fjórð­ungi nemur því tæpum 40 pró­sentum hjá félag­inu.

Svipuð saga hjá Skeljungi

Svipaða sögu er að segja af elds­neyt­is­sölu Skelj­ungs. Tekjur félags­ins af elds­neyt­is­sölu á fyrstu sex mán­uðum árs­ins hefur dreg­ist saman um tæp 30 pró­sent, úr tæpum 22,2 millj­örðum í rétt tæpa 15,7 millj­arða. Sam­drátt­ur­inn á öðrum árs­fjórð­ungi nemur hins vegar rúmum 40 pró­sentum. Á síð­asta ári nam elds­neyt­is­sala félags­ins á öðrum árs­fjórð­ungi rúmum 12 millj­örðum en á sama tíma í ár nemur salan tæpum 7,1 millj­arði.

Inni í þessum tölum er sala á bens­íni og dísil, flug­véla­elds­neyti, skipa­elds­neyti og loks öðru elds­neyti. Í þessum flokkum var mesti sam­dráttur í sölu á flug­véla­elds­neyti. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins dróst sala á flug­véla­elds­neyti saman um tæpan helm­ing, úr 1.790 millj­ónum niður í 955 millj­ónir. Sé ein­ungis litið til ann­ars árs­fjórð­ungs nemur sam­drátt­ur­inn tæpum 85 pró­sentum. Salan fór úr 1.173 millj­ónum króna á öðrum árs­fjórð­ungi 2019 niður í 181 milljón króna á sama fjórð­ungi þessa árs.

Erlend kortavelta horfin

Ljóst er að algjört hrun í komu ferða­manna til lands­ins í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hefur tölu­verð áhrif á elds­neyt­is­sölu olíu­fé­lag­anna á bens­ín­stöðvum þeirra. Hjá Rann­sókn­ar­setri versl­un­ar­innar er hægt að skoða mán­að­ar­lega korta­veltu erlendra ferða­manna eftir útgjalda­liðum. Enn sem komið er er ein­ungis hægt að skoða korta­velt­una fyrir fyrstu fimm mán­uði þessa árs en glögg­lega má sjá hversu miklu minna erlendir ferða­menn eyddu í apríl og maí á þessu ári miðað við í fyrra.

Á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins nam korta­velta erlendra ferða­manna í flokknum bensín, við­gerðir og við­hald bif­reiða alls rúm­lega 1.376 millj­ónum króna. Á sama tíma í fyrra nam veltan rétt rúmum 3.616 millj­ónum. Sam­drátt­ur­inn á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins nemur því rúm­lega 2,2 millj­örðum króna á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra. Það er sam­dráttur upp á rúm­lega 60 pró­sent.

Fjöldi erlendra ferða­manna náði lág­marki hér í apríl og maí áður en fjöld­inn fór aftur hækk­andi í júní eftir að tekið var upp á því að skima komu­far­þega á landa­mær­unum. Ef ein­ungis er horft til korta­veltu í áður­nefndum flokki í mán­uð­unum apríl og maí þá sést að veltan fer úr rúmum 1.700 millj­ónum króna sam­tals í apríl og maí 2019 niður í rúmar 100 millj­ónir sam­tals í sömu mán­uðum árið 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

olíufélög

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár