Náðu hreinum meirihluta með minnihluta atkvæða

Fjórir listar fengu undir helming atkvæða í síðustu sveitar­stjórnar­kosningum en náðu engu að síður hreinum meirihluta fulltrúa. Reikni­reglan sem notuð er við úthlutun sæta hyglir stórum flokkum á kostnað minni. Flokkar sem í sögulegu samhengi hafa verið stórir, eins og Sjálfstæðis­flokkurinn, hafa lagst gegn því að önnur regla sem skila myndi lýðræð­is­legri niður­stöðu verði tekin upp.

Kerfið gagnast Sjálfstæðsflokknum
Kerfið gagn­ast Sjálf­stæðs­flokknum D'Hondt reiknireglan hefur gagn­ast Sjálf­stæð­is­flokknum, flokki Bjarna Bene­dikts­sonar sem hér sést greiða atkvæði, vel enda hefur flokk­ur­inn lagst gegn því að önnur regla verði tekin upp. Mynd: Pressphotos

Minni­hluti atkvæða kjósenda skilaði fjórum framboðum hreinum meirihluta fulltrúa í sveitar­stjórnar­kosningunum 14. maí síðastliðinn. Sú reikni­regla sem stuðst er við til að ákveða fjölda fulltrúa, d‘Hondt reglan, hyglir stærri framboðum á kostnað þeirra sem minni eru. Til er reikni­regla sem jafnar þann mun, sem meðal annars er beitt í Skandinavíu. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmála­fræði­prófessor bendir á að á 64 ára tímabili, frá 1930 til 1994, hafi Sjálfstæðis­flokkurinn í Reykjavík í fimmgang fengið hreinan meirihluta í Reykjavík með minni­hluta atkvæða í krafti d‘Hondt reglunnar þegar önnur reikni­regla hefði ekki skilað sömu niður­stöðu.

Sé rýnt í úrslit kosninganna um miðjan mánuðinn má sjá að beiting d‘Hondt reikni­reglunnar hefur þar haft veruleg áhrif. Sem fyrr segir náðu framboð hreinum meirihluta í fjórum sveitar­félögum út á minni­hluta atkvæða. Í Árborg hlaut Sjálfstæðis­flokkurinn hreinan meirhluta en hlaut 46,4 prósent atkvæða. Flokkurinn fékk sex sveitar­stjórnar­fulltrúa kjörna en atkvæða­fjöldi hans hefði í raun aðeins átt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Matthildur Jóhannsdóttir skrifaði
    Ef ekki er notuð þessi regla í Danmörku þá erfðum við hana ekki frá dönum .
    Hvaða kosinn leiðtogi ákvað að breyta? Og hvaða ár?
    Var það kannski embættismaður sem smeigði því inn?
    Ef að ekki hefur verið kosið um reiknireglur af almenningi er hún framkvæmd án lagaheimildar
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár