„Góðar líkur“ á að veiran hafi verið upprætt innanlands

Sótt­varna­læknir segir að þó að góðar líkur séu á því að veiran hafi verið upp­rætt inn­an­lands sé nauð­syn­legt að halda vöku sinni því aðeins eitt afbrigði, einn ein­stak­lingur, getur sett far­aldur af stað. 90 hafa greinst með breska afbrigðið hér á landi.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir og Alma Möller land­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Við lifum núna á svo­lítið skrítnum tímum,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Við erum að berj­ast við nátt­úruvá á ýmsum sviðum en við vitum hvað þarf að gera til að var­ast alvar­legar afleið­ingar. Núna ríður á að við stöndum okkur og beitum þeim aðferðum sem við vitum að duga.“

Alma Möller land­læknir sagði að staðan á far­aldr­inum inn­an­lands væri góð, sér­stak­lega þegar litið er til nágranna­land­anna þar sem staðan er víða slæm og „menn ótt­ast nýja bylgju“. Sá ótti skýrist m.a. af nýjum afbrigðum veirunnar sem eru meira smit­andi. „Þess vegna mik­il­vægt að gleyma okkur ekki í vel­gengn­inni og höldum áfram aðgerðum á landa­mærum og höfum líka þann varnagla áfram að sinna ein­stak­lings­bundnum sótt­vörnum. Ef hún skyldi sleppa inn eða ef húnn lægi í leyni hérna, sem er ekki úti­lokað.“

Bæði hún og Þórólfur ítrek­uðu að fólk gleymdi sér ekki þó að mikið gangi á á Reykja­nesi.

[adspot]

„Kannski svo­lítið erfitt að koma inn núna með upp­lýs­inga­fund um covid vegna óró­ans og yfir­vof­andi eld­goss,“ sagði Þórólfur. „Það er nauð­syn­legt að við höldum vöku okkar og missum ekki ein­beit­ingu okkar á verk­efn­inu um covid, svo covid fari ekki að læð­ast aftan að okkur með alvar­legum afleið­ingum.“

Enginn greind­ist með veiruna inn­an­lands í gær. Frá 19. febr­úar, þegar breyt­ingar voru gerðar á fyr­ir­komu­lagi á landa­mærum og ferða­menn krafðir um að fram­vísa nei­kvæðu COVID-prófi við kom­una til lands­ins, hafa tveir greinst inn­an­lands og báðir voru þeir í sótt­kví.

„Það gengur áfram vel að halda far­aldr­inum niðri inn­an­lands og ég tel að það séu góðar líkur á því að veiran hafi verið upp­rætt hér inn­an­lands, þó að við getum ekki verið viss,“ sagði Þórólfur. „Við erum áfram að greina veiruna á landa­mærum og við þurfum að passa mjög vel að hún kom­ist ekki inn í landið.“

Enginn greind­ist á landa­mær­unum í gær en frá 19. febr­úar hafa 19 greinst með veiruna þar en aðeins ell­efu reynd­ust með virk smit. Um 1.600 nei­kvæðum covid-prófum hefur verið fram­vísað við landa­mærin og hafa átta af þeim ein­stak­lingum greinst með veiruna í fyrri eða seinni skimun. „Þetta segir okkur að nei­kvætt pcr-próf er ekki full­komið til að halda veirunni frá þó að það sé árang­urs­ríkt að krefj­ast þess að ein­hverju leyti. Þannig að við þurfum að skoða þetta mjög vel.“

Tugir greinst með breska afbrigðið

Nítíu ein­stak­lingar hafa greinst með breska afbrigði veirunnar hér á landi, þar af tutt­ugu inn­an­lands en það er allt fólk sem teng­ist þeim sem greinst hafa á landa­mær­unum nánum böndum. Þá greind­ist einn með suð­ur­a­fríska afbrigðið á landa­mær­unum fyrir fjórum dögum. Það er í fyrsta sinn sem það afbrigði grein­ist hér á landi.

Spurður hvort að til greina komi, í ljósi góðs árangur inn­an­lands, að aflétta frekar aðgerðum inn­an­lands, sagði Þórólfur að mjög var­lega yrði að fara í slíkt. „Það þarf bara eitt afbrigði af veirunni, einn ein­stak­ling, til að setja af stað far­aldur. Á þeim grunni tel ég að fara þurfi mjög var­lega í aflétt­ingar.“

Fólk gæti gleymt sér

Sagði hann hættu á því að vegna jarð­hrær­ing­anna á Reykja­nesi, sem gætu endað með eld­gosi, gæti fólk misst ein­beit­ing­una á sótt­vörnum vegna COVID. Vegna þess og nýrra afbrigða þurfum við nú að gæta okkar „extra vel“.

Ef eld­gos verður þá þurfum við að gæta okkar að fá ekki „smit ofan í það líka“.

[adspot]

Í þess­ari viku verða um 7.000 manns bólu­settir og svip­aður fjöldi í þeirri næstu en þá er ráð­gert að byrja að bólu­setja fólk milli 70 og 80 ára.

Pfizer hefur birt dreif­ing­ar­á­ætlun fyrir apríl og sam­kvæmt henni koma hingað um 34 þús­und skammtar af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins í þeim mán­uði sem duga til að bólu­setja um 17 þús­und manns.

Þórólfur árétt­aði að fólk sem er bólu­sett sé ekki und­an­þegið sótt­varna­ráð­stöf­unum þar sem ekki er enn vitað hvort að bólu­settir geti borið veiruna og þar með smitað aðra. Rann­sóknir eru í fullum gangi á þessum þætti. „Á meðan svo er þurfa bólu­settir að und­ir­gang­ast sömu ráð­staf­anir og leið­bein­ingar og aðrir.“

Getum tekið Pollyönnu á þetta

Hvað varðar mögu­lega frek­ari nátt­úru­ham­farir á Íslandi, ef til eld­goss kemur, minnti Þórólfur á að við Íslend­ingar værum ýmsu vanir og í okkur væri ótrú­leg seigla. Fólk tæki nátt­úru­öfl­unum af miklu æðru­leysi, „hvort sem það eru skrítnar og óút­reikn­an­legar veirur eða jarð­hrær­ingar.“

Alma sagði íslenska þjóð vel upp­lýsta. Hér störf­uðu margir góðir vís­inda­menn og sömu­leiðis við­bragðs­að­ilar. „Við þurfum áfram að sýna sam­stöðu og yfir­vegun í því sem nú gengur yfir.“

Þórólfur sagði að við gætum tekið „Pollyönnu“ á ástandið. Það sé þó „alla vega ljós í myrkr­inu að staðan á far­aldr­inum er góð á meðan við erum að takast á við þessar jarð­hrær­ingar. Við getum glaðst yfir sumum hlutum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár