Vongóð Heklu blæddi á tíma­bili oft á dag. Nú hefur dregið veru­lega úr blæð­ing­unum, sem þó hefur engin skýr­ing fund­ist á ennþá. Mynd: Hólmfríður Helga Sigurðardóttir

Hefur blætt úr augum og eyrum í fjögur ár

Áfalla­streitu­röskun í kjölfar nauðgana þegar hún var tólf ára er eina skýringin sem Lilja Bára Kristjáns­dóttir kann á blæðingum úr augum og eyrum dóttur sinnar, Heklu. Þrátt fyrir ótal rann­sóknir um nokkurra ára skeið hafa læknar ekki fundið neitt líkamlegt að henni.

„Af hverju er enginn svona á Íslandi annar en ég, mamma?“ er ein af þeim spurningum sem Hekla, sextán ára stelpa frá Dalvík, hefur reglulega spurt mömmu sína að á undan­förnum árum. Það er ekki skrýtið að hana sé farið að lengja eftir svörum og því að einhver skilji það sem hún er að ganga í gegnum. Í fjögur ár hefur henni blætt um augu og eyru, auk þess semhún kastar upp blóði og þá hefur reglulega liðið yfir hana.

Þær mæðgur búa í notalegri íbúð í fallegu húsi á Dalvík, ásamt Kötlu, sem er eldri systir Heklu. Ég banka upp á hjá þeim á fallegum en ísköldum laugardags­eftir­miðdegi. Það er notaleg stemning og hlýtt inni hjá þeim, gott að komast inn úr kuldanum. Úr útvarpinu ómar lág tónlist og við setjumst niður í stofunni. Hekla lítur út og kemur fram eins og ósköp venjuleg stelpa í 1. bekk …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár