Kínverjar og Rússar hlera persónuleg símtöl Trumps

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti neitar að hætta að nota óör­ugga snjall­síma í per­sónu­leg sím­töl. Kín­verskir njósn­arar hlera sím­töl hans til að kort­leggja hvernig best sé að reyna að hafa áhrif á ákvörð­un­ar­töku for­set­ans.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti.
Donald Trump, Banda­ríkja­for­seti. Mynd: EPA

Þegar for­seti Banda­ríkj­anna, Donald Trump, hringir í vini sína í einum af snall­símunum sínum þá eru kín­verskir og rúss­neskir njósn­arar að hlusta. Þeir hlusta til að geta betur skilið hvernig for­set­inn hugsar og hvernig best sé að nýta sér þær upp­lýs­ingar sem þeir heyra til að hafa áhrif á ákvörð­un­ar­töku for­set­ans. Frá þessu er greint í umfjöllun New York Times í gær.

Aðstoð­ar­menn Trumps hafa ítrekað varað hann við að far­sím­arnir hans séu ekki öruggir og að njósn­arar séu sífellt að hlusta. Innstu aðstoð­ar­menn hans reyna stöðugt að fá for­set­ann til að nota land­lín­urnar í Hvíta hús­inu en sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum þá vill Trump frekar nota far­sím­ana sína til að hringja í vini sína.

[links]Donald Trump er víst með þrjá iPhone síma, tvo sem er búið að örygg­is­svæða en einn per­sónu­lega iphone. En það er víst mjög auð­veld að hlera sím­töl sem hringd eru frá venju­legum far­símum. Fréttir hafa verið færðar af því að banda­rísk stjórn­völd séu að hlera síma stjórn­mála­manna, sem dæmi má nefna þegar í ljós kom að hler­aður var sími Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands.

Aðstoð­ar­menn Trumps eru því mjög með­vit­aðir um hætt­urnar sem fylgja því að nota óör­ugga síma. Trump á að skipta um síma á 30 daga fresti en hann hefur víst streist á móti. Samkvæmt heim­ildum New York Times þá segj­ast emb­ætt­is­menn í Hvíta hús­inu aðeins getað vonað að Trump sé ekki að gaspra um trún­að­ar­mál og örygg­is­mál í snjalla­sím­ann. En ljóst er á meðan Trump notar sinn per­sónu­lega iPhone þá eru Kín­verjar og Rússar að hlusta.

Nota upplýsingarnar til að reyna hafa áhrif á ákvörðunartöku forsetans

Kín­verskir njósn­arar nýta upp­lýs­ing­arnar sem þeir heyra í hler­unum sínum til að vita hvaða mönnum Trump treystir og hvernig rök for­set­inn hlustar helst á. Þær upp­lýs­ingar eru síðan not­aðar af kín­verskum við­skipta­mó­gúlum til að hafa áhrif á þá menn sem Trump treystir. Reynt er að sann­færa vini Trumps um að ákveðin stefnu­mótun, sem er í hag Kínverja, sé sniðug­asta leiðin með von um að þau rök endi í eyra Trumps.

Kín­verskir emb­ætt­is­menn hafa víst notað þessa aðferð í mörg ár, reynt er að hafa áhrif á banda­ríska leið­toga með því að skapa sér óform­legt net af áber­andi við­skipta­mönnum og fræði­mönnum sem eru svo fengnir til kynna ákveðnir hug­myndir og stefnu­mótun, sem eru Kín­verjum í hag, til áhrifa­valda í Hvíta hús­inu. Nú eru Kín­verjar hins vegar með beina teng­ingu við síma for­set­ans og eiga því ennþá auð­veldra með kom­ast að því hvaða rök virka til að sann­færa for­set­ann.

Þeir vinir Trumps sem kín­verskir njósn­arar eru til dæmis búnir að taka eftir eru Stephen A. Schwarsman sem tók stóran þátt í fyrsta fundi Xi Jinping, for­seta Kína, og Donalds Trump. Scharsman er nú þegar hlynntur far­sæls við­skipta­sam­bands á milli Kína og Banda­ríkj­anna og þykir því afar góður kandídat fyrir Kínverja. Tekið er fram að ekki er haldið að þessir vinir Trumps séu með­vit­aðir um áætl­anir Kínverja. Hvort þessar aðgerðir Kínverja virki síðan sem skildi er svo annað mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár