Dópsalar keppast við að sanka að sér gömlum Nokia 8210 farsímum

Breskir fíkni­efna­salar vilja ekki sjá nýj­ustu iPhone- eða Android far­sím­ana, þess í stað kepp­ast þeir við að kom­ast yfir gamla Nokia 8210 far­síma þar sem erf­ið­ara er fyrir lög­reglu að rekja þá. Frétta­síðan Vice greinir frá mál­inu.

Flestir ef ekki allir snjall­símar eru í raun nokkuð full­komið GPS stað­setn­ing­ar­tæki, sem nýt­ist eig­endum þeirra til að rata á veit­inga­stað­inn sem var mælt með, eða til að finna glat­aða síma. Samkvæmt umfjöllun Vice getur lög­regla sömu­leiðis notað sím­ana til að rekja ferðir glæpa­manna. Þá er full­yrt að lög­regla eigi mun auð­veld­ara með að hlera snjall­síma en gömlu góðu far­sím­ana.

Vice full­yrðir að Nokia 8210 sé lang eft­ir­sótt­asti far­sím­inn á meðal fíkni­efna­sala. Síminn kom á markað árið 1999 og er minnsti og létt­asti sím­inn sem Nokia hefur fram­leitt. Hann er hvorki með Bluetooth eða Wifi, en hann hefur infra-rauðan búnað sem gerir dópsölum auð­velt um vik að færa upp­lýs­ingar fljótt á milli síma, þegar þeir neyð­ast til að skipta um sím­tæki. Þá er sím­inn með öfl­uga raf­hlöðu sem end­ist lengi, sem gerir hann ekki hvað síst eft­ir­sókn­ar­verðan fyrir sölu­menn á göt­unni.

Þá hefur sím­inn notið tölu­verðra vin­sæla í gegnum tíð­ina í fang­elsum þar sem hann þykir sér­lega hent­ugur til að geyma inn­vortis vegna smæðar sinnar. Mikil eft­ir­spurn eftir sím­anum hefur gert hann að verð­mætum gjald­miðli, sem fíkni­efna­neyt­endur hafa notað óspart í við­skiptum sínum við fíkni­efna­sala.

Hér að neðan má sjá sjón­varps­aug­lýs­ing­una frá Nokia þegar sím­inn kom á markað árið 1999.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár