Bandaríski herinn vill auka viðveru á Íslandi á ný

Banda­ríski her­inn mun hafa tíma­bundna aðstöðu á Kefla­vík­ur­flug­velli ef áætl­anir hans fyrir næsta ár ganga eftir. Þetta kemur fram á frétta­síð­unni Stars and Stripes, sem er gefin út á vegum hers­ins, en það var RÚV sem greindi frá mál­inu fyrst íslenskra miðla. Ætlunin er að fylgj­ast með rúss­neskum kaf­bátum í Norður-Atl­ants­hafi.

Banda­ríski her­inn hefur sam­kvæmt frétt­unum óskað eftir fjár­magni á fjár­á­ætlun varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins á næsta ári til þess að upp­færa flug­skýli í Keflavík til þess að hægt sé að hýsa þar P-8 Poseidon flug­vélar, en þær hafa komið í stað P-3 Orion vél­anna sem voru stað­settar í her­stöð­inni í Keflavík þegar her­inn var þar. Slíkar vélar eru reglu­lega sendar til Kefla­víkur í eft­ir­lits­flugi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá sjó­hernum.

Utan­rík­is­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu vegna frétt­anna þar sem kemur fram að engar við­ræður eigi sér stað á milli Íslands og Banda­ríkj­anna um var­an­lega stað­setn­ingu banda­rísks liðsafla á Íslandi. „Hins vegar er ljóst að umhverfi örygg­is­mála í Evrópu hefur breyst mikið á umliðnum árum og, í því ljósi, eins og utan­rík­is­ráðu­neytið hefur áður greint frá, hafa eðli­lega átt sér stað sam­töl um mögu­lega aukin umsvif Banda­ríkj­anna og ann­arra ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins á norð­an­verðu Atl­ants­hafi og Íslandi í sam­ræmi við sam­eig­in­legar varn­ar­skuld­bind­ingar,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu.

Sem stendur hefur her­inn aðeins áhuga á því að senda eft­ir­lits­vél í stuttan tíma í senn, en með tím­anum gæti það orðið var­an­leg eft­ir­lits­stöð hers­ins.

Banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi stað­festi ekki þessar fréttir en sagði við RÚV í kvöld að stöðugar við­ræður hefðu átt sér stað um flug­stöð­ina í Keflavík. Greint var frá því snemma í haust að aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herr­ann Bob Work hefði skoðað her­stöð­ina í Keflavík í heim­sókn sinni hingað til lands.

Í við­tali við Kjarnann í haust sagði Benjamin Ziff, aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, að ekki væri tíma­bært að tala um opnun her­stöðvar á Íslandi. „Ég veit að hingað hafa komið emb­ætt­is­menn til að skoða þennan mögu­leika. Staða Íslands í Norður-Atl­ants­hafi, og sú stað­reynd að inn­við­irnir eru til 
staðar og þeim hefur verið vel við haldið af Íslend­ingum frá 2006,
 þegar við fórum frá Keflavík, sýna að ef þörf krefur er Ísland í góðri
 stöðu til að taka þátt á breið­ari hátt í aðgerðum Nató, en þessar
 ákvarð­anir hafa ekki verið teknar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár