Komst loks í átröskunarmeðferð þegar veikindin voru orðin alvarleg

Elín Ósk Arn­ars­dóttir ákvað 17 ára að fara í „sak­laust átak“ til að létt­ast en missti algjör­lega tökin og veikt­ist alvar­lega af átröskun. Hún lýsir bar­áttu sinni, ekki ein­ungis við lífs­hættu­legan sjúk­dóm heldur líka brotið heil­brigð­is­kerfi þar sem fólk fær ekki hjálp fyrr en sjúk­dóm­ur­inn er orð­inn alvar­legur, en dán­ar­tíðni vegna hans er sú hæsta á meðal geð­sjúk­dóma.

Elín Ósk Arnarsdóttir
Elín Ósk Arn­ars­dóttir Mynd: Golli

Elín Ósk Arn­ars­dóttir hefur glímt við átröskun síð­ast­liðin tólf ár og hefur farið í hátt á annan tug með­ferða, en er nú loks á góðri veg­ferð með að ná bata. Þegar hún var á tán­ings­aldri upp­lifði hún mikla lík­ams­skömm og hafði sterkar fyrir fram gefnar hug­myndir um það hvernig hún ætti að líta út. Sautján ára fór hún í kjálka­skurð­að­gerð sem var vendi­punktur og í kjöl­farið segir hún að sam­band sitt við mat hafi farið að skekkj­ast. Hún hafi átt erfitt með að borða pass­lega, ákveðið að fara í „sak­laust átak“ og end­an­lega misst tökin. „Ég segi alltaf að megrun sé stór­hættu­leg af því það er einn af stærstu áhættu­þátt­unum að ein­stak­lingur þrói með sér átröskun,“ segir Elín Ósk. 

Tölfræði átraskanna

Átrask­anir eru alvar­legur geð­sjúk­dómur sem felst í miklum trufl­unum á mat­ar­venjum og hafa þær alvar­legar lík­am­legar og and­legar afleið­ingar, en dán­ar­tíðni vegna …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár