Yngri og tekjulægri telja efnahagspakkana of litla – eldra og ríkara fólk á öðru máli

Þau sem kjósa Vinstri græn eru ánægð­ust allra með efna­hags­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Um 70 pró­sent kjós­enda Pírata telja of lítið hafa verið gert.

Yngra og tekju­lægra fólk telur frekar en þeir sem eru eldri og með hærri tekjur að íslensk stjórn­völd séu að gera of lítið til að fyr­ir­byggja eða bregð­ast við nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum tengdum kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup.

Alls eru 42 pró­sent lands­manna á þeirri skoðun að rík­is­stjórnin sé að gera of lítið til að mæta vand­anum, en 54 pró­sent telur aðgerðir hennar hafa verið hæfi­legar. Einungis fjögur pró­sent telur að of mikið hafi verið gert.

Hjá þeim sem svör­uðu, og eru undir þrí­tugu, töldu hins vegar 57 pró­sent að of lítið hefði verið gert og hjá fólki á fer­tugs­aldri var það hlut­fall 52 pró­sent. Í báðum ald­urs­hóp­unum var hærra hlut­fall á því að aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar væru of litlar en að þær væru hæfi­legar.

[adspot]Sú staða snýst hjá hópum yfir fer­tugu og er mesta afger­andi hjá þeim sem eru 60 ára og eldri. Þar eru ein­ungis 31 pró­sent á því að of lítið sé gert til að bregð­ast við nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum tengdum kór­ónu­veirunni og 57 pró­sent telja að við­brögð stjórn­valda hafi verið hæfi­leg.

Tekjur móta afstöðu

Það er líka merkj­an­legur munur á afstöðu fólks eftir tekjum. Hjá þeim sem eru með undir 400 þús­und krónur á mán­uði í laun telja 38 pró­sent að of lítið hafi verið gert en hjá þeim sem eru með 1.250 þús­und krónur eða meira er það hlut­fall tíu pró­sentu­stigum lægra, eða 28 pró­sent.

[links]Það kemur kannski lítið á óvart að stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja eru ánægð­ari með efna­hags­að­gerðir hennar en þau sem kjósa stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Aðeins 23 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna, flokks Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, telja að of lítið hafi verið gert. Um fjórð­ungur kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins er á því máli og 28 pró­sent þeirra sem styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Á móti eru 70 pró­sent kjós­enda Pírata á því að efna­hags­að­gerð­irnar hafi verið of litlar og 60 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar er á sömu skoðun. Þeir sem styðja Mið­flokk­inn eru aðeins mild­ari í afstöðu sinni og 49 pró­sent þeirra telja að gera þurfi meira. Viðreisn er eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn sem á fleiri stuðn­ings­menn sem telja að aðgerðir stjórn­valda hafi verið hæfi­legar (50 pró­sent) en þá sem telja að of lítið hafi verið gert (42 pró­sent).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár