May sótti um skilnað fyrir hönd Breta

„Takk fyrir og bless,“ sagði Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­ráðs­ins, þegar hann tók við bréfi frá for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í Brussel. Frá og með deg­inum í dag eru tvö ár þar til Bretland yfir­gefur Evr­ópu­sam­bandið.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, undirritar bréf sitt til Donalds Tusk, forseta Evrópuráðsins, í Downingstræti 10 á þriðjudag.
Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, und­ir­ritar bréf sitt til Donalds Tusk, for­seta Evr­ópu­ráðs­ins, í Downingstræti 10 á þriðju­dag. Mynd: Jay Allen / <a href="https://www.flickr.com/photos/number10gov/33331160870/in/datetaken/">Flickr síða forsætisráðuneytisins í Bretlandi</a>

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, und­ir­rit­aði bréf þess efnis að breska rík­is­stjórnin óskaði eftir að 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans verði virkjuð í gær­kvöldi og Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­ráðs­ins, tók við því í dag.

Bretland er þess vegna form­lega orðið fyrsta aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) sem óskar eftir því að ganga úr sam­starf­inu í nærri 60 ára sögu Evr­ópu­sam­vinn­unar.

[links]„Bretland yfir­gefur Evr­ópu­sam­bandið,“ sagði May í breska þing­inu. „Þetta er sögu­legur atburður og héðan af verður ekki aftur snúið.“

Í bréf­inu til Donalds Tusk útskýrir May afstöðu Breta til útgöng­unnar. „Eins og ég hef áður sagt, þá var ákvörð­unin ekki höfnun á þeim gildum sem við deilum með Evr­ópu­búum. Hún var heldur ekki til­raun til þess að koma höggi á ESB eða aðild­ar­ríki þess. [...] Við erum að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið en við yfir­gefum ekki Evrópu.“

Donald Tusk, for­seti Evr­ópu­ráðs­ins, tók við bréf­inu í Brussel í dag úr hendi Tim Barrow, fasta­full­trúa Bret­lands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu. Tusk sagði á blaða­manna­fundi sem hann hélt við þetta til­efni að Evr­ópu­sam­bandið væri ósátt með að Bretland skyldi vilja yfir­gefa sam­bandið.

Evr­ópu­sam­bandið mun reyna eftir fremsta megni að tak­marka þann kostnað sem íbúar aðild­ar­ríkj­anna og fyr­ir­tæki munu hljóta vegna Brexit. „Við söknum ykkar nú þegar. Takk fyrir og bless,“ sagði Tusk að fund­inum loknum.

Tusk ítrek­aði það sem leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa haldið til streitu; að samn­inga­við­ræð­urnar muni verða mjög erf­iðar og flóknar, enda hygg­ist Evr­ópu­sam­bandið ekki ætla að gefa eftir í við­ræð­unum.

Með bréfi May til yfir­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins er það orðið að veru­leika að Bretland mun ganga úr sam­band­inu end­an­lega árið 2019, hvort sem Bretum tekst að semja um við­skipta­kjör og önnur mál­efni eða ekki.

[adspot]

Eftir að May tók við for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í kjöl­far þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar síð­asta sumar lýsti hún því yfir að hún myndi óska eftir útgöngu áður en mars 2017 yrði úti.

Evr­ópu­sam­vinnan hófst með stofnun Evr­ópu­banda­lags­ins árið 1957 þegar Róm­ar­sátt­mál­inn var und­ir­rit­aður af full­trúum Frakk­lands, Vestur-Þýska­lands, Ítalíu, Belgíu, Hollands og Lúx­em­borg. Bretland gekk í Evr­ópu­banda­lagið árið 1973 og Bretar stað­festu þátt­töku sína í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu árið 1975.

Síðan 1957 hafa fjöl­mörg lönd bæst í hóp­inn og fleiri sátt­málar verið und­ir­rit­aðir sem bundið hafa aðild­ar­ríkin 28 tryggum böndum. Ætlunin er að þessa fjötra muni Bretland og Evr­ópu­sam­bandið leysa í sam­ein­ingu á næstu tveimur árum.

Tusk mun á næstu tveimur sól­ar­hringum senda hinum aðild­ar­ríkj­unum 27 upp­kast að þeirri línu sem Evr­ópu­sam­bandið hygg­ist draga í við­ræð­unum. Sendi­full­trúar ríkj­anna 27 munu í kjöl­farið funda í Brussel og ræða upp­kast for­set­ans.

Allt bendir til þess að við­ræð­urnar verði mjög snúnar fyrir Bretland enda eru fjöl­margir þættir sem snerta dag­legt líf almenn­ings í Bret­landi til umræðu. Þá hafa Skotar ákveðið að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði á ný vegna Brexit. Breska kon­ungs­ríkið gæti þess vegna allt eins lið­ast í sundur á meðan samn­inga­við­ræð­unum stendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár