Framkvæmd túlkasjóðs samræmist ekki jafnræðisreglu - ríkið dæmt til að greiða bætur

Með því að hafna því að veita heyrn­ar­lausum eða heyrn­ar­skertum túlka­þjón­ustu er brotið á stjórn­ar­skrár­vörðum rétti þeirra til lág­marks­að­stoðar. Þetta er nið­ur­staða hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Snædísar Ránar Hjart­ar­dóttur gegn Sam­skipta­mið­stöð heyrn­ar­lausra og heyrn­ar­skertra og íslenska rík­inu. Ríkið á sam­kvæmt dómnum að greiða Snædísi rúm­lega 550 þús­und krónur í miska­bætur.

Snædís fór í mál vegna þess að henni var synjað um end­ur­gjalds­lausa túlka­þjón­ustu, og hún krafð­ist við­ur­kenn­ingar á því að rík­inu hafi ekki verið heim­ilt að neita henni um þjón­ust­una. Eins og greint hefur verið frá í fjöl­miðlum hefur félags­legi tákn­mál­stúlka­sjóð­ur­inn, sem er eins og nafnið gefur til kynna ætl­aður til notk­unar í ýmsum félags­legum athöfnum, tæmst reglu­lega und­an­farið. Þegar sjóð­ur­inn tæm­ist fær eng­inn sem á þarf að halda end­ur­gjalds­lausa þjón­ustu túlka.

Samkvæmt dómi hér­aðs­dóms gengur réttur heyrn­ar­lausra til lág­marks­þjón­ustu framar fyr­ir­mælum fjár­laga um greiðslu fram­laga til end­ur­gjalds­lausrar tákn­mál­stúlk­unar. Þá segir í dómnum að með því að „van­rækja að setja reglur og byggja upp kerfi, sem miðar að því að tryggja ein­stak­lingum með þá fötlun, sem stefn­andi glímir við, við­hlít­andi aðstoð að þessu leyti á jafn­ræð­is­grund­velli í sam­ræmi við kröfur 1. mgr. 76. gr. stjórn­ar­skrár­innar, er dregið úr lífs­gæðum hennar og stuðlað að auk­inni félags­legri ein­angrun. Það felur í sér ólög­mæta mein­gerð gegn per­sónu stefn­anda sem bakar aðal­stefndu skyldu til að greiða henni miska­bætur.“ Það beri að líta á þessa van­rækslu við að byggja upp kerfi sem almenna van­rækslu, en ekki sér­stak­lega van­rækslu gagn­vart Snædísi.

Í dómnum kemur einnig fram að sú til­högun á fjár­veit­ingu í sjóð­inn og þar með úthlutun úr honum, að skammta til þriggja mán­aða í senn, sam­rým­ist ekki almennri jafn­ræð­is­reglu. Það mis­muni not­endum eftir því hvenær þeir þurfa á þjón­ustu að halda á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár