Fyrsta „alvöru árás“ Hillary á Trump

Í ræðu sem Hillary Clinton hélt í San Diego 2. júní, gagn­rýndi hún Donald J. Trump harð­lega fyrir yfir­borðs­mennsku og hættu­legan mál­flutn­ing.

Hillary Clinton hefur átt í vök að verj­ast að und­an­förnu, í sinni kosn­inga­bar­áttu innan Demókra­ta­flokks­ins um útnefn­ingu fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber. Hún er sig­ur­strang­leg­ust en Bernie Sanders neitar að gef­ast upp, og rekur kröft­uga bar­áttu um öll ríkin. Þó mun meiri líkur séu á því að Hillary vinni, þá er ekki útséð með það.

Hillary hefur verið gagn­rýnd fyrir lin­kind gagn­vart Donald J. Trump, sem verður að öllum lík­indum fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins, þrátt fyrir væg­ast sagt umdeildar yfir­lýs­ingar og stefnu­mál. Sér­stak­lega er það krist­al­tær kyn­þátta­hyggja og menn­ingar- og trú­arað­skil­ar­stefna sem valdið miklum deilum, og leitt til pólaríser­andi við­bragða hjá almenn­ingi. Hann er ýmist hat­aður eða elsk­aður, en fylgið hefur farið hækk­andi und­an­farin miss­eri.

Vinasamband

Hillary hefur fengið að heyra það nokkuð oft, meðal ann­ars í rit­stjórn­ar­skrifum dag­blaða hér vestra, að hún geti ekki tek­ist á við Trump vegna þess að þau séu vinir frá gam­alli tíð. Trump hefur verið tíður gestur í sam­kvæmum þar sem Clinton-hjónin hafa verið, einkum í New York. Hillary hefur þó sagt, að þó þau þekk­ist, og hafi um tíma verið í góðu sam­bandi, þá sé hún fjarri Trump í stjórn­mál­unum.

Fyrsta póli­tíska árásin á Trump, eins og það var kallað í end­ur­sögn The Economist, kom í ræðu sem Hillary hélt 2. júní síð­ast­lið­inn í San Diego. Meg­in­efnið var utan­rík­is­stefna Banda­ríkj­anna og þjóðar­ör­yggi, og út frá henni sagði hún að Trump væri „ein­fald­lega ekki hæfur“ til að gegna starfi Banda­ríkja­for­seta. Hún sagði meðal ann­ars, að Trump hefði vissu­lega reynslu af utan­rík­is­stefnu, enda hefði hann staðið fyrir feg­urð­ar­sam­keppnum í Rúss­landi. Vitnaði hún þar til orða sem Trump lét falla í við­tali við Fox News, þar sem hann sagð­ist þekkja Rússland vel, eftir að hafa haldið þar Ungfrú Heim (Miss Universe) feg­urð­ar­sam­keppn­ina, og sagt það hafa verið „risa­vax­inn“ við­burð.

Fleiri ættu að búa yfir kjarnorkuvopnum

Hillary hélt áfram, og var ekki skemmt þegar hún þræddi sig í gegnum þau atriði sem Trump hefur talað fyrir. „Þetta er maður sem hefur talað fyrir því að fleiri ættu að búa yfir kjarn­orku­vopnum, þar á meðal Sádí-Arabía,“ sagði Hillary. Trump hefur sagt, að ýmsar stór­þjóðir heims­ins gætu þurft að end­ur­skoða stefnu sína, þegar kemur að kjarn­orku­vopnum. Fleiri þyrftu að víg­bú­ast, og vera „til­búin fyrir átök“. Hillary tal­aði beint til þeirra sem voru í salnum, og sagði meðal ann­ars: „Mynduð þið vilja hafa fing­ur­inn hans ein­hvers staðar nærri takk­anum?“. Salurinn svar­aði á móti með því að kalla hátt og end­ur­tekið nei. Enginn virt­ist vilja hafa Trump nærri takk­anum sem ræsir kjarn­orku­sprengj­una.

Víglínan skerpist

Hillary eyddi einnig drjúgum hluta í ræðu sinni í að gagn­rýna Trump fyrir að styðja við umdeilda þjóð­ar­leið­toga eins og Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seta. Þá sagði hún að stuðn­ingur sem Trump hefði fengið frá stjórn­völdum í Norður-Kóreu væri ekki beint til þess fall­inn að vekja traust eða til­trú á hans mál­flutn­ingi. Helstu dag­blöð í Norður-Kóreu, sem stjórn­völd stýra, hafa hrósað Trump í hástert og sagt hann „vitran“ og „skyn­saman“ leið­toga.

Hillary sendi út skýr skila­boð í ræðu sinni. Hún sagði Trump algjör­lega „óhæfan“ um að móta og stýra utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna. Þar með væri hann ekki hæfur til að verða for­seti. Í raun væri þetta nóg til að gera hann óhæfan í starfi, en „miklu, miklu fleira“ mætti þó telja til, eins og Hillary komst sjálf að orði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár