Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fær meirihluta hækkunar á gistináttaskatti

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða fær meiri­hluta hækk­unar á gistin­átta­skatti að óbreyttu. Ákveðið var að minnka fram­lög til sjóðs­ins vegna hæga­gangs fyrir jól. Sveit­ar­fé­lög vilja helm­ing gistin­átta­skatts í sinn hlut.

Gistin­átta­skattur var þre­fald­aður af Alþingi fyrir jól, en breyt­ingin tekur gildi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Meiri­hluti skatts­ins fer lögum sam­kvæmt í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða, en sveit­ar­fé­lög vilja breyt­ingar og að þau fái meiri­hluta skatts­ins til sín.

Gera ráð fyrir 1,2 milljarða tekjuaukningu

Frá og með 1. sept­em­ber verður gistin­átta­skatt­ur­inn 300 krónur á hverja selda gistin­átta­ein­ingu í stað 100 króna nú. Samkvæmt frum­varpi um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins var gert ráð fyrir því að tekjur rík­is­ins auk­ist um 300 millj­ónir króna á þessu ári vegna breyt­ing­ar­innar en um 1,2 millj­arða króna á því næsta, að með­töldum hlið­ar­á­hrifum á virð­is­auka­skatt.

Samkvæmt núgild­andi lögum er það þannig að 3/5 hlutar þeirra tekna sem ríkið fær af gistin­átta­skatti fara í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. Sá sjóður mun því að óbreyttu fá tals­vert hærri fram­lög á kom­andi árum með hækkun skatts­ins. Það kemur til við­bótar þess að meira hefur inn­heimst af gistin­átta­skatti með mik­illi fjölgun ferða­manna til lands­ins, og til að mynda fær sjóð­ur­inn auka 45 millj­ónir króna af fjár­auka­lögum síð­asta árs vegna þess að meira inn­heimt­ist af skatt­inum en gert var ráð fyrir.

Sveitarfélögin vilja hluta en ferðaþjónustan ekki

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga vill að sveit­ar­fé­lög fái helm­ing eða mögu­lega tvo þriðju hluta af gistin­átta­skatti vegna þeirra ferða­manna sem gista innan þeirra marka, og að þær tekjur renni til þess að byggja upp inn­viði ferða­þjón­ust­unnar í því sveit­ar­fé­lagi. Þetta kom meðal ann­ars fram í umsögn sam­bands­ins um ýmsar for­sendur fjár­laga­frum­varps­ins.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar eru á annarri skoðun, og fóru fram á það í sinni umsögn um sama mál að skatt­ur­inn yrði lát­inn renna óskiptur inn í Fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. „Fyr­ir­tæki, ein­stak­lingar, stofn­anir eða sveita­fé­lög geta svo sótt um í sjóð­inn til verk­efna til upp­bygg­ingar enda eru fjár­mun­irnir ætl­aðir til upp­bygg­ingar ferða­manna­staða. Með þessu er stjórn­sýslan gagnsæ og skil­virk,“ sögðu sam­tökin í sinni umsögn.

Hvorug umsögnin var tekin til greina þegar málið var afgreitt frá Alþingi fyrir jólin.

Gengur hægt að úthluta

Ákveðið var að lækka fram­lagið til fram­kvæmda­sjóðs­ins um 600 millj­ónir króna milli umræðna um fjár­laga­frum­varpið á Alþingi fyrir jól. Ástæðan er sú að það hefur tekið mun lengri tíma að ráð­stafa fé sjóðs­ins en gert hafði verið ráð fyrir. Kjarninn hefur áður greint frá því að miklir fjár­munir hafi legið óhreyfðir í Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða.

Í fjár­lögum síð­asta árs var ákveðið að auka fram­lögin um 517 millj­ónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 millj­arður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðn­­að­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytið greindi frá því í sept­­em­ber árið 2015 að við und­ir­­bún­­ing fjár­­laga fyrir 2016 hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­­mun­ir“ eða 1,2 millj­­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­­­um. Þessum fjár­­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­­kvæmd.

Samkvæmt vef Ferða­mála­stofu, sem hefur umsjón með Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða, hefur tæp­lega þremur millj­örðum króna verið úthlutað út sjóðnum frá fyrstu úthlut­un­inni árið 2012. Þá er ekki tekið til­lit til nýj­ustu úthlut­un­ar­innar, en umsókn­ar­frestur rann út í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Rúmlega 500 verk­efni hafa verið styrkt á þessum tíma, en líkt og fram hefur komið hefur það iðu­lega gerst und­an­farin ár að tafir hafa orðið á verk­efnum sem hafa fengið úthlutað úr sjóðnum. Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn til Ferða­mála­stofu um stöð­una á sjóðnum núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár