Óvænt rekstarafkoma hækkar lánshæfi Íbúðalánasjóðs

Bættar efna­hags­að­stæður á Íslandi er ein ástæða þess að Íbúða­lána­sjóður fær nú hærri ein­kunn hjá mats­fyr­ir­tæk­inu Standard&Poor's.

Mats­fyr­ir­tækið Standard&Poor’s (S&P) hækk­aði láns­hæf­is­einkun Íbúða­lána­sjóðs (ÍLS) við lokun mark­aða í Evrópu í gær. Ný ein­kunn sjóðs­ins er BB, jafn­vel þó S&P hafi gefið Íbúða­lána­sjóði langs­tíma­ein­kun­ina BB- í jan­úar. Samkvæmt útskýr­ingum S&P hefur rekstur sjóðs­ins gengið vonum framar og þess vegna er ein­kun­inn hækkuð.

„Upp­færsla eink­un­ar­innar end­ur­speglar auknar vænt­ingar til afkomu og eigna­færslu ÍLS, sem á sér rætur í bættum efna­hags­að­stæðum á Íslandi. Þessar bættu aðstæður hafa haft jákvæð­ari áhrif á sjóð­inn en við gerðum ráð fyrir,“ segir í rök­stuðn­ingi grein­enda Standad&Poor’s.

Hærri ein­kunn fyrir Íbúða­lána­sjóð helg­ast einnig af þeirri stað­reynd að grein­end­urnir telja „mjög lík­legt“ að íslenska ríkið aðstoði sjóð­inn ef upp koma erf­ið­leikar í rekstri sjóðs­ins. Ríkið hefur ekki þurft að leggja ÍLS til fé síðan árið 2014.

„Þetta eru góð tíð­indi. Ákvörðun S&P er hvort tveggja við­ur­kenn­ing á jákvæðu efna­hags­um­hverfi á Íslandi og þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til til að bæta stöðu Íbúða­lána­sjóðs,“ er haft eftir Hermanni Jónassyni, for­stjóra sjóðs­ins, í frétta­til­kynn­ingu.

Afkoma Íbúða­lána­sjóðs var um margt jákvæð á síð­asta ári, eins og Kjarninn fjall­aði um í mars. ­Sjóð­ur­inn skil­aði 1,8 millj­arða króna rekstr­ar­hagn­aði á árinu 2015, og er það annað árið í röð sem hann skil­aði hagn­aði eftir að hafa grætt 3,2 millj­arða króna árið 2014. Árin þar á undan höfðu hins vegar verið afar slæm. Alls tap­að­i ­sjóð­ur­inn tæpum 58 millj­örðum króna frá árs­lokum 2008 og út árið 2013. ­Rík­is­sjóður þurfti að leggja honum til 53,5 millj­arða króna á árinu 2009 til að halda sjóðnum gagn­andi.

Á árinu 2014 var þorri þess hagn­aðar sem Íbúða­lána­sjóður sýnd­i ­vegna breyt­inga á virð­is­rýrnun útlána. Þ.e. inn­heimt­an­leiki lána hans jókst um 2,5 millj­arða króna. Sama var upp á ten­ingnum í fyrra. Virð­is­rýrnun útlána ­lækk­aði um 4,4 millj­arða króna og útskýrir því vel rúm­lega allan hagn­að ­Í­búða­lána­sjóðs á síð­asta ári líka. Í til­kynn­ingu vegna árs­reikn­ings sjóðs­ins ­seg­ir: „Breyt­ing virð­is­rýrn­unar teng­ist umtals­verðri lækkun van­skila heim­ila og ­sterk­ari trygg­ing­ar­stöðu lána­safns­ins vegna hækk­ana á fast­eigna­mark­aði.“

Útlán sjóðs­ins héldu hins vegar árfram að lækka á síð­asta ári líkt og árin á und­an. Þau lækk­uðu um tæpa 80 millj­arða króna í fyrra. Þar af voru, líkt og áður sagði, 33,8 millj­arðar króna vegna leið­rétt­ing­ar­inn­ar. ­Í­búða­lána­sjóður er samt sem áður langstærsti íbúða­lána­veit­andi á land­inu, þrátt ­fyrir litla útlána­veit­ingu og miklar upp­greiðslur árum sam­an. Mark­aðs­hlut­deild hans, sam­kvæmt útreikn­ingum Kjarn­ans, er rúm­lega 40 pró­sent á íbúða­lánum til­ ein­stak­linga.

Fram­tíð­ar­hlut­verkið í óvissu

Íbúða­lána­sjóður náði líka þeim árangri, í fyrsta sinn frá­ ár­inu 2007, að eig­in­fjár­hlut­fall hans er yfir lög­bundnu lág­marki. Það lág­mark er 5,0 pró­sent og eig­in­fjár­hlut­fall fé sjóðs­ins um síð­ustu ára­mót var 5,5 ­pró­sent.

Fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs er þó enn óljóst. Í árs­reikn­ingi sjóðs­ins segir að vaxta­munur sjóðs­ins, sem er ein­ungis 0,28 ­pró­sent dugi ekki fyrir virð­is­rýrnun sam­bæri­legri þeirri sem átti sér stað við efna­hags­hrun­ið. Slíkt hefði legið fyrir lengi. „Nokkurar óvissu gætir um fram­tíð­ar­hlut­verk Íbúða­lána­sjóðs. Fyrir vikið hefur stefnu­mót­and­i á­kvörð­un­ar­taka í nán­asta umhverfi sjóðs­ins verið sett á bið en slíkt hef­ur ­nei­kvæð áhrif á rekstur sjóðs­ins,“ segir í árskýrslu Íbúða­lána­sjóðs fyrir árið 2015.

„Upp­lýs­ingar um mik­il­væg atriði, þar sem ó­vissa í mati hefur mest áhrif á skráðar fjár­hæðir í reikn­ings­skil­un­um, er að f­inna í eft­ir­far­andi skýr­ing­um: Lítil útlána­aukn­ing og auknar upp­greiðsl­ur við­skipta­vina hafa nei­kvæð áhrif á vaxta­mun sjóðs­ins þar sem sjóðnum er ó­heim­ilt að greiða skuldir sínar fyrir gjald­daga þeirra. Því er stærra hlut­fall fjár­muna í ávöxtun utan hefð­bund­inna veð­lána til heim­ila og leigu­fé­laga. Því ­getur dregið út jöfn­uði milli eigna og skulda sjóðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár