Mynd: Aðsend

Hélt lengi í vonina um að hitta þau síðar á önninni

„Mér finnst mjög merki­legt hvað skóla­fólki á Íslandi hefur tek­ist vel upp, bæði starfs­fólki skól­anna og nem­endum,“ segir Kolbrún Ýrr Bjarna­dóttir, íslensku­kenn­ari við Mennta­skól­ann á Akureyri, um fjar­námið sem þó hentar ekki öllum.

Sá lær­dómur sem við munum draga af þessu verður von­andi sá að hægt er að miðla náms­efni á marga vegu. Það þarf ekki endi­lega að ger­ast inni í kennslu­stofu og sam­kvæmt nið­ur­njörv­aðri stund­ar­skrá. Það sem hentar einum hentar ekki endi­lega öðrum. 

Þetta segir Kolbrún Ýrr Bjarna­dóttir íslensku­kenn­ari við Mennta­skól­ann á Akureyri. Hún vonar að á síð­ustu mán­uðum hafi öllum orðið ljóst hversu mik­il­væg góð mennta- og heil­brigð­is­kerfi eru og að fram­línu­fólkið sem í þeim starfar verði héðan í frá metið að verð­leikum og meiri virð­ing fyrir því borin. „Við höfum ótrú­lega aðlög­un­ar­hæfni og gátum brugð­ist mjög hratt við þegar líf okkar flestra breytt­ist. Og þó að það hafi verið snúið fyrir marga að fara úr stað­kennslu í fjar­kennslu tókst okkur, bæði kenn­urum og nem­endum, vel til.“

Kolbrún Ýrr gekk sjálf í Mennta­skól­ann á Akureyri. Hún ætl­aði sér ekki að flytja norður að loknu háskóla­námi fyrir sunnan en þegar staða losn­aði í hennar gamla skóla bloss­aði upp áhugi á að prófa að kenna við hann. Með meist­ara­próf í bæði íslenskum fræðum og kennslu­fræðum í fartesk­inu flutti hún því norður á ný. „Ég ætl­aði að vera hér í eitt til tvö ár en þetta er sjötta árið,“ segir hún í sam­tali við Kjarnann.

Þegar Kolbrún mætti til vinnu í haust var hún að koma úr eins árs barn­eign­ar­leyfi. Síðasta skólaár var nokkuð sér­stakt í MA því tveir árgangar voru útskrif­aðir sam­tímis þar sem verið var að breyta úr fjög­urra ára fram­halds­skóla­námi í þriggja ára. „Þannig að þegar ég kom svo til vinnu í haust þá hafði nem­enda­fjöld­inn í skól­anum minnkað mikið en að öðru leyti hófst skóla­árið með hefð­bundnum hætti.“

Vorönnin í Mennta­skól­anum á Akureyri hefst nokkru seinna en í öðrum fram­halds­skólum eða um miðjan jan­úar og var því aðeins rétt hálfnuð er sam­komu­bannið skall á. „Við vorum því komin styttra á veg í kennsl­unni en margir aðrir skólar.“

Gjörbreytti ekki allri kennslunni

Þegar sam­komu­bann var svo sett á um miðjan mars og öll kennsla í fram­halds­skólum færð­ist yfir í fjar­kennslu var Kolbrún undir það búin and­lega að ákveðnu leyti. „Þetta kom mér ekk­ert á óvart eins og kannski sumum.“

Stutt var þá í páska­leyfi og hún und­ir­bjó fjar­kennsl­una í fyrstu ekki langt fram í tím­ann. „Ég hélt alltaf í von­ina að ég gæti hitt þau síðar á önn­inni. Þess vegna ákvað ég að gjör­breyta ekki öllu skipu­lagi náms­ins fyrst eftir sam­komu­bann. Ég fór heim með bækur, vinnu­tölvu og það sem ég þurfti. En þetta gerð­ist svo bara sjálf­krafa. Að maður fór að hugsa þetta öðru­vísi,“ lýsir Kolbrún. „Eftir páska fór ég og sótti skrif­borðs­stól­inn minn því ég var búin að sitja á hörðum eld­hús­stól og fann að það væru ekki alveg bestu aðstæð­urnar!“

Kolbrún Ýrr í tómri kennslustofu sinni í Menntaskólanum á Akureyri
Kolbrún Ýrr í tómri kennslu­stofu sinni í Mennta­skól­anum á Akureyri

Kolbrún á fjögur börn og voru þau tvö elstu í skertu skóla­starfi í sam­komu­bann­inu. Þau þurftu sitt næði til að vinna sína heima­vinnu, dóttirin inni í sínu her­bergi, stundum í fjar­kennslu­stundum, og son­ur­inn, sem var annan hvern dag í skól­anum, lærði við borð­stofu­borðið. „Heimilið varð eins og lít­ill vinnu­staður. Við reyndum að dreifa okkur um húsið svo allir gætu fengið vinnu­frið. Þannig að ég flutti mig inn í svefn­her­bergi þar sem ég sat við fjar­kennsl­una með rimla­rúm yngsta barns­ins við hlið­ina á mér,“ segir hún og hlær. „Þetta voru eig­in­lega fyndnar aðstæður. En svona var þetta.“

Eftir páska­frí var allt fyr­ir­komu­lagið farið að slíp­ast til. Þá var hún búin að átta sig á því að lík­lega myndi hún ekki hitta nem­endur sína aftur í kennslu­stof­unni þetta skóla­árið. Hún tók vinnut­arnir um helgar til að skipu­leggja kennslu kom­andi viku. Þó að hún hafi notað ákveðin verk­færi fjar­kennsl­unnar áður hafi það kraf­ist auk­ins und­ir­bún­ings að kenna allt í gegnum netið .

Við kennsl­una hefur Kolbrún haft þann hátt­inn á að hitta nem­endur sína í kennslu­stund á net­inu reglu­lega en mun sjaldnar en stunda­taflan segir til um. „Það myndi ein­fald­lega ekki ganga upp að hitta þau algjör­lega sam­kvæmt stunda­skránni. Það væri of mikið fyrir þau.“

Kolbrún seg­ist almennt ekki nota kennslu­stundir til að „messa yfir“ nem­endum heldur til verk­efna­vinnu. Því fyr­ir­komu­lagi hélt hún í fjar­kennsl­unni. Hún boð­aði þá til umræðu­tíma á net­inu um smá­sögur, Njálu og fleira og einnig til þátt­töku í spurn­inga­keppni upp úr náms­efn­inu. Einnig sendi hún þeim svo­kall­aðar tal­glærur, glærur upp úr náms­efn­inu sem hún talar inn á, og setti þeim svo fyrir verk­efni sem þau gátu spurt út í í kennslu­stundum.

Stór hluti nem­enda við Mennta­skól­ann á Akureyri er alla jafna á heima­vist og margir þeirra búa ann­ars staðar á land­inu. „Ég veit að sumum fannst erfitt að fara heim. Það er ekki nóg með það að þau séu ekki að mæta í skól­ann, þau eru ekki einu sinni í bænum og hafa ekki getað hitt bekkj­ar­fé­lag­ana.“

Misjafnar aðstæður

Aðstæður nem­enda heima fyrir eru einnig mjög mis­jafnar. Sumir segj­ast lít­inn frið fá til að vinna. „Og það er örugg­lega mjög flókið fyrir marga. Það eru ekki til enda­laust margar tölvur á hverju heim­ili. Á tíma­bili voru kannski báðir for­eldrar að vinna heima líka og systk­ini. Allir þurftu svo að mæta á fundi á net­inu á ákveðnum tímum og skila sínu. Þetta er svo­lítið flókið í fram­kvæmd.“

Að auki segir Kolbrún það mjög mis­jafnt hversu vel nem­endur ráði við sjálf­stæð vinnu­brögð. „Margir eru að tækla þetta mjög vel á meðan aðrir eru í raun­inni að gera lítið.“ Það sama er þó uppi á ten­ingnum í kennlu­stof­unni. „En þar get ég gengið á milli þeirra og ýtt við þeim og hvatt þau áfram. Auðvitað geri ég það með ein­hverjum leiðum raf­rænt en það er ekki alveg sam­bæri­legt.“

Margar lausnir eru til fjarnáms. Kolbrún notaði m.a. forritið Zoom í fjarkennslustundum.
Margar lausnir eru til fjar­náms. Kolbrún not­aði m.a. for­ritið Zoom í fjar­kennslu­stundum.

Ein­hverjir nem­endur Kol­brúnar hafa nán­ast blómstrað í þessu breytta námsum­hverfi. Því þótt sam­fé­lagið sem skap­ast í kennslu­stofu sé mik­il­vægt þá fylgir því líka ákveðin truflun. „Við erum svo rosa­lega ólík. Það hentar mörgum að fá að skipu­leggja sitt eigið nám upp að vissu marki á meðan aðrir þurfa meira utan­um­hald.“

Ánægju­legt var að sjá að nem­endur sem voru óvirkir í kennslu­stof­unni gekk vel í fjar­nám­inu. „Það kemur mér á óvart hvað þau halda sér flest vel við efnið þrátt fyrir allt. Mér finnst þau hafa verið mjög dug­leg.“

Nemendum líður misjafnlega

Kolbrún bað nem­endur sína að lýsa líðan sinni og hvernig þeim gengi í fjar­nám­inu. „Það er vax­andi kvíði í sam­fé­lag­inu og í skól­anum eru nem­endur sem voru kvíðnir áður en far­ald­ur­inn skall á. Og í kvíða er ein­angrun ekki að hjálpa,“ segir hún.

Nemendum hennar líður mis­jafn­lega. „Sumir sögð­ust vera mjög ein­mana og þrá ekk­ert heitar en að koma aftur í skól­ann.“

Líkt og hjá mörgum hefur orða­til­tækið eng­inn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur verið Kolbrúnu ofar­lega í huga upp á síðkastið. „Nemendur sem voru kannski komnir með skóla­leiða átt­uðu sig á því eftir að allt fór yfir í fjar­nám hvað skól­inn er stór partur af þeirra lífi.“

Í fjarnámi er meiri hætta á því að nemendur einangrist.
Í fjar­námi er meiri hætta á því að nem­endur ein­angr­ist.

Það sama eigi við um hana sjálfa. „Ég við­ur­kenni að stundum getur reynt á að vera kenn­ari í kennslu­stofu en ég sakna þeirra mikið núna. Ég vissi það áður en það er alveg skýrt núna að ég er kenn­ari af því að ég nýt þess að eiga í sam­skiptum.“

Þegar hún lítur í bak­sýn­is­speg­il­inn finnst henni fjar­kennslan almennt hafa gengið vel, „furðu­lega vel,“ segir hún. „Mér fannst yfir­færslan úr stað­námi í fjar­nám ger­ast hratt og nokkuð örugg­lega. Mér finnst mjög merki­legt hvað skóla­fólki á Íslandi hefur tek­ist vel upp, bæði starfs­fólki skól­anna og nem­endum. Það er líka merki­legt að verða vitni að því að stéttir þar sem konur eru í meiri­hluta hafi staðið í fram­línu þessa far­ald­urs. Þetta afhjúpar líka for­gangs­röð­un­ina í sam­fé­lag­inu. Þetta eru sömu stéttir og hafa hvað mest þurft að berj­ast fyrir bættum kjörum.“

Viðhorf vonandi að breytast

Kolbrún telur mögu­legt að við­horf til þess­ara lyk­il­stétta hafi breyst. „Ef þú tekur allt í einu eftir því að þú getur ekki lifað líf­inu án kenn­ara og heil­brigð­is­starfs­manna þá kannski áttar þú þig á virði þess­ara starfa. Að án leik- og grunn­skóla­kenn­ara hefði heil­brigð­is­starfs­fólkið okkar ekki getað unnið vinn­una sína. Og án góðra fram­halds- og háskóla­kenn­ara hefði ekki verið hægt að mennta þessa góðu lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Öll loka­prófin í Mennta­skól­anum á Akureyri verða raf­ræn og Kolbrún mun því ekki hitta nem­endur sína meira þessa önn­ina. „En ég er heppin því ég er Mennt­skæl­ingur og við hitt­umst á fimm ára fresti. Og þeir nem­endur sem eru að útskrif­ast núna munu einmitt fagna að fimm árum liðnum líkt og ég. Þannig að ég mun hitta þau á fimm ára fresti út lífið. Ég þarf ekki að kveðja þennan hóp.“

Hún seg­ist hlakka mikið til þess að mæta til kennslu í skóla­bygg­ing­unni næsta haust og hitta nem­endur augliti til auglitis. „Ég vona að það komi ekki önnur bylgja far­ald­urs­ins svo að þetta verði mögu­legt. En ef þannig fer þá erum við að minnsta kosti betur und­ir­búin fyrir fjar­nám.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár