Fjárlaganefnd samþykkir að öryrkjar fái 53.000 króna aukagreiðslu fyrir jólin

Samstaða hefur náðst í fjár­laga­nefnd um að greiða öryrkjum auka­greiðslu skatt­frjálst og skerð­ing­ar­laust fyrir jólin.

Samstaða hefur náðst í fjár­laga­nefnd um til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar að greiða öryrkjum 53.000 króna auka­greiðslu skatt­frjálst og skerð­ing­ar­laust fyrir jólin.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stjórn­ar­and­stöð­unni. Í henni segir að þing­flokkar Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar fagni því að sam­staða hafi náðst í fjár­laga­nefnd um auka­greiðsl­una.

„Stjórn­ar­and­staðan hefur und­an­farið barist fyrir því að rík­is­stjórnin greiði öryrkjum ein­greiðslu líkt og gert var fyrir síð­ustu jól. Í síð­ustu viku lögðu full­trúar flokk­anna í fjár­laga­nefnd fram breyt­ing­ar­til­lögu við fjár­auka­lög þess efnis. Það eru því gleði­tíð­indi að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hafi loks fall­ist á til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar og að fjár­laga­nefnd standi að baki slíkri til­lögu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Aðgerðin skiptir þúsundir heimila sköpum yfir hátíðirnar

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar seg­ist í stöðu­upp­færslu á Facebook í kvöld fagna því að sam­staða hafi náðst í fjár­laga­nefnd rétt í þessu um til­lögu um að greiða öryrkjum auka­greiðsl­una.

„Þing­flokkar Sam­fylk­ingar, Flokks fólks­ins, Pírata og Við­reisnar hafa und­an­farið barist fyrir því að rík­is­stjórnin greiði öryrkjum og ein­stak­lingum á end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri ein­greiðslu eins og gert var fyrir síð­ustu jól. Í síð­ustu viku lögðu full­trúar flokk­anna í fjár­laga­nefnd fram breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis.

Það eru því gleði­tíð­indi að stjórn­ar­meiri­hlut­inn hafi loks fall­ist á til­lögu stjórn­ar­and­stöð­unnar og að fjár­laga­nefnd standi að baki slíkri til­lögu. Aðgerðin skiptir þús­undir heim­ila sköpum yfir hátíð­irnar!“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár