Listflakkarinn

Listflakkarinn

Listflakkarinn og rithöfundurinn Snæbjörn Brynjarsson lýsir því sem ber fyrir augu og eyru, hvað á daga hans drífur og hvað er að gerast í listheimum. (Og svo inni á milli röfl).

Tístað til lög­regl­unnar ( 1.hluti ?)

„Oftar en ekki fá mál hjá lög­reglu far­sælan endir þótt tví­sýnt kunni að hafa verið um slíkt í upp­hafi,“hófst færsla hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu núna um dag­inn. Sögu­efnið var hrak­farir eldri konu sem týndi bíl og barni þegar hún gekk út vit­lausu megin í versl­un­ar­mið­stöð og hringdi í lög­regl­una. „Leitin stóð hins vegar stutt yfir því eftir rúmar 10 mín­útur,...

Fundað í gjánni

Árið 2004 synj­aði for­seti Íslands frum­varpi um fjöl­miðla sem Alþingi hafði sam­þykkt. Þingið hafði sam­þykkt lög sem meiri­hluti Íslend­inga var á móti, að kom­inn væri gjá milli þings og þjóðar. Það hefur auð­vitað oft verið gjá á milli vald­stjórn­ar­innar og fólks­ins, tveir menn sam­þykktu stuðn­ing þjóðar við Íraks­stríð þrátt fyrir að yfir 90% sömu þjóðar væru and­víg því. Fleka­skil verða...

Ljós­mæð­urnar og ráð­herr­ann

Fyrir nokkrum árum var orðið ljós­móðir valið fal­leg­asta orð íslenskrar tungu. Þetta er vissu­lega mjög fal­legt orð, en kannski svoldið væmið. Ljós og móðir saman hljómar of gott til að vera starfs­heiti, fæð­ing­ar­tækni­verk­fræð­ingur væri kannski betra. Ljótt orð sem hljómar samt eins og ein­hver á ráð­herra­launum. Ef við værum að verð­launa eftir mik­il­vægi starfs­stétta væru ljós­mæð­urnar svo sann­ar­lega á ráð­herra­kaupi,...

Hættum að bregð­ast Hauki

Eina raun­veru­lega bylt­ingin sem framin hefur verið á Íslandi er bylt­ing Jörgen Jörg­en­sens árið 1809. Líkt og allar úrbætur í rétt­indum Íslend­inga fyrr og síðar kom bylt­ingin utan frá, lýð­ræði, mann­rétt­indi, frjáls­lyndi og verka­lýðs­bar­átta eru allt inn­fluttar afurðir sem okkur hefur verið skammtað sam­kvæmt ströng­ustu toll­kvótum. Árið 1992 þegar mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu úrskurð­aði í máli Þorgeirs Þor­geir­sonar gegn íslenska rík­inu með...

Síðustu dagar íslenska fjöl­mið­ils­ins

Þján­ing­ar­frelsið er við­tals­bók við helstu leik­endur og ger­endur í fjöl­miðla­heimi Íslands í gegnum árin, eftir Auði Jóns­dóttur, Báru Huld Beck og Stein­unni Stef­áns­dóttur. Í for­mál­anum tekur Auður Jóns­dóttir sér­stak­lega fram að ekki er um fræði­bók að ræða, né heldur annál blaða­manna­fé­lags­ins, kannski ekki að ástæðu­lausu því manni gæti við lestur bók­ar­innar dottið það í hug. Þó svo ekki sé um...

Kosn­inga­þankar

Vanga­veltur yfir fram­boði eins pró­sents­ins. 1% þjóð­ar­innar fóru í fram­boð. Það er eig­in­lega bara pínu krútt­legt, frá­bært að svona margir treysti sér til erf­iðra verk­efna. Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar eru oft­ast mun fal­legri birt­ing­ar­mynd lýð­ræðis heldur en alþing­is­kosn­ingar. Fáum dettur í hug að dreifa óhróðri um nágranna sína og eftir kosn­ingar er oft auð­velt að finna sam­vinnu­grund­völl. Enda vilja allir hreinar götur,...

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill ekki að þú kjósir

Þórólfur heitir maður Hall­dórs­son. Sýslu­maður. Ferill hans er um margt athygl­is­verður. Hann sat í kjör­dæm­is­ráði fyrir sjálf­stæð­is­flokk­inn á norð­vest­ur­landi meðan hann gegndi emb­ætti sýslu­manns á Pat­reks­firði. Þá var hann kærður fyrir það að keyra um bæj­inn með kjör­kassa og safna í þau atkvæðum sjálf­stæð­is­manna. Fram­kvæmd kosn­inga á Íslandi er um margt sér­stök, en þetta var svona í sér­stak­ara lagi. Illa...

Sjálf­virk gagna­grein­ing sjálf­sagt mál

Í augna­blik­inu er Alþingi með til umfjöll­unar breyt­ingu á höf­unda­lögum sem eiga að leyfa sjálf­virka gagna­grein­ingu. Í stuttu máli snýst það um heim­ila og auð­velda rann­sóknir, þannig að algrímur og gervi­greindir geti nýtt sér texta í gagna­söfnun. Engin tapar pen­ing á þessu, enda eru gervi­greindir lítið í því að kaupa bækur, blöð eða „lesa“ í þeim skiln­ingi sem við leggjum...

Fyrrum ráð­herra ræðst á fjöl­miðil

Ögmundur Jónasson vegur að starfs­heiðri Þórðar Snæs rit­stjóra Kjarnans í pistli á bloggi sínu í dag. Þar vísar hann í rit­stjórn­ar­grein þar sem Þórður skrifar: Það liggur fyrir að nið­ur­staða rann­sóknar á meintum brotum for­stjór­ans fyrr­ver­andi hefur aldrei verið birt. Í stað þess hafi Ásmundur Einar Daðason, núver­andi ráð­herra, ein­fald­lega sagt þing­heimi ósatt um nið­ur­stöðu máls­ins, ákveðið ein­hliða...

Mest lesið undanfarið ár