Þessi færsla er meira en 8 ára gömul.

Fundarboð Pírata

Fundarboð Pírata

Viðbrögð við fundarboði Pírata eru fróðleg. Menn býsnast yfir því að réttur kjósenda sé ekki virtur eða hér séu klækjastjórnmál af verstu sort.

 

 

 

Menn hafa jafnvel orðið ansi stóryrtir eins og kemur fram í athugasemdum.
Benedikt Jóhannesson: Ég er örugglega of viðkvæmur, en verð samt að viðurkenna að mér finnst leiðinlegt þegar Lára Hanna Einarsdóttir vinkona mín kallar mig mellu og fjölmargir vinir mínir láta í ljós velþóknun á Facebook. Með færslu hennar fyglja svo alls kyns útlistanir á skilyrðum Pírata og hve ómerkilegt sé að gangast ekki undir þau.

Lára Hanna segir: „Ég skora á ykkur, Benedikt og Óttarr, að endurskoða viðhorf ykkar. Að öðrum kosti mun þorri kjósenda - vona ég - líta á ykkur sem mellur íslenskra stjórnmála. Opnir fyrir öllu, líka spillingunni. Sorrí, strákar - þannig er það bara.“

Bréfið sem ég fékk talar ekkert um stjórnarmyndun, ekkert um skilyrði, ekkert um að kalla flokka saman, ekkert um hverja á ekki að tala við. Hér er mynd af bréfinu.

Eigum við ekki öll að hefja umræðuna upp á aðeins hærra plan?

Baldur Þorhallsson, stjórnmálafræðingur er með góða greiningu: Snjallt útspil hjá Pírötum. - "Tillaga Pírata um kosningabandalag og stjórnarsáttmála fimm flokka hefur sannarlega hrist upp í kosningabaráttunni. Þrátt fyrir að fyrirfram væri vitað að tilraunin væri dæmd til að mistakst þá hefur hún skilað tilætluðum árangi með því að staðfesta að Píratar eru róttækt umbótaafl sem er staðráðið í því að breyta íslenskum stjórnmálahefðum. Tvennt nýtt felst í tillögunni; annars vegar að Píratar hafa útilokað stjórnarsamstarf við Framsóknarflokkinn og að þeir líta á Viðreisn sem flokk sem kominn er til að vera. Þegar höfðu forystumenn Pírata, Vinstri grænna og Samfylkingar útilokað samstarf við Sjálfstæðisflokkinn en nú hafa Píratar með nýjustu yfirlýsingum sínum hafnað samstarfi við nýja forystu Framsóknarflokksins og teygt sig yfir miðjuna til hægri til Viðreisnar. Í þessu felast nokkur tíðindi. Píratar hafa einnig stolið senunni af bæði Vinstri grænum og Sjálfstæðismönnum sem eru farnir að mælast stærri en þeir í skoðanakönnunum. Forystusveit Pírata gefur skýrt til kynna að þeir vilja verða leiðandi í næstu ríkisstjórn og ætla sér ekki að vera þriðja, fjórða eða jafnvel fimmta hjólið undir vagninum. Útspil Pírata setur Bjarta framtíð og Viðreisn jafnframt í nokkurn vanda.  Flokkarnir dansa nú á línunni milli hægri og vinstri og kjósendur vita ekki í hvorn fótinn þeir ætla að stíga. Boð um stjórnarmyndunarviðræður til þessara flokka setur þá hins vegar á kortið og gerir þá að alvöru afli í kosningabaráttunni en ekki eru nema nokkrar vikur síðan að skoðanakannanir sýndu að hvorugur þessa flokka næði mönnum á þing. Nú er þeim boðið til stjórnarmyndunarviðræðna. Það sýnir þann árangur sem þeir hafa náð í kosningabaráttunni. Samfylkingin flýtur með og grípur fastataki hverja þá líflínu sem kastað er að henni."

Sjáffur segir Smári McCarthy:  "Til að það komi skýrt fram: Píratar hafa ekki stjórnarmyndunarumboð; þar til búið er að telja upp úr kössunum hefur enginn slíkt umboð. Við erum því ekki að boða til stjórnarmyndunarviðræðna, við erum að boða til samstarfsviðræðna. Munurinn skiptir miklu máli ─ við erum að tala um málefni, ekki embætti!" - Svo virðist sem Bf. sé viljandi að misskilja þetta og haldi að það sé klókt.

-0-

Eins og ég les bréfið þá er verið að kanna sameiginlega fleti samstarfs EFTIR kosningar. Í raun fjallar bréfið ekki um stjórnarmyndun eða skiptingu ráðherraembætta.

Skilningurinn er gamli kúltúrinn - ætlunin nýi kúltúrinn.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni