
Fimm fyrirtæki ábyrg fyrir fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands
Ál- og kísilverin ásamt Icelandair eru stærstu losendur gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Tæp fjörutíu prósent af heildarlosun án landnotkunar má rekja til framleiðslu málma. Á alþjóðavísu bera 32 fyrirtæki ábyrgð á helmingi allrar losunar heimsins.






























