„Ísland gæti verið næst“

Aaja Chemnitz er fulltrúi Grænlands á danska þinginu. Þar berst hún fyrir auknu jafnræði á milli þjóðanna, réttindum og velferð Grænlendinga sem þurfa að takast á við marg­víslegar áskoranir. Hún segir mikilvægt að Græn­lend­ingar öðlist allt í senn efnahagslegt og pólitískt sjálf­stæði.

Tæpum klukku­tíma eftir að Aaja Chemnitz lendir í Nuuk hefur hún mælt sér mót við blaðamenn Heimildarinnar á kaffihúsi menningar­miðstöðvarinnar. Farangurinn liggur við fætur hennar, en hún var að koma frá Danmörku þar sem hún er annar tveggja fulltrúa grænlenska þingsins. Áður sat hún á þingi Grænlendinga, en undan­farin sjö ár hefur hún talað máli þeirra í Danmörku. „Mér finnst það áhugavert. Þetta er mjög menningar­næmt, að vera í suðupotti þessara tveggja menningar­heima sem eru eins ólíkir og hægt er, hvort sem um er að ræða menningu, tungumál eða lífshætti, þá er mikill munur á Dönum og Grænlendingum.“

Hún biður um smástund til þess að ljúka við tebollann og taka stöðuna. Þar sem hún situr ein við borðið og drekkur í rólegheitunum virðist allt vera með kyrrum kjörum, en hún er engu að síður stödd í miðju stormsins.

Fyrr um morguninn hafði hún lýst því á Facebook hvað …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár