„Ég er ein af þessum konum“

Í þrjú ár hafði Inga Dóra Guðmunds­dóttir reynt að eignast barn áður en það uppgötvaðist að hún var með lykkju. Lykkjunni hafði verið komið fyrir án hennar vitundar eða vilja. Uppgötvunin var alvarlegt áfall en nú getur hún sótt rétt sinn til danska ríkisins. Hún segir margt enn óuppgert, þótt þessar þjóðir þurfi nú að standa saman.

Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var meðal annars bæjarfulltrúi í Nuuk og jafnframt formaður Siumut-flokksins í Nuuk, einnig ritstjóri elsta dagblaðs Grænlands og framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins.
Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var meðal ann­ars bæj­ar­full­trúi í Nuuk og jafn­framt for­maður Siumut-flokks­ins í Nuuk, einnig rit­stjóri elsta dag­blaðs Græn­lands og fram­kvæmda­stjóri Vest­nor­ræna ráðs­ins. Mynd: Golli

Inga Dóra Guðmunds­dóttir hefur alla tíð lifað á mörkum ólíkra heima, líkt og verndar­táknin á höndum hennar gefa til kynna. Á annarri hendinni er húðflúr sem byggir á íslenskum tákn­myndum, en á hinni hefur hún leitað í ræturnar á Grænlandi. Húðflúrin eru jafnstór og sett upp með nákvæmlega sama hætti, hún er með inúíta-tattú. Þau fékk hún sér við það að stíga inn í erfiðan pólitískan slag, vitandi að hún þyrfti á öllum sínum styrk að halda. 

Inga Dóra hefur komið víða við á sínum ferli. Hún var bæjar­fulltrúi í Nuuk og jafnframt formaður Siumut-flokksins í Nuuk, einnig ritstjóri elsta dagblaðs Grænlands og framkvæmda­stjóri Vestnorræna ráðsins. Hún hóf ferilinn við ferða­þjónustu og er í dag framkvæmda­stjóri sjálfbærni og samskipta fyrir Air Greenland. Á bak við allt sem hún hefur tekið sér fyrir hendur hafa legið spurningar um það að tilheyra, axla ábyrgð og reyna að skilja samfélag sem …

Kjósa
72
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Þetta er samið fyrir ykkur kæru Grænlendingar!
    https://music.youtube.com/watch?v=GQ1YmGSBYIg&si=pBByY7Bu3Ma3DAg8
    -1
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Dásamleg lýsing og upplifun frjásrar manneskju í landi sem á rétt á að lifa í friði í sínu heimalandi án afskipta frékjudóna.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Auðvitað var lykkju málið ekkert annað en tilraun til þjóðarmorðs. Og kemur ekki á óvart að Íslensk stjórnvöld hafi ekki staðið með Grænlendingum, því hér eru gildin meira í hinum hefðbundna pýramída, silfrið er efst og allt annað er neðar. Mannréttindi og kvenréttindi eru fallegt helgidaga skraut en skora samt í raun ekki hátt í okkar gildismati. Svo er okkur alveg fyrirmunað að skilja að einhverjir geti hugsað, lifað og tjáð sig eftir öðrum gildum og mati en það sem við höfum.
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár