Snúningshurð stjórnmála og hagsmuna

Bjarni Bene­diktssson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, hefur störf hjá Samtökum atvinnu­lífsins rúmu ári eftir að hann vék úr stjórn­málum. Prófessor segir það kallað „snúnings­hurð“ þegar stjórn­málamenn fara í stöður hjá hagsmuna­vörðum eða starfs­menn hagsmuna­samtaka eru ráðnir inn í stjórn­kerfið. Þetta sé algengt á Íslandi en stjórn­málamenn segist oft eiga erfitt með að finna vinnu.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Bene­dikts­son Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fór úr við­skipta­líf­inu í ráð­herra­stól og mun nú sinna hags­muna­vörslu fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins. Mynd: Golli

Bjarni Benediktsson, lögfræðingur, fyrr­verandi formaður Sjálfstæðis­flokksins, forsætis­ráðherra, fjármála­ráðherra og utan­ríkis­ráðherra, hefur verið ráðinn sem framkvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífsins (SA). Hlutverk hans verður að sinna hagsmuna­gæslu fyrir samtökin, aðildar­félög þeirra úr sjávar­útvegi, orku­geiranum, fjármála­kerfinu, iðnaði, verslun og víðar, og þau yfir 2.000 fyrirtæki sem eiga þar aðild. Standa þau að baki um 70% allra launa­greiðslna á almennum vinnu­markaði.

Það hefur verið þekkt – en umdeilt – bæði hérlendis og erlendis að stjórn­málamenn fái stöður hjá hagsmuna­samtökum að stjórn­málaferli loknum en raunar var Bjarni virkur þátt­takandi í viðskipta­lífinu fyrstu fimm ár stjórnmála­ferils síns þó að umfang þátttöku hans hafi ekki orðið ljóst fyrr en síðar.

Bjarni tekur við nýja starfinu 1. mars næst­komandi en það var 6. janúar í fyrra sem hann tilkynnti skömmu eftir alþingis­kosningar að hann hygðist hætta á þingi og segja af sér formennsku í Sjálfstæðis­flokknum. Flokkurinn hafði þá hlotið sína verstu kosningu frá upphafi og fékk í …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár