Mynd: Golli

„Ég er barn náttúrunnar“

Sé Kim Kielsen, forseta grænlenska þingsins, flett upp á netinu má lesa að árin sem hann var forsætis­ráðherra, 2014 til 2021, hafi hann stýrt málum sem sneru að flóknu sambandi Grænlands við Banda­ríkin – og þá Pentagon – vel í höfn. Enda er hann fyrrum sjómaður! En áhersla hans á velferð barna stendur upp úr. „Börnin okkar skipta mestu máli. Ekki flug­völlurinn, ekki höfnin, ekki húsin. Alltaf börnin, alltaf,“ segir hann.

Úti er þrettán stiga frost, algjör bruna­gaddur, þegar amerískur GMC-pallbíll með grænlenskum fána blaktandi á pallinum keyrir fram hjá blaða­mönnum í myrkri, þar sem þeir fóta sig meðfram sjónum, innan í þyrpingu gamaldags timbur­húsa, í leit að kvöldmat. Bíllinn stoppar við eitt af þessum húsum sem stendur uppi í brekku og ekki úr vegi að spyrja bílstjórann út í fánann, í það minnsta fá af honum mynd. 

Karlmaður í kulda­galla stígur út úr pall­bílnum, þrekinn með kímið augnaráð þegar hann horfir með þöglu brosi á blaðamenn sem uppgötva að þarna stendur enginn annar en Kim Kielsen, forsætis­ráðherra Grænlendinga á árunum 2014 til 2021 og formaður flokksins Siumut megnið af tímanum. Nú er hann forseti grænlenska þingsins. Og eins konar goðsögn. 

Það ber á góma að við séum íslenskir blaðamenn sem viljum gjarnan tala við hann. „Já já já já,“ segir hann. 

Talarðu íslensku? 

„Já já …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár