Landið sem enginn á

Græn­lend­ingar og Danir hafa staðið þétt saman andspænis hótunum Donalds Trump að eignast Grænland en flókið nýlendu­samband þjóðanna er óuppgert. Grænland hefur reynt að laða að fjár­festingar, styrkur efnahagur er undir­staða sjálf­stæðis. En nú virðast Bandaríkja­menn vera að reyna að „bíta sig inn í Grænland.“

Hvert liggur leið grænlenskrar stelpu?
Hvert liggur leið græn­lenskrar stelpu? Mynd: Golli

IAlþjóðaflugvöllurinn í Nuuk

Á nýja alþjóða­flug­vellinum kenndum við Nuuk má sjá um tuttugu þýska hermenn í einkennis­búningi, á leið heim af NATO-æfingu. Einn þeirra kaupir sér sælgæti: Gajol og súkkulaði. Hótanir Trumps liggja í loftinu þegar blaðamenn og ljós­myndari Heimildarinnar lenda á landi sem á sig sjálft því á Grænlandi á enginn land, fólk fær aðeins skika til afnota; Grænland á sig sjálft.

Sú staðreynd ein lýsir upp andstæður veruleika þeirra sem heims­pressan hefur fjallað um síðustu vikur. Annars vegar fyrrum fasteigna­móguls í forseta­embætti umlukinn þef af kapítalisma í hanastéls­boðum á Manhattan. Hins vegar samfélag með innbyggða sjálfbærni í lifnaðar­háttum sínum, nefnilega Grænland.

Í fyrr­nefndum veruleika þrífst erfingi Estée Lauder, hinn 81 árs Ronald Lauder, sem þekkt hefur Trump í sextíu ár og verið kallaður sparring-partner hans, eins konar boxþjálfari í iðu Manhattan. Orð Johns nokkurs Bolton, fyrrum þjóðar­öryggis­ráðgjafa Trumps, eru höfð fyrir því að það …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíðarinnar – lifði af sjálfsvígs­tilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yfir rödd sem hann nýtir til þess að miðla upplýsingum, greiningum og hugsunum til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Grænlands, ungur hugsjóna­maður sem nýtir samfélags­miðlana til að fá fólk til að hugsa og setja hlutina í rétt samhengi. Og eftir að hafa lifað af sjálfsvígs­tilraun hjálpar hann öðrum til að lifa af – og tala um tilfinningar.

19 mín. lestur

ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var ofbeldis­fullur“

Þegar Embla Kristjáns­dóttir hóf sambúð með Niels Thomassen fékk hún að kynnast nýrri hlið á manninum sem hún elskaði, þar sem stjórnsemi, afbrýðisemi og reiði réðu ríkjum. Hann gekkst við ofbeldinu, axlaði ábyrgð og hefur unnið þrotlaust í sjálfum sér síðasta áratug. Nú miðlar hann reynslu sinni og hvetur aðra karlmenn sem glíma við sama vanda að tjá tilfinningar sínar og standa berskjald­aðir.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár