Gamli refurinn stóð uppi sem sigurvegari

Claudio Ranieri tókst hið ómögu­lega, að gera Leicester City að enskum meist­ara í fót­bolta. Hvernig fór hann að þessu? Ranieri er íhalds­samur, og trúir á ein­falda mark­miða­setn­ingu. Svo setur hann hlut­ina í hendur leik­manna.

Eftir mikið sál­fræð­i­stríð, tauga­stríð og hálf­gert stríð inn á vell­inum sömu­leiðis, voru það leik­menn Leicester City sem gátu leyft sér að fagna eins og óðir væru, á heim­ili fram­herj­ans Jamie Vardy, þegar ljóst var að liðið hafði tryggt sér sigur í ensku úrvals­deild­inni í fót­bolta þetta árið.

Árang­ur­inn þykir með allra ótrú­leg­ustu íþrótta­afrekum í seinni tíð, og aðeins sigur Nott­ing­ham Forrest, árið 1978, kemst nálægt þeim ólík­indum sem sigur Leicester er í sögu enska fót­bolt­ans. Fót­bolta­heim­ur­inn allur virð­ist í hálf­gerðu „sjokki“ því þetta átti ein­fald­lega ekki að vera hægt. Lið, þar sem sam­an­lagt virði byrj­un­ar­liðs­ins var 22 millj­ónir punda – eða sem nemur innan við helm­ingnum af dýrasta leik­manni Manchester City – átti ekki að geta þetta. Í 132 ára sögu félags­ins var sigur í efstu deild ekki raun­hæfur mögu­leiki. En þetta breytt­ist þegar reynslu­mik­ill Ítali mætti á æfinga­svæðið og byrj­aði að starfa með gömlum sam­starfs­manni sínum hjá Chelsea, hinum kenn­ara­mennt­aða Steve Walsh. Hann starf­aði þá sem leik­greinir í leik­manna­vali, og náðu þeir vel saman.

Ranieri mætir á svæðið

Ítalinn Claudio Ranieri tók við Leicester í júlí 2015. Á undan honum hafði Nigel Pearson verið við stjórn­völ­inn. Óhætt er að segja að þessir tveir menn séu ólíkir, þegar kemur að stjórn­un­ar­stíl. Pearson var frægur fyrir að taka virkan þátt í æfingum, og vaða í leik­menn í tæk­lingum og skalla­ein­vígum, þrátt fyrir að hafa lítið erindi í leik­inn sökum lélegs forms og ald­urs. Skap­vonskuköst hans voru einnig fræg. Hann átti það til að gjör­sam­lega sturl­ast og haga sér eins og ótemja. Ástríðan var hans helsti styrkur og veik­leiki.

Það sem verra var, að Pearson náði heldur ekki góðum árangri, eftir því sem leið á. Hann var aðal­lega bara brjál­aður undir lokin, og missti því eðli­lega starfið. Góður árangur í fyrstu var ekki nóg.

Ranieri er sagður dæmi­gerður ítalskur herra­maður. Rólegur, ákveð­inn og talar til leik­manna með mikla reynslu í fartesk­inu. Hann setti fljót­lega mark sitt á liðið og ákvað að vinna þétt með Steve Walsh, sem nú er aðstoð­ar­maður hans. Frá honum komu góðar hug­myndir og góð ráð. Sumar hug­mynd­anna reynd­ust afdrifa­ríkar í meira lagi, eins og sú að hálf­part­inn skipa Ranieri að kaupa N‘Golo Kanté frá Caen í Frakk­landi fyrir 5,6 millj­ónir punda. Hann var nán­ast óþekktur áður en Leicester keypti hann, en Walsh var sann­færður um að þetta væri leik­maður sem Leicester þyrfti á að halda.

Frá því að hinn 25 ára gamli Kanté kom til félags­ins hefur hann verið einn allra besti leik­maður úrvals­deild­ar­innar. Duglegur og gerir fá mis­tök. Tveggja manna maki í varn­ar­leik liðs­ins á miðj­unni, og oft ógn­andi fram á við sömu­leiðis. Hann hefur verið mik­il­vægur hlekkur í keðj­unni hjá Leicester, sem hefur staðið allt af sér.

Var ekki skrifað í skýin í upphafi

Ranieri er ekki sá knatt­spyrnu­stjóri sem kemur fyrst upp í hug­ann, þegar sigur er til umræðu. Fram að sigrinum stór­kost­lega með Leicester, sem raun­gerð­ist í gær þegar Chelsea og Totten­ham gerðu 2-2 jafn­tefli á Stamford Bridge, hafði Ranieri aldrei gert lið að deild­ar­meist­ara. Hann komst nálægt því með Chelsea árið 2004, Valencia 1998 og Juventus 2008, en allt kom fyrir ekki. Hann var alltaf í öðru sæti, eða neðar. Aldrei komu deild­ar­meist­aratitlar.

En Ranieri hefur samt haft á sér gott orð sem knatt­spyrnu­stjóri, og þykir þægi­legur í umgengni og mik­ill fag­maður. Sjálfur hefur hann sagt, að besti leik­maður sem hann hafi þjálfað sé Frank Lampard, goð­sögn Chelsea, sem er marka­hæsti miðju­maður í sögu deild­ar­innar. Ekki Zola. Ekki Roberto Baggio. Ekki Totti. Heldur Lampard.

Ástæðan er ekki síst sú að Lampard end­ur­speglar þá þætti sem Ranieri vill sjá hjá leik­mönnum. Hlýðni, aga og skil­virkni. Hann vill að leik­menn leggi sig fram, en haldi ein­beit­ingu, og sinni sínu hlut­verki. Nái að hámarka eig­in­leika sína í hverjum leik.

Ranieri á langan feril að baki en hann hefur verið knatt­spyrnu­stjóri hjá atvinnu­manna­fé­lögum í efstu deildum, á Ítalíu, Spáni, Frakk­landi og Englandi, frá því árið 1988. Þá stýrði hann Cagliari á miklu upp­bygg­ing­ar­skeiði, og tók svo við Napoli árið 1991 og stýrði því til 1993. Félagið var í sárum eftir að Diego Maradona, besti knatt­spyrnu­maður heims, var hand­tek­inn í kóka­ín­vímu, í beinni útsend­ingu í sjón­varpi, og settur í leik­bann. 

Svo tók Fior­ent­ina við (1993 til 1997), Valencia (1997 til 1999), Atletico Madrid (1999 til 2000, rek­inn 3. mars eftir afleitt gengi), Chelsea (2000 til 2004), aftur Valencia (2004 til 2005), Parma (12. febr­úar til 31. maí 2007. Tíma­bundið starf), Juventus (2007 til 2009), Roma (2009 til 2011), Inter (2011 til 2012) og Mónakó (2012 til 2014). Áður en Ranieri tók við Leicester stýrði hann gríska lands­lið­inu í fjórum leikjum, frá júlí 2014 og fram í nóv­em­ber sama ár. Á þessum tíma tap­aði Grikk­land þremur leikjum og gerði eitt jafn­tefli. Síðasti leik­ur­inn var nið­ur­lægj­andi tap gegn Fær­ey­ingum.

Rúmlega hálfu ári seinni birt­ist hann hjá Leicester, og gerðu enskir fjöl­miðlar grín að þess­ari end­ur­komu Ranieri. Rifjuðu upp úrslitin hjá Grikkjum, og töldu að Ranieri væri ekki stjóri sem gæti náð árangri með Leicester. Árangur á þeim bænum, væri að halda lið­inu í deild­inni.

Einn af þeim sem var skept­ískur á hinn 65 ára gamla Ítala var Gary Lineker, lík­lega fræg­asti leik­maður í sögu Leicester – fram að þessu tíma­bili. „Ranieri? Í alvöru?“ sagði hann á Twitter. Hann hefur síðan við­ur­kennt að hafa van­metið Ranieri, og segir komu hans hafa verið það stór­kost­leg­asta sem gerst hefur hjá Leicester. Hann mun þurfa að standa við stór orð um að lýsa í sjón­varpi í nær­buxum einum fata, en það sagð­ist hann ætla að gera ef Leicester myndi vinna tit­il­inn. Í fyrstu útsend­ing­unni næsta haust, verður Lineker því létt­klæddur en vafa­lítið með bros á vöru, enda Leicester hans upp­eld­is­fé­lag.

Markmiðin endurskoðuð aftur og aftur og aftur...

Ranieri er sagður vinna með til­tölu­lega ein­falda hug­mynda­fræði sem knatt­spyrnu­stjóri. Hann setur leik­manna­hópnum mark­mið, gefur til kynna hvaða leik­menn hann lítur á sem fyrstu val­kosti í byrjun tíma­bils, en end­ur­skoðar mark­miðin og val­kosti í leik­manna­málum stans­laust. Hann hefur stundum verið sagður of fjar­lægur leik­manna­hópnum, og það geri leik­mönnum erfitt fyrir. Skila­boðin ber­ist ekki nógu vel til liðs­ins.

Hjá Leicester virð­ist hann hafa lagt sig fram um að ná trún­aði leik­manna. Hann lof­aði mönnum pizzu-veislu ef þeim tæk­ist að halda hreinu, og hann neydd­ist til að standa við það þegar Jamie Vardy rukk­aði hann um það í við­tali. Ítölsk pizzu-veisla var óhjá­kvæmi­leg eftir það, öllum til ánægju.

Óhætt er því að segja að þetta hafi ekki verið vanda­mál hjá Leicester, að skila­boðin kæmust ekki til leik­manna. Steve Walsh hafði séð til þess, að helstu leik­menn liðs­ins myndu taka Ranieri vel, og vinna eftir þeirri huga­mynda­fræði sem hann legði upp. Allir þyrftu að skila sínu og sína sam­starfsvilja.

Strax í upp­hafi móts þóttu spek­ingar sjá merki þessi, að Ranieri væri að inn­leiða aga og hlýðni í bar­átt­uglaðan hóp, sem stundum hefði farið fram úr sér. Skapmenn eins og Jamie Vardy, Robert Huth, Danny Drinkwater og fyr­ir­lið­inn Wes Morgan, sýndu allir gott for­dæmi með fag­mann­legri fram­göngu. Með Kanté og hinn magn­aða Riyad Mahrez, mynd­uðu þessir leik­menn sterkan kjarna úti­leik­manna, en á milli stang­anna óx Daninn Kasper Schmeichel með hverjum leiknum. Hann bjarg­aði lið­inu hvað eftir annað, og reynd­ust sjö 1-0 sigrar liðs­ins í deild­inni afar mik­il­vægir þegar upp var staðið. Faðir hans Peter var stoltur af frammi­stöð­unni, og lét hafa eftir sér í gær að árangur son­ar­ins jafn­að­ist á við alla titl­ana hjá honum sjálfum, þegar hann varði markið í gríð­ar­lega sterku liði Manchester United.

Meistaradeild á næsta tímabili

Leicester City mun hefja leik á næsta tíma­bili sem enskur meist­ari og mun þurfa að stækka leik­manna­hóp­inn tölu­vert, til að stand­ast aukið leikja­á­lag sem fylgir þátt­töku í Meist­ara­deild Evrópu. Hver hefði trúað þessu?

Líklega bara leik­menn­irnir og síðan Ranieri sjálfur. En það gerð­ist samt ekki fyrr en að líða tók á tíma­bilið. Í takt við aðferða­fræði sína þá setti hann fyrst markið á að ná 40 stigum, svo að sætið í deild­inni væri tryggt. Síðan var það 55 stig. Svo end­ur­skoð­aði hann mark­miðið í þriðja sinn og stefndi á sæti í Evr­ópu­keppni. Svo var það Meist­ara­deild Evrópu. Og þegar tit­ill­inn var í sjón­máli, brosti hann iðu­lega í við­tölum og sagði að hann væri fjar­lægur draumur. Allt þar til fimm leikir voru eftir, þegar enskir fjöl­miðlar fóru að rifja það upp, að Ranieri hefði aldrei unnið deild­ar­meist­ara­titil á tæp­lega þrjá­tíu ára ferli sínum. Þá mætti hann alvöru­gef­inn í við­tal og sagði skýrt: „Nú er þetta í höndum leik­manna minna.“

Tit­ill­inn fór til þeirra að lokum, og það örugg­lega. Því Leicester hefur sjö stiga for­ystu á Totten­ham, sem er í öðru sæti, þegar tveir leikir eru eftir af tíma­bil­inu. Ótrú­leg­asti sigur í sögu ensku úrvals­deild­ar­innar, sem stofnuð var 1992, verður seint topp­aður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár