Lögleiðing kannabis í Kaliforníu hafi alþjóðleg áhrif

Kjós­endur greiddu atkvæði um að lög­leiða kanna­bis í sjö ríkjum í kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum í gær.

Neysla kannabis er víða lögleg í Bandaríkjunum.
Neysla kanna­bis er víða lög­leg í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Banda­ríkja­menn kusu um fleiri hluti en næsta for­seta lands­ins í kosn­ing­unum í gær. Á kjör­seðl­inum gátu Banda­ríkja­menn kosið fólk í hin ýmsu emb­ætti: þing­sæti, rík­is­stjóra, dóm­ara og sak­sókn­ara. Kjör­seð­ill­inn var mjög mis­mun­andi eftir ríkjum. Sum staðar mátti einnig kjósa um ein­staka mál­efni. Í nokkrum ríkjum völdu kjós­endur að leyfa neyslu mari­júana.

Kannabis hefur verið lög­leitt í Kali­forníu, Massachusetts, Nevada, Florida, Akransas, Arizona og Norður-Dakóta eftir kosn­ing­arnar í gær. Þetta er mik­ill sigur fyrir þá sem hafa barist fyrir lög­leið­ingu kanna­bis og bæt­ast þessi ríki í hóp nokk­urra ann­arra sem þegar hafa lög­leitt neyslu kanna­bis.

Í flestum til­vikum er hins vegar ekki um að ræða algert frelsi með sölu og neyslu kanna­bis. Í flestum ríkjum sem leyfa neyslu þess eru settar tak­mark­anir.

Í Kali­forníu er gert ráð fyrir því að mark­aður með kanna­bis verði stærri en kanna­bis­mark­aður ríkj­anna Colorado, Washington, Oregon og Alaska sam­an­lagt eftir lög­leið­ing­una. Kali­fornía er eitt og sér fimmta stærsta hag­kerfi heims og er talið að þessar reglu­breyt­ingar muni hafa alþjóð­leg áhrif á kanna­bis­markað.

Colorado og Washington voru fyrstu ríkin í Banda­ríkj­unum til að lög­leiða kanna­bis­neyslu en síðan hefur mark­aður með kanna­bis verið sá sem vaxið hefur hvað hrað­ast í Banda­ríkj­unum.

Jafnvel þó ein­staka ríki í Banda­ríkj­unum hafi breytt um stefnu hvað þetta mál varðar er kanna­bis enn bannað eit­ur­lyf í alrík­is­lögum í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár