Kynlífshneyksli og almenn vandræði franska landsliðsins

EM í fót­bolta er á næsta leiti. Það ríkir mikil eft­ir­vænt­ing en óveð­ur­skýin hrann­ast upp hjá gest­gjöf­unum, Frökkum. Það eru vand­ræði í lands­lið­inu. Og ekki í fyrsta sinn. Það virð­ist vera ein­hver sér­stök frönsk hefð að lands­liðs­menn skapi sér vand­ræði, rugli öllu, komi sér út úr lið­inu með stælum og leið­indum. Eric Cantona, David Ginola, Franck Ribery – dæmin eru mýmörg. Bestu leik­menn Frakk­lands spila ekki með lands­lið­inu. Vegna vand­ræða. Hvað er þetta eig­in­lega? Merde. Nú er það Benzema.

Fjárkúgun og kynlífsmyndband

Einn helsti mátt­ar­stólpi franska lið­ins, Karim Benzema, er sak­aður um að hafa tekið þátt í fjár­kúg­un­ar­máli gegn liðs­fé­laga sínum og vini, Mathieu Valbuena. Lög­reglan rann­sakar málið og lík­legt þykir að ákæra verði gefin út á næstu dögum. Þetta mál er næstum því jafn skrítið og dramat­ískt og fjár­kúg­un­ar­málið gegn for­sæt­is­ráð­herra vorum.

En hér er það kyn­lífs­mynband sem á að vera til af hinum lipra og smá­vaxna Vabuena. Benzema hefur játað aðild að mál­inu, að hafa komið þeim skila­boðum til félaga síns að ef hann greiddi ekki til­tekna upp­hæð yrði mynd­bandið gert opin­bert. Ekki fylgir sög­unni hvað sé að ger­ast í þessu for­vitni­lega mynd­bandi (það er hið ósagða sem er ávallt mest spenn­andi í fréttum) en Valbuena brást við eins og Sig­mundur Davíð og fór með málið beint til lög­regl­unnar.

Benzema hefur játað að hafa farið til félaga síns og rabbað við hann um þetta meinta kyn­lífs­mynd­band á lands­liðsæf­ingu í síð­asta mán­uði. Ekki er ljóst hvað bein­línis fór fram á milli þeirra; hvort þarna hafi átt sér stað hótun, kúgun, ráð­gjöf. En Benzema seg­ist hafa farið til hans í umboði gam­als æsku­fé­laga – sem vildi kúga fé úr Valbuena.

Þetta er allt saman skrítið – því þeir eru sagðir miklir vinir. Þann 17. nóv­em­ber 2010 skor­uðu þeir mörkin í 2-0 sigri gegn Englandi. Í þar næstu viku mæt­ast þessar þjóðir á ný – eng­inn sem lék með Frökkum í þessum leik er lengur í lið­inu. Nú eru þeir báðir út úr lið­inu. Benzema og Valbuena.

Það er nafni, nágranni og gam­all vinur Benzema, Karim Zenati, sem virð­ist vera aðal­söku­dólg­ur­inn í þessu fjár­kúg­un­ar­máli. Hann er marg­dæmdur glæpa­maður og virð­ist hafa flækt vin sinn í þetta furðu­lega mál; Benzema virð­ist vera í vondum félags­skap - hann er sendi­boð­inn, kemur skila­boðum og hót­unum áleiðis.

Og Valbuena fór beint í lög­regl­una og nú tal­ast þeir ekki við og hata hvorn annan – tveir lyk­il­menn franska lands­liðs­ins. Það er ekki víst að Benzema verði með á EM næsta sumar. Hann gæti jafn­vel misst af því að horfa á keppn­ina því hann gæti átt yfir höfði sér fimm ára fang­elsi.

Vandræðagaurinn Karim Benzema

Hvað vakir fyrir Benzema? Lyk­il­maður í Real Madrid, einn launa­hæsti leik­maður heims með tugi millj­óna á mán­uði. Hvers vegna er hann að blanda sér í ómerki­legt fjár­kúg­un­ar­mál fyrir nokkra tíkalla – korter í stór­mót? Það er eins og sagt var um annan mann:

„Þú getur tekið strák­inn úr skíta­hverf­inu en þú tekur aldrei skíta­hverfið úr stráknum.“

Benzema er götu­strákur. Og virð­ist, þrátt fyrir frægð og frama, enn vera undir hælnum og líta upp til gangster­anna í gamla hverf­inu. Hann er einn óvin­sæl­asti íþrótta­maður Frakk­lands – raunar einn óvin­sæl­asti maður lands­ins. Þykir hroka­fullur maður með enda­lausa stjörnu­stæla. Eftir verk­fallið fræga á HM 2010 urðu franskir lands­liðs­menn jafn­vel óvin­sælli en óvin­sæl­ustu stjórn­mála­menn land­ins. Það sló svo botn­inn úr sama ár þegar Benzema ásamt þeim Franck Ribery, Sidney Govou og Hatem Ben voru ákærðir fyrir sam­ræði við vænd­is­konu undir lög­aldri. Ákæran var felld niður 2011 vegna þess að ekki þótti sannað að þeir hafi vitað að vænd­is­konan væri undir lög­aldri. Þrátt fyrir það eru þessir menn enn and­styggi­legir í augum marga. Skíta­pésar.

Eins og ríf­lega helm­ingur franska lands­lið­ins er Benzema fæddur og upp­al­inn í Lyon sem virð­ist vera eins­konar upp­eld­is­stöð franska fót­bolta­heims­ins. Eins og Zidane er hann af alsírsku bergi broti. Hann er inn­flytj­andi, alinn upp í stórri fjöl­skyldu. Þótti undra­barn í fót­bolta og var boð­inn samn­ingur við stór­liðið Lyon, ein­ungis 9 ára gömlum. Aðeins tví­tugur varð hann meist­ari með lið­inu, marka­hæsti maður Frakk­lands með 30 mörk og val­inn leik­maður árs­ins. Þaðan gekk hann til liðs við Real Madrid á Spáni þar sem hann leikur enn. Hann var ekki með á HM 2010 en hefur verið lyk­il­leik­maður liðs­ins síðan Laurent Blanc, tók við lið­inu. Allt franska liðið hefur verið byggt upp í kringum Benzema.

En Benzema er ekki vin­sæll. Hann er eng­inn Zidane. Þátt fyrir að brill­era með einu besta félags­liði heims gerði hann í raun fátt eft­ir­minni­legt á síð­asta HM og nú virð­ist hann vera end­an­lega út úr hópnum. Hann hefur ekki leikið með í flestum af síð­ustu æfinga- og vin­áttu­lands­leikjum, verður heldur ekki með á móti Þýska­landi og Englandi í þessum mán­uði.

Vandræðahefðin í franska landsliðinu

Hvað er það eig­in­lega með þessa vand­ræða­gaura í franska lands­lið­inu? Upp­reisnir og bylt­ingar eru sann­ar­lega stór partur af franskri sögu – en sömu­leiðis franska knatt­spyrnu­heim­inum.

Frakkar urðu heims­meist­arar í knatt­spyrnu 1998. Þegar liðið fagn­aði titl­inum á Stade de France í París var þetta um leið sigur fjöl­menn­ing­ar­innar. Sigurinn kom beint í and­litið á Þjóð­fylk­ing­unni og ras­istum sem höfðu gagn­rýnt inn­flytj­enda­strák­ana í lið­inu. Um helm­ingur lið­ins var þá með tvö­falt rík­is­fang. Sigurinn sýndi því kraft fjöl­menn­ing­ar­innar – hið nýja Frakk­land.

Liðið komst svo aftur í úrslit á HM 2006 sem end­aði með einu dramat­ís­kasta atviki knatt­spyrnu­sög­unnar þegar Zidane skall­aði Materazzi og fékk að líta rauða spjaldið. Þetta marg­slungna atvik, sem á vissan hátt útskýrir spennu fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lags­ins (Zidane tekur heiður fjöl­skyld­unnar fram yfir Frakk­land) og er í raun upp­haf óheilla­sögu franska lið­ins. Það er eins og skalli Zidane hafi kallað bölvun yfir franska lands­liðið. Liðið hefur varla náð sér á strik síðan þá.

Karim Benzema er samt ekki fyrsti vand­ræða­gaur­inn í sögu franska lands­lið­ins. Eric Cantona, David Ginola, Franck Ribery og fleiri skipa þennan vafa­sama flokk. Og það er jafnan hefð að vísa þeim frá – þeir eru ekki vel­komnir, sama hversu góðir þeir eru. Menn fá reisupass­ann fyrir vont við­mót, kjaft og stæla.

Það er t.d. sér­stakt að Cantona og Ginola skuli ekki hafa verið í lið­inu þegar Frakkar urðu heims­meist­arar 1998.

Eric Cantona fékk ekki að vera með á HM 1998 vegna skapofsa síns. Útslagið var svo karate-sparkið fræga á Crystal-Palace áhang­anda þar sem hann fékk átta mán­aða leik­bann í kjöl­farið. Zidane tók sæti hans í franska lið­inu. Stundum virð­ist virka vel að reka besta mann­inn – þá reynir meira á allt liðið. Besti mað­ur­inn skyggir á hina, liðið fer að treysta á hann fremur en sjálft sig. Þetta er sömu­leiðis alþekkt á vinnu­stöðum. Reka þann besta.

David Ginola var án efa einn besti fót­bolta­maður Frakk­lands, lyk­il­maður í ung­linga­lands­liðum, en fékk fá tæki­færi í stóra lið­inu. Hvers vegna? Margir benda á mis­tök hans í leik gegn Búlgörum 1993. Í þessum leik var keppt um sæti á HM 1994, Frakkar töp­uðu leiknum og komust ekki á HM. Ginola gerði ævin­týra­leg mis­tök í þessum leik, brenndi af dauða­færum. Hann var kall­aður morð­ingi franska fót­bolt­ans. Eftir það flúði hann til Englands, lék sinn síð­asta leik með franska lið­inu 1995. Þrátt fyrir að vera einn marka­hæsti og val­inn besti maður ensku deild­ar­innar var hann ekki val­inn í lands­liðið sama ár. Hversu sturlað er það? Hann þótti hégóma­fullur, of mikil stjarna, of „enskur“ – allir eru fót­göngu­liðar í franska lands­lið­inu, allir eru jafnir. Frelsi, jafn­rétti og bræðra­lag. Ef þú til­einkar þér ekki þessi helstu gildi lýð­veld­is­ins ertu úti.

Rétt fyrir HM 2014 var Ribery sparkað úr lið­inu. Þrátt fyrir að vera lang­besti leik­mað­ur­inn. Opinbera sagan er sú að hann hafi hætt sjálfur en allir vissu að hann var rek­inn fyrir stæla og leið­indi.

Æskan sem erfa mun landið

Lands­liðs­þjálf­ari Frakka, Laurent Blanc, virð­ist því ætla að treysta á ungu kyn­slóð­ina næsta sumar. Hann los­aði sig við Ribery í fyrra. Hvorki Benzema né Valbuena verða með í vin­áttu­lands­leikjum gegn Þýska­landi og Englandi í lok þessa mán­aðar og óvíst um alla fram­tíð þeirra. Margir telja fyrir víst að dagar Benzema með franska lands­lið­inu séu taldir. Yngri leik­menn eru að taka yfir. Gamlir refir hafa verið skornir.

Alex­andre Lacazette, sem leikur með Lyon og var marka­hæsti og val­inn besti maður frönsku deild­ar­innar á síð­asta leik­tíma­bili (skaut sjálfum Zlatan ref fyrir rass) með 27 mörk, þykir vera fram­tíð­ar­maður.

Sömu­leiðis hinn 19 ára gamli liðs­fé­lagi hans Samuel Umtiti. Nicolas Isimat-Mirin hjá Monaco er að vekja tölu­verða athygli, enda eins og her­for­ingi á vell­inum ein­ungis 21 árs gam­all.

En allra augu bein­ast nú að Antony Martial, 19 ára gömlum leik­manni Manchester United, sem oft er bor­inn saman við Thierry Henry og þykir nú einn efni­leg­asti leik­maður heims. Oliver Giroud virð­ist hafa tekið við stöðu Benzema og skorar í hverjum leik.

Þetta verða ef til vill lyk­il­leik­menn franska liðs­ins næsta sumar. Ef ekki verða frek­ari vand­ræði og bylt­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár