„Ég vissi strax að hann væri horfinn“

Aðeins lukkan olli því að Þröstur Bjarni Eyþórsson er til frásagnar um slysið þegar frændi hans og vinur, Leif Magnús Grétarsson Thisland, lést í Núpá í Sölvadal í desember 2019. „Ég veit ekki af hverju ég slapp, ég skil það ekki enn þá.“

Vildi bara finna hann
Vildi bara finna hann Þröstur Bjarni segir að hann hafi vitað það strax að Leif frændi sinn væri dáinn. Það hefði bara þurft að finna hann, hann vildi ekki vita af honum ein­hvers staðar þarna týndum. Mynd: Halldór Vagn Hreinsson / HSSK

Þröstur Bjarni Eyþórsson hefur lítið eða ekki talað áður um slysið sem olli dauða Leifs Magnúsar Grétars­sonar Thislands, frænda hans og vinar sem þá var aðeins 16 ára gamall, í desember 2019. Hann lýsir því nú í fyrsta sinn opinber­lega, í samtali við Stundina, sem gerðist kvöldið 11. desember við Núpá í Sölvadal í Eyjafirði.

„Það var blíðskapar­veður, logn og stjörnu­bjart, þegar við fórum niður að stíflu til að reyna að koma virkjuninni af stað. Hún var búin að vera stopp í nokkra daga, vegna þess að ég hafði ekkert komist að henni. Það var búið að vera algjör­lega vitlaust veður í tvo eða þrjá daga áður en þetta gerist og ekki viðlit að líta á virkjunina. Sem betur fer hafði ég olíu á tanknum og gat notað dísel­rafstöðina. Það fóru hins vegar mörg hundruð lítrar af olíu í það þannig að auðvitað vildi maður reyna að koma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár