Flokkur fólksins sagður opinn fyrir stjórn frá miðju til vinstri

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, fund­uðu í dag. Logi segir Vinstri græn nú eiga leik.

Flokkur fólks­ins er opinn fyrir því að ræða stjórn­ar­myndun frá miðju til vinstri. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þar segir hann frá því að hann og Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hafi átt gott sam­tal um brýn verk­efni næstu ára, og birtir mynd af þeim saman. „Við eigum bæði rætur í jafn­að­ar­hug­sjón­inni og rennur til rifja fátækt, mis­skipt­ing og veik almanna­þjón­usta.

F væri opinn fyrir því að ræða stjórn­ar­myndun frá miðju til vinstri.
Þetta væri óvenju­legt en ég er sann­færður um að það er rétta svarið til að koma hér á félags­legum og póli­tískum stöð­ug­leika.

Saman hefðu VBSPCF 40 þing­menn en þeir væru 32 án B.

Eins og sagt er í skák­inni; VG á leik!“

Nú standa yfir óform­legar við­ræður milli Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks um myndun rík­is­stjórnar. For­svars­menn flokk­anna virð­ast sam­mála um að þær gangi vel. Í dag munu þeir funda með þing­flokkum sínum og bak­landi til að gera grein fyrir stöð­unni. Ef vel verður tekið í hana er talið lík­legt að form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hefj­ist í byrjun kom­andi viku.

Mikið er þó reynt að fá Katrínu Jak­obs­dóttur til að skipta um skoðun og halla sér í aðra átt. Á föstu­dags­morgun birtu til að mynda for­svars­menn Við­reisnar, Sam­fylk­ingar og Pírata mynd af Loga Ein­ars­syni með Píröt­unum Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur og Helga Hrafni Gunn­ars­syni, og Við­reisn­ar­fólk­inu Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur og Þor­steini Víglunds­syni, þar sem þau fund­uðu um helstu mál sem flokk­arnir þrír gætu unnið saman að, annað hvort innan rík­is­stjórnar eða í stjórn­ar­and­stöðu. Skila­boðin voru þau að þessir þrír flokkar væru til­búnir til að taka þátt í ann­ars konar stjórn með Katrínu Jak­obs­dóttur og Vinstri grænum, með eða án Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ef Flokki fólks­ins er bætt við þann hóp þá er hann með 21 þing­mann sem myndi þýða að ell­efu þing­menn Vinstri grænna myndu duga til að mynda fimm flokka meiri­hluta­stjórn. Í stjórn­ar­and­stöðu yrðu þá Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár