2020 fram að kórónufaraldri: Icelandair rær lífróður

Áföllin sem dunið hafa á Icelandair á und­an­förnum árum eru af ýmsum toga. Sum vegna rangra ákvarð­ana en önnur eru vegna ytri aðstæðna sem félagið getur lítið eða ekk­ert gert við.

Gengi bréfa í Icelandair hefur ekki verið lægra frá því í byrjun jan­úar 2011, eða í rúm níu ár.

Frá ára­mótum hefur virði félags­ins fallið um 55 pró­sent og mark­aðsvirði fyr­ir­tæk­is­ins farið úr því að vera 48 millj­arðar króna í að vera 18,5 millj­arðar króna við lokun mark­aða á mið­viku­dag. Í byrjun mars hafi það farið undir 30 millj­arða í fyrsta sinn síðan í mars 2012. Hæst reis það í apríl 2016 og fór þá í 191,5 millj­arð króna. Síðan þá hefur mark­aðsvirði íslenska flug­fé­lags­ins lækkað um 173 millj­arða króna.

Við þá tölu verður að bæta að í apríl 2019 var hlutafé í Icelandair aukið um 11,5 pró­sent og það selt til banda­ríska fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins PAR Capital Mana­gement á 5,6 millj­arða króna.

Eigið fé Icelandair var um 60 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Mark­aðsvirðið er minna en einn þriðji af þeirri upp­hæð.

Á árunum 2018 og 2019 tap­aði Icelandair sam­tals rétt tæp­lega 14 millj­örðum króna. Í febr­úar var kynnt afkomu­spá sem gerði ráð fyrir rekstr­ar­hagn­aði á árinu 2020. Tæpum mán­uði síðar var greint frá því að afkomu­spáin væri ekki lengur í gildi. Ein­fald­lega væri ómögu­legt að spá fyrir um hver afkoma Icelandair yrði á þessu ári. Ástæðan væri til­tölu­lega ný: útbreiðsla veirunnar sem leiðir til COVID-19 sjúk­dóms­ins.

Síðan þá hefur staðan ein­fald­lega bara versnað. Hér verður farið yfir rekstr­ar­sögu Icelandair síð­ustu árin og ástæður þess að flug­fé­lagið er statt í þeim líf­róðri sem það nú rær.

Fyrsta ástæða: Breytingar sem skiluðu ekki árangri

Það var mik­ill vöxtur hjá Icelandair eftir banka­hrunið, sam­hliða því að fjöldi ferða­manna sem heim­sótti Íslands óx á nokkrum árum úr um hálfri milljón í 2,3 millj­ónir á metár­inu 2018. Flug­floti félags­ins fór úr því að telja tíu vélar árið 2008 í 33 snemma árs 2019, þar af nokkrar breið­þotur.

Eftir mörg góð ár í röð, frá 2012 og fram til árs­ins 2018, þá hefur mót­vind­ur­inn auk­ist veru­lega hjá Icelandair. Það átti þó ágætis sjóði til að takast á við þá stöðu, en eigið fé þess var 64 millj­arðar króna um mitt ár 2017.

Nokkrar ástæður eru fyrir þess­ari breyt­ingu. Sum vanda­málin voru heima­til­búin en önnur komu til vegna ytri aðstæðna sem Icelandair gat lítið, eða ekk­ert, gert við.

Á árinu 2018 hóf Icelandair að birta afkomu­við­var­anir nokkuð reglu­lega. Í einni slíkri, sem birt var í ágúst á því ári, voru áætl­anir um væntan rekstr­ar­hagnað félags­ins teknar niður enn og aftur. Ástæðan var sögð sú að „inn­leið­ing breyt­inga sem gerðar voru í byrjun sum­ars 2017 á sölu- og mark­aðs­starfi félags­ins ekki gengið nægi­lega vel fyrir sig auk þess sem gerðar voru breyt­ingar á leiða­kerfi félags­ins í byrjun þessa árs sem hafa valdið misvægi á milli fram­boðs fluga til Evrópu ann­ars vegar og Norður-Ameríku hins vegar.“

Í kjöl­far þessa sagði Björgólfur Jóhanns­son, sem hafði verið for­stjóri Icelandair í rúm tíu ár, af sér og vildi með því axla ábyrgð á ákvörð­unum sem teknar höfðu verið á hans vakt.

Breyt­ing­arnar sem höfðu þessar afleið­ingar voru nokkrar. Ein þeirra var sú að í lok maí 2017 bár­ust Icelandair upp­lýs­ingar um lyk­il­stjórn­andi hjá félag­inu, sem hafði í um ára­tug verið for­stöðu­maður leið­ar­kerf­is­stjórn­unar Icelandair, hefði stöðu grun­aðs manns í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á meintum brotum í við­skiptum með bréf í félag­inu. Hann var sendur í leyfi í kjöl­farið og loks sagt upp störfum. Maðurinn, sem var skráður inn­herji hjá Icelandair, átti að hafa veitt manni inn­herj­a­upp­lýs­ingar sem lík­legar voru til að hafa áhrif á hluta­bréf í Icelandair. Maðurinn not­aði svo þær upp­lýs­ingar til að stunda við­skipti með bréf í félag­inu auk þess sem hann deildi þeim með öðrum manni. Með þessu áttu menn­irnir að hafa átt að hagn­ast um 61 milljón króna með því að veðja m.a. á að verð í Icelandair myndu falla skömmu áður en til­kynnt var um að afkomu­spá félags­ins yrði lækkuð veru­lega. Menn­irnir þrír voru ákærðir og loks dæmdir til í fyrra­vor.

Næstu miss­eri var ráð­ist í breyt­ingar á leiða­kerfi Icelandair sem kynntar voru í upp­hafi árs 2018 heppn­uð­ust illa, með til­heyr­andi áhrifum á tekjur Icelandair. Meðal breyt­inga sem gerðar voru á leiða­kerf­inu var að fella burt næt­ur­flug til Evrópu og morg­un­flug til Banda­ríkj­anna.

Fleiri stór­tækar breyt­ingar fylgdu á stjórn­un­arteymi Icelandair næstu miss­eri sem end­aði með því að nýtt skipu­lag var kynnt hjá Icelandair í byrjun árs 2018. Menn sem höfðu starfað hjá félag­inu lengi voru látnir fara og nýju fólki fengin stór umbreyt­ing­ar­verk­efni. Stór ástæða fyrir þessu var mik­ill vöxtur WOW air, sem fór þá með him­in­skaut­unum. Breyt­ing­arnar mið­uðu allar að því að færa Icelandair nær lág­far­gjalda­mód­el­inu sem WOW air var keyrt á. Það var hins vegar flókið umbreyt­ing­ar­ferli, sér­stak­lega vegna þess að launa­kostn­aður hjá Icelandair var afar hár.

Á meðal þeirra breyt­inga sem ráð­ist var í var að gera ráða inn­an­hús­mann í stöðu fram­kvæmda­stjóra sölu- og mark­aðs­sviðs. Sá tók við starf­inu vorið 2017 og skömmu síðar var greint frá stefnu­breyt­ingu sem í fólst að færa sölu- og mark­aðs­starf fé­lags­ins heim til Íslands, og setji auk­inn kraft í mark­aðs­setn­ingu á net­inu. Sett hafði verið saman teymi 25-30 sér­fræð­inga í höf­uð­stöðvum Icelandair sem þekkti vel ýmsar hliðar nets­ins. Eft­ir­stand­andi erlendum sölu­skrif­stofum átti sam­hliða að loka og þeir starfs­menn þeirra sem ynnu áfram hjá félag­inu var boðið að vinna heiman frá sér. Icelandair sagð­ist vera að aðlaga sig að breyttri heims­mynd.

Samkeppnin við WOW air ýtti Icelandair út í ýmiskonar breytingar sem skiluðu ekki tilætluðum árangri. WOW air varð gjaldþrota í lok mars 2019.
Sam­keppnin við WOW air ýtti Icelandair út í ýmis­konar breyt­ingar sem skil­uðu ekki til­ætl­uðum árangri. WOW air varð gjald­þrota í lok mars 2019.

Í júlí 2018 var til­kynnt um enn eina breyt­ingu á skipu­lagi Icelandair Group. Í henni fólst að fram­kvæmda­stjóri sölu- og mark­aðs­sviðs var færður í annað starf hjá félag­inu, rúmu ári eftir að hann tók við fram­kvæmda­stjóra­stöð­unni. Undir hefur verið ofan af mörgum þeirra breyt­inga sem ráð­ist var í.

Önnur ástæða: Erfiðari rekstrarskilyrði og kyrrsetning 737 Max

Þegar leið á árið 2018 fór hækk­andi olíu­verð að bíta flest flug­fé­lög í heim­inum, þótt Icelandair hafi verið mun betur varið fyrir slíkum hækk­unum en WOW air, sem var það alls ekki. Vandamál WOW air, sem voru nær dag­legt frétta­efni frá ágúst 2018 og þangað til að félagið fór á haus­inn í lok mars 2019, smit­uð­ust líka yfir á Icelandair.

Ofan á þetta bætt­ist að 12. mars 2019 voru allar Boeing 737 Max vélar heims­ins kyrr­settar. Þar á meðal þrjár sem voru í rekstri hjá Icelandair. Alls hafði íslenska félagið þó pantað 16 slíkar vélar og áttu þær meðal ann­ars að leysa af hólmi margar gamlar 757 200 vélar sem eyða mun meiru en Max vélin, en 757-vél­arnar eru uppi­staðan í flota Icelandair.

Ástæðan fyrir kyrr­­­setn­ing­unni voru flug­­­slys í Indónesíu 29. októ­ber 2018 og í Eþíópíu 13. mars 2019, en í þeim lét­ust allir um borð, sam­tals 346. Frum­n­ið­­­ur­­­stöður rann­­­sókna í lönd­unum fyrr­­­nefndu benda til þess að vél­­­arnar hafi verið með gallað MCAS-­­­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi, og því hafi þær tog­­­ast til jarðar með fyrr­­­nefndu afleið­ing­­um.

Fyrst sagði Icelandair í til­kynn­ingum að kyrr­setn­ingin myndi ekki hafa veru­leg áhrif á rekstur félags­ins og jafn­vel var búist við því að vél­arnar yrðu til taks á ný yfir háanna­tím­ann sum­arið 2019.

Þær hafa enn ekki hafið sig á loft og nú liggur fyrir að þær munu ekki fljúga í sumar, en Icelandair hafði gert ráð fyrir að níu 737 Max vélar yrðu í notkun í leiða­kerfi félags­ins á þessu ári. Áhrif kyrr­setn­ing­ar Boeing 737 MAX-véla Icelandair á rekst­ur fé­lags­ins á síð­asta ári voru 100 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala, eða um 12,8 millj­arðar króna þegar tekið hef­ur verið til­lit til bóta sem Boeing hef­ur þegar greitt Icelandair. Kyrr­setn­ingin var lyk­il­breyta í rúm­lega sjö millj­arða króna tapi félags­ins á árinu 2019.

Þriðja ástæða: Útbreiðsla veirunnar sem veldur COVID-19

Í ár hafði Icelandair und­ir­búið sig betur fyrir afleið­ingar á kyrr­setn­ing­unni. Vélar voru teknar á leigu til að geta staðið undir eft­ir­spurn yfir háanna­tím­ann og þótt flot­inn væri mun dýr­ari í rekstri en hann yrði ef Max vél­arnar væru að leysa ára­tugagamlar vélar af hólmi þá ríkti bjart­sýni.

Þegar Icelandair kynnti upp­gjör sitt fyrir síð­asta ár, og afkomu­spá fyrir 2020, voru skila­boðin þau að félagið myndi snúa vörn í sókn í ár. Fé­lagið gerði meðal ann­ars ráð fyrir að flytja að lág­marki jafn­marga far­þega til Íslands á árinu 2020 og árið 2019.

Útbreiðsla kórónaveirunnar um heiminn mun hafa miklar efnahagslegar afleiðingar, meðal annars á ferðaþjónustu.
Útbreiðsla kór­óna­veirunnar um heim­inn mun hafa miklar efna­hags­legar afleið­ingar, meðal ann­ars á ferða­þjón­ustu.

Nú er sú staðan gjör­breytt. Hrun verður í komu ferða­manna til Íslands. Ástæðan er útbreiðsla veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Starf­semi Icelandair er nú í lama­sessi og flota félags­ins hefur verið lagt tíma­bundið að mestu. Fyr­ir­tækið sagði upp 240 manns fyrir skemmstu og 92 pró­sent eft­ir­stand­andi starfs­manna þess voru fluttir í hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, þar sem allt að 75 pró­sent af greiddum launum koma úr rík­is­sjóði.

Í vik­unni var greint frá því að stjórn­endur Icelandair væru nú að leita leiða til að styrkja fjár­hag félags­ins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið hefur ráðið Kviku banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann sem ráð­gjafa til að hefja skoðun á mögu­legum leiðum til að ná því mark­miði. Þá munu stjórn­endur Icelandair einnig vinna náið með íslenskum stjórn­völdum í því ferli.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna þessa sagði: „Á síð­ustu dögum og vikum hefur áhersla verið lögð á það hjá Icelandair að halda uppi lág­marks flug­sam­göngum til og frá land­inu, bæði fyrir far­þega og vöru­flutn­inga þrátt fyrir að flug­á­ætlun félags­ins hafi dreg­ist veru­lega saman á und­an­förnum vik­um. Flug­á­ætlun félags­ins nemur nú minna en 10 pró­sent af þeirri áætlun sem gefin hafði verið út fyrir þetta tíma­bil árs­ins. Enn ríkir mikil óvissa um hvenær ferða­tak­mörk­unum verði aflétt og eft­ir­spurn eftir flugi og ferða­lögum muni aukast á ný og gera stjórn­endur Icelandair Group ráð fyrir því að flug­á­ætlun félags­ins muni drag­ast saman um að minnsta kosti 25 pró­sent yfir sum­ar­tím­ann.“

Lausa­fjár­staða Icelanda­ir, að með­töldum óádregnum lána­lín­um, er þó enn vel yfir því við­miði sem félagið starfar eftir, sam­kvæmt til­kynn­ingu, en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 millj­arða króna á núver­andi gengi, eða 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala, á hverjum tíma. „Eins og til­kynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausa­fjár­stöðu sína á und­an­förnum vik­um. Hins veg­ar, ef miðað er við lág­marks­tekju­flæði hjá félag­inu í apríl og maí, er ljóst að lausa­fjár­staða félags­ins muni skerð­ast og fara undir ofan­greint við­mið.“

Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair Group, sagði í til­kynn­ing­unni að Icelandair viti að á ein­hverjum tíma­punkti mun flug kom­ast aftur í eðli­legt horf og því vilji félagið vera vel í stakk búin til að sækja fram og nýta þau tæki­færi sem þá verða fyrir hendi. „Til að ná þeirri stöðu er nauð­syn­legt að gera við­eig­andi breyt­ingar á kostn­að­ar­upp­bygg­ingu félags­ins, styrkja fjár­hags­stöðu þess og leita allra leiða til að styrkja sam­keppn­is­hæfi þess til fram­búð­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár