„Til að fá ferðafólk út af þjóðvegi eitt þarf að hafa eitthvað sem vekur athygli“

Jóhanna Magn­ús­dóttir vinnur að upp­bygg­ingu á menn­ingar- og kaffi­húsi á Bakka­firði. Hún safnar fyrir verk­efn­inu á Karolina fund.

Á Bakka­firði er verið að vinna að verk­efni sem okkur lék for­vitni á að vita meira um. Bakka­fjörður er fámennt byggð­ar­lag á Aust­ur­landi nánar til­tekið á milli Vopna­fjarðar og Þórs­hafnar. Okkur fannst spenn­andi að kynna okkur af hverju ráð­ast á í þetta verk­efni á þessu svæði og hverjir stæðu að því. Við tókum við­tal við eig­and­ann, Jóhönnu Magn­ús­dóttur.

Hún segir hug­mynda að verk­efn­inu hafa kviknað þegar hún var að skoða mögu­leik­ann á öðru verk­efni á Bakka­firði sem gekk ekki eftir. „Ég fór nokkrar ferðir til Bakka­fjarðar í tengslum við það í fyrra­vetur og fór meðal ann­ars að skoða Bjarg sem er friðað hús sem stendur rétt fyrir utan þorpið og fannst það á fal­legum stað. Vinkona mín þekkti fyrr­ver­andi eig­anda og hún kann­aði fyrir mig hvort húsið gæti verið til
sölu þar sem það hafði ein­göngu verið notað sem sum­ar­hús hin síð­ustu ár. Svo reynd­ist vera og ég bauð í húsið og fékk það.“

Í fyrstu ætl­aði Jóhanna ein­göngu að reka þarna gisti­heim­ili en þegar hún fór að skoða það sem fyrr­ver­andi eig­endur skildu eftir í hús­inu þá fannst henni að hún yrði að gera eitt­hvað með þá muni og þá merki­legu sögu sem húsið segir. „Hún teng­ist sjáv­ar­út­vegi hér fyrir austan og veru fær­eyskra sjó­manna hér við strendur og sam­skiptum þeirra við okkur Íslend­inga. Mér fannst líka nauð­syn­legt að kynna fleiri staði og þætti í sögu okkar fyrir Íslend­ingum sem og hinum almenna ferða­manni. Til að fá ferða­fólk út af þjóð­vegi eitt þarf að hafa eitt­hvað sem vekur athygli hjá því. Það dugar ekki að bjóða ein­göngu upp á gist­ingu því ferða­fólk leitar að ein­hverju sem það getur skoðað og upp­lifað.“

Jóhanna ákvað því að setja upp menn­ingar- og kaffi­hús í kjall­ara húss­ins, sem var fyrir bara notuð sem geymsla. „Áður fyrr voru þar líka tvær
kýr og ein­hverjar ær en aðal­at­vinna fólks­ins sem hefur búið í hús­inu hefur verið sjó­mennska og útgerð. Það er mikið verk fyrir höndum að koma hús­inu í þokka­legt horf og enn fremur dýrt að gera upp svona gömul, friðuð hús svo að sómi sé að. Ég ákvað því að kynna þetta verk­efni fyrir þeim sem eru með Karólína Fund en þar gefst fólki tæki­færi á að styrkja þetta verk­efni með beinum fjár­fram­lögum eða með því að kaupa sér aðgang að menn­ing­ar­hús­inu og kaffi­hús­inu i nokk­urs konar for­sölu. Svo er einnig hægt að styrkja verk­efnið með því að kaupa gist­ingu sem er stað­sett á efri hæð húss­ins. Þar eru þrjú her­bergi til boða sem hafa aðgang að sal­erni og eld­húsi. Svo verður sett upp setu­stofa á jarð­hæð­inni. Það sem er ein­stakt við þennan stað er fámennið og hversu rólegt er hér yfir öllu. Þetta er til­val­inn staður til að kúpla sig frá skarka­l­anum í þétt­býl­inu og hlaða batt­er­íin.“

Hún seg­ist vona að sem flestir sjái sér fært að styðja þetta áhuga­verða verk­efni. „Mig hefur lengi dreymt um að standa að eigin rekstri. Það myndi svo ekki skemma fyrir ánægj­unni ef þetta verk­efni leiddi til frek­ari upp­bygg­ingar á svæð­inu. En það verður að segj­ast að þetta er svo­lítið gleymdur lands­hluti. Það eru fleiri aðilar sem hafa áhuga á svæð­inu og eru með verk­efni í gangi, þannig að ég tel að með öfl­ugri upp­bygg­ingu megi laða fleira fólk á svæðið.

En Bakka­fjörður fellur nú undir verk­efnið Brot­hættar byggðir, sem stendur að því að efla byggðir sem þarfn­ast utan­að­kom­andi aðstoðar til verk­efna. Þannig að það er brýn þörf á að byggja upp á svæð­inu, að fá fólk til að setj­ast hér að, og að fá ferða­fólk til að fara þennan stutta spotta frá aðal­veg­inum og kynna sér það sem hér er í boði.“

Hér er hægt að taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár