Skatturinn getur ekki enn afgreitt endurgreiðslur sem stjórnvöld kynntu í mars

Þrátt fyrir að lög sem fela í sér hækkun og útvíkkun á end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts hafi verið sam­þykkt á Alþingi 31. mars getur Skatt­ur­inn ekki enn afgreitt umsóknir um end­ur­greiðslur. Tækni­vinna „hefur tekið lengri tíma en hægt var að sjá fyrir.“

Skatt­ur­inn er ekki enn byrj­aður að geta afgreitt umsóknir um fulla end­ur­greiðslu á virð­is­auka­skatti sam­kvæmt hinu svo­kall­aða „Allir vinna“-úrræði stjórn­valda, þrátt fyrir að rúmur einn og hálfur mán­uður sé síðan stjórn­völd kynntu auknar end­ur­greiðslur virð­is­auka­skatts sem hluta af aðgerðum sínum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Lög sem kváðu meðal ann­ars á um tíma­bundna hækkun á end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts fyrir unna vinnu úr 60 pró­sentum upp í 100 pró­sent voru sam­þykkt á Alþingi þann 31. mars. Tækni­lega útfærslan á mál­inu hefur verið í vinnslu hjá Skatt­inum síðan.

Til­kynn­ing birt­ist á vef stofn­un­ar­innar 16. apríl þar sem tekið var fram, að gefnu til­efni, að umsóknir um end­ur­greiðsl­una væru „ekki til­búnar“ og unnið væri að því að breyta raf­rænu umsókn­ar­eyðu­blöð­unum þannig að þau tækju meðal ann­ars til bíla­við­gerða og ann­ars kostn­aðar sem stjórn­völd ákváðu að hafa með í úrræð­inu.

„Bæði breyt­ingar á end­ur­greiðslu­hlut­falli og nýjar reglur um end­ur­greiðslur vegna bíla­við­gerða hafa kallað á tækni­vinnu sem hefur tekið lengri tíma en hægt var að sjá fyrir – og er ekki lokið,“ segir Snorri Olsen rík­is­skatt­stjóri í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Vonast til þess að hægt verði að afgreiða umsóknir „innan tíðar“

Rík­is­skatt­stjóri segir að verið sé að for­rita ný umsókn­ar­eyðu­blöð, ásamt öllu sem þeim til­heyri. Hann segir jafn­framt að vonir standi til þess að hægt verði að fara að afgreiða end­ur­greiðslur virð­is­auka­skatts vegna reikn­inga sem gefnir hafa verið út vegna vinnu frá því í byrjun mars „innan tíðar“.

Fullri end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts er ætlað að skapa auk­inn hvata fyrir fólk til þess ráð­ast í fram­kvæmdir og kaupa þjón­ustu iðn­að­ar­manna og ann­arra, en sam­bæri­legu úrræði var beitt eftir efna­hags­hrunið árið 2008 til þess að örva eft­ir­spurn og sporna við hvoru tveggja atvinnu­leysi og svartri vinnu.

Úrræðið er í gildi til árs­loka og tekur til fram­kvæmda fólks á eigin heim­ilum og frí­stunda­húsum, auk kostn­aðar vegna heim­il­is­að­stoðar og vinnu bif­véla­virkja. Einnig geta félög á borð við íþrótta­fé­lög og björg­un­ar­sveitir fengið fulla end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts ef þau fara í fram­kvæmdir á eigin mann­virkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár